Fréttablaðið - 05.06.2005, Qupperneq 4
LÖGREGLUFRÉTTIR
RÉTTINDALAUS OG ÖLVAÐUR
Lögreglan á Ísafirði stöðvaði sext-
án ára dreng á bíl um þrjúleytið
aðfaranótt laugardags og reyndist
hann jafnframt vera ölvaður. Var
hann sóttur af foreldrum sínum.
Vinur drengsins, fæddur fyrr á
sama ári, sem leyfði honum að
prófa bíl sinn, verður að öllum lík-
indum sektaður.
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
65,65 65,97
119,32 119,90
80,59 81,05
10,83 10,90
10,19 10,25
8,82 8,88
0,61 0,61
96,69 97,27
GENGI GJALDMIÐLA 03.06.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
113,05 +1,49%
4 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Niðurstöður rannsóknar á því hvernig öryrkjum reiðir af:
Fæstir fara aftur á vinnumarka›
HEILBRIGÐISMÁL Einungis tólf pró-
sent þeirra kvenna og níu pró-
sent karla sem metin voru til ör-
orku árið 1992, voru að líkindum
komin aftur á vinnumarkað tólf
árum síðar. Fyrrnefnda árið
voru samtals 725 metnir til ör-
orku, 428 menn og 297 konur.
Þetta kemur fram í niðurstöð-
um könnunar þeirra Sigurðar
Thorlacius, tryggingayfirlæknis
Tryggingastofnunar, og Tryggva
Þórs Herbertssonar hagfræð-
ings sem könnuðu stöðu þeirra
sem metnir voru í fyrsta sinn til
örorku vegna lífeyristrygginga
hér árið 1992.
Könnunin birtist í nýju
Læknablaði. Hún sýndi að 12
árum eftir að fólkið var metið
höfðu 434 úr hópnum fallið af ör-
orkuskrá: 240 konur og 194 karl-
ar. Langflestir höfðu fallið af
skránni vegna þess að þeir höfðu
sest í helgan stein eða látist.
Aðstandendur könnunarinnar
telja að athuga þurfi hvað hægt
sé að gera til að breyta þróun-
inni og auðvelda öryrkjum að
komast aftur á vinnumarkað.
Þar komi til greina starfsendur-
hæfing, aðgerðir til að örva
vinnuveitendur til að ráða fólk
með skerta starfsgetu og endur-
skoðun tekjutengingar örorku-
bóta. - jss
Deila á Abbas vegna
frestunar kosninga
Forystumenn Hamas eru rei›ir Mahmoud Abbas fyrir a› hafa einhli›a fresta›
palestínsku flingkosningunum. Óvíst er hvenær flær ver›a haldnar. Abbas seg-
ir meiri tíma flurfa til a› undirbúa breytingar á kosningalögum.
PALESTÍNA, AP Hamasliðar brugðust
ókvæða við ákvörðum Mahmoud
Abbas, forseta palestínsku heima-
stjórnarinnar, um að fresta þing-
kosningum sem halda átti 17. júlí
um ótiltekinn tíma. Þeir segja hann
reyna að koma í veg fyrir sigur
Hamas en hann segir nauðsynlegt
að komast að samkomulagi um
nýtt kosningakerfi áður en kosn-
ingar fara fram.
Abbas sagði í gær að ekki væri
hægt að halda kosningar á fyrir-
huguðum tíma. Hann nefndi máli
sínu til stuðnings að meiri tíma
þyrfti til að ræða nýja kosningalög-
gjöf. Abbas vill að Palestína verði
öll eitt kjördæmi en sumir félagar í
Fatah-hreyfingunni sem Abbas til-
heyrir vilja mörg kjördæmi.
„Tíminn er af skornum
skammti. Frestun var nauðsynleg
svo við gætum gengið frá laga-
breytingum og samráði allra fylk-
inga,“ sagði Abbas þegar hann til-
kynnti að hann hefði frestað kosn-
ingunum.
Sami Abu Zuhri, talsmaður
Hamas á Gaza, var harðorður þeg-
ar hann mótmælti ákvörðuninni.
„Þessi ákvörðun var tekin ein-
hliða,“ sagði hann og bætti við að
hún markaðist meira af því að
Fatah væri í slæmum málum, eins
og sveitarstjórnarkosningar hefðu
sýnt fram á, fremur en að tekið
væri tillit til þjóðarhagsmuna.
Hamasliðar ætla þrátt fyrir
þetta að virða vopnahléið við Ísra-
ela sem þeir samþykktu vegna
beiðna Abbas. Abu Zuhri sagði þó
að ákvörðun Abbas græfi undan
samskiptum hans við Hamas.
Hamasliðar hafa styrkt stöðu
sína í palestínskum stjórnmálum
að undanförnu, ekki síst vegna
mikillar óánægju með spillingu
sem lengi hefur viðgengist innan
Fatah, hreyfingarinnar sem
Yasser Arafat og Abbas eftir-
maður hans, hafa sótt áhrif sín
til. Hamashreyfingin vann sigur í
sveitarstjórnarkosningum fyrr á
árinu og virðist líkleg til að vinna
þingsæti af Hamas í þingkosn-
ingunum, þeim fyrstu sem Ham-
as tekur þátt í. ■
Í RÆÐUPÚLTI Rumsfeld kallaði eftir meira
frelsi í Kína.
Donald Rumsfeld:
Gröfum ekki
undan Kína
SINGAPÚR, AP Kröfur Bandaríkja-
stjórnar um aukið frelsi í Kína eru
ekki settar fram til að ógna jafn-
vægi í landinu eða grafa undan því
með nokkrum hætti, sagði Donald
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, í gær.
„Ég tel þá ályktun að frelsi jafn-
gildi óstöðugleika vera ranga,“
sagði Rumsfeld á ráðstefnu um ör-
yggismál í Singapúr. Hann sagðist
einnig telja að Kínverjar myndu
ekki fullnýta tækifæri sín til hag-
vaxtar og sóknar á alþjóðlegum
mörkuðum ef þeir opnuðu ekki
stjórnmálakerfi sitt. ■
LOKAÐ Ekki kom til mikilla tafa vegna lok-
unar Reykjanesbrautar frameftir degi í gær
enda nóg af hjáleiðum sem ökumenn
nýttu sér.
Reykjanesbraut:
Lokun olli
litlum töfum
SAMGÖNGUR Hluti Reykjanesbraut-
ar var lokaður fram eftir degi í
gær vegna framkvæmda en ekki
urðu alvarlegar tafir hjá vegfar-
endum af þeim sökum enda marg-
ar hjáleiðir í boði.
Sigurður Helgason hjá Um-
ferðarstofu segir að þeir sem önn-
uðust framkvæmdina hafi haft
hagsmuni vegfarenda að leiðar-
ljósi og því hafi framkvæmdin
hafist strax í fyrrinótt og henni
verið lokið um miðjan dag í stað
þess að hefja störf um morguninn
og loka þessari mikilvægu sam-
gönguæð allan daginn. -aöe
Þekkir þú fuglinn?
Einn af einkennisfuglum
votlendis á láglendi.
Gefur frá sér hátt kvak
og hvellt nefhljóð á
varptíma, annars
þögull.
edda.is
Svarið fæst í
Fuglavísinum,
frábær handbók,
ómissandi í bílinn.
VEÐRIÐ Í DAG
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÓK ÖLVAÐUR ÚTAF VIÐ
HREPPSLAUG
Karlmaður á þrítugsaldri var
handtekinn vegna ölvunaraksturs
í Borgarfirði aðfaranótt laugar-
dags. Hann hafði ekið út af
skammt frá Hreppslaug í Skorra-
dal og reyndist ölvaður þegar
lögregla kom á vettvang. Málið
er í rannsókn.
ÞRETTÁN FÍKNIEFNAMÁL Í
REYKJAVÍK
Óvenju mörg fíkniefnamál komu
upp hjá lögreglunni í Reykjavík á
aðfaranótt laugardags. Upp komu
þrettán tilvik þar sem lögreglan
lagði hald á fíkniefni. Í flestum
tilvikum var um lítið magn af
amfetamíni eða kannabisefnum
að ræða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
RÐ
U
R
MÓTMÆLT Í MARDA Um svipað leyti og Abbas og Hamasliðar deildu um frestun þingkosninga safnaðist fjöldi fólks saman nærri Marda á
Vesturbakkanum til að mótmæla byggingu múrsins sem Ísraelar segja vernda landsmenn sína fyrir árásum en Palestínumenn kalla að-
skilnaðarmúr.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLVELTA VIÐ HOFSÓS
Stúlka á átjánda aldursári slasað-
ist illa í bílveltu rétt sunnan við
Hofsós á föstudagkvöldið. Hún
var flutt burt í sjúkrabíl en var
ekki talin í lífshættu. Hún var
ekki í bílbelti. Bíllinn er talinn
ónýtur.
SLYS
HESTUR SPARKAÐI Í MANN
Karlmaður frá Blönduhlíð meidd-
ist illa á hné á föstudag þegar
hestur sparkaði til hans. Hann
var fluttur til Akureyrar þar sem
gert var að meiðslunum.
ENDURHÆFING Endurhæfing og iðjuþjálf-
un eru stórir þættir í því að hjálpa öryrkj-
um aftur út á vinnumarkaðinn. Myndin er
ótengd fréttinni.