Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 6
6 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
IÐNAÐUR Allt að 70 prósent þeirra
sprotafyrirtækja, sem annars ættu
góða lífsvon, berjast í bökkum við
núverandi efnahagsástand og mörg
þeirra eru við dauðans dyr. Þetta er
mat Davíðs Lúðvíkssonar, forstöðu-
manns Samtaka sprotafyrirtækja.
„Sprotafyrirtækin eru yfirleitt
að nota meginhlutann af sínu fjár-
magni í þróunarstarf og eru oft fjár-
vana þannig að þau hafa varla borð
fyrir báru. Flestir ættu að deyja við
núverandi aðstæður en það ótrúlega
er að einhver þessara fyrirtækja
lifa. Hjá þeim sem lifa af er afleið-
ingin sú að þróunin verður hægari,“
segir hann.
Mikið innstreymi er af gjaldeyri
sem skipta þarf fyrir íslenskar
krónur og spennir það upp verðið á
íslensku krónunni, að sögn Davíðs.
Þá er íslenska krónan hluti af litlu
hagkerfi og því hefur svo mikið inn-
streymi af gjaldeyri þeim mun
meiri áhrif en í stærra hagkerfi.
„Ef evran veiktist þá myndi
kostnaðarhliðin lækka en það gerist
ekki við þessar aðstæður þegar
kostnaðurinn er bundinn í íslenskri
krónu en tekjurnar í erlendri
mynt,“ segir hann. -ghs
Talsmenn Eldhesta og Íshesta ánægðir með bókunarstöðuna fyrir sumarið
Svipu› ásókn í hestafer›ir og í fyrra
FERÐIR Talsmenn fyrirtækjanna Eld-
hesta og Íshesta sem skipuleggja
hestaferðir hér á landi segja allt út-
lit fyrir gott sumar í hestamennsk-
unni.
Hróðmar Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Eldhesta segist
ánægður með fjölda bókana í hesta-
ferðir hjá fyrirtækinu fyrir sumar-
ið. Hann telur að ekki sé um aukn-
ingu að ræða frá því í fyrra. Full-
bókað er í margar ferðir á vegum
fyrirtækisins en þó ekki allar. Hróð-
mar segir fólk í auknum mæli farið
að sækja í meiri þægindi í hesta-
ferðunum og bjóða Eldhestar við-
skiptavinum sínum upp á gistingu á
hóteli fyrirtækisins sem staðsett er
á Völlum í Ölfusi.
Gitta Krichbaum hjá Íshestum
segir bókunarstöðuna hjá fyrirtæk-
inu vera góða og að erfitt sé að sjá
einhvern mun á milli sumra. Nokk-
uð er um að útlendingar sæki í
hestaferðir hér á landi að sögn Gittu
og nefnir hún til sögunnar að fólk
frá Póllandi og Lettlandi hafi bókað
ferðir í sumar og því geti hestaferð-
irnar verið nokkuð fjölþjóðlegar. Ís-
hestar munu einnig bjóða upp á
tvær hestaferðir sem eingöngu eru
ætlaðar Íslendingum. - ifv
Hættulegasti kaflinn
bættur og laga›ur
Mei›sli og dau›sföll voru 130 prósent fleiri á vegakaflanum frá Borgarfjar›ar-
braut a› Laxfossi en annars sta›ar á fljó›veginum. Nú er reynt a› stemma
stigu vi› flessari vá me› flví a› endurgera veginn á versta sta›num.
VEGAGERÐ Einn hættulegasti vega-
kaflinn á þjóðvegi eitt mun heyra
sögunni til eftir að vegafram-
kvæmdum lýkur á kaflanum frá
veitingarstofunni Baulu við
Gljúfurá að Litlu Gröf í Norður-
árdal í Borgarfirði.
Samkvæmt upplýsingum frá
Umferðarstofu og Vegagerðinni
voru slys með meiðslum og
dauðsföllum frá árinu 2000 til
2003 130% fleiri á vegakaflanum
frá Borgarfjarðarbraut að Lax-
fossi en meðaltal slíkra slysa á
öllum þjóðveginum utan þéttbýl-
is. Ef eignatjón er talið með eru
slysin helmingi fleiri, að meðal-
tali, en á öllum þjóðveginum. Það
er því ljóst að slys á þessum veg-
arkafla voru bæði tíð og alvarleg
og voru langflest þeirra á þeim
kafla sem nú er unnið að.
Að þessum framkvæmdum
loknum á vegarkaflinn hins vegar
að vera orðinn nokkuð öruggur,
segir Einar Magnús Magnússon,
upplýsingafulltrúi Umferðar-
stofu. „Vegurinn var afar mjór,
þar voru miklar beygjur og á
mörgum stöðum hafði hann sigið
þannig að í honum voru dældir og
svo var þarna hættuleg blind-
beygja þannig að það var löngu
orðið tímabært að gera endur-
bætur á þessum vegarkafla,“ seg-
ir Einar.
Framkvæmdir hófust í fyrra-
haust og voru áætluð verklok í
júli 2006. Að sögn Sigurðar Ósk-
arssonar framkvæmdastjóra
KNH ehf. gengur verkið svo vel
að nú er stefnt að því að nýi kafl-
inn verði tilbúinn í september eða
tíu mánuðum fyrr en áætlað var.
Hann segir svæðið nokkuð
erfitt til vegagerðar þar sem
þarna eru miklar mýrar og því
þarf að fergja jarðveginn vel
áður en vegurinn er malbikaður.
„Á svæðum sem þessum er al-
gengt að jarðvegurinn sígi þegar
búið er að fergja og hér hefur
hann sigið um einn og hálfan
metra þar sem verst er. Þess
vegna erum við nú að fergja á
fullu og svo verðum við bara að
bíða,“ segir Sigurður. Hann segir
að sérstaklega sé verið að vanda
til þess að dældir myndist ekki í
veginum líkt og gerðist á þeim
gamla.
jse@frettabladid.is
Breskir þjófar:
Vildu selja
Harry Potter
BRETLAND, AP Tveir menn voru
handteknir eftir að þeir reyndu að
selja blaðamanni breska dagblaðs-
ins The Sun eintak af nýju bókinni
um Harry Potter sem kemur ekki í
verslanir fyrr en 16. júlí. Annar
maðurinn vann í vörumiðstöð sem
sér um dreifingu bókarinnar.
Að sögn The Sun buðust menn-
irnir til að selja blaðinu eintak af
bókinni sem þeir höfðu komist yfir.
The Sun sendi blaðamann til að
ræða við mennina en kallaði einnig
á lögreglu. Sömu sögu er að segja
af The Daily Mirror sem fékk sama
tilboð og hafði líka samband við
lögregluna. ■
LIFI TJÁNINGARFRELSIÐ Líbanskir blaða-
menn lyftu pennum sínum, tákni frjálsrar
fjölmiðlunar, á minningarsamkomu um
Samir Kassir í Beirút í gær.
Morð á blaðamanni:
Krefjast
afsagnar
BEIRÚT, AP Morð líbansks blaða-
manns í vikunni er þegar farið
að draga pólitískan dilk á eftir
sér, í miðjum þingkosingum.
Stjórnarandstæðingar kenna
Sýrlendingum og bandamönnum
þeirra í Líbanon um tilræðið.
Samir Kassir var einkum
þekktur fyrir hatrömm skrif sín
gegn Sýrlendingum og banda-
mönnum þeirra í Líbanon en var
jafnframt leiðtogi and-sýr-
lenskra samtaka. Því er víst að
hann átti marga óvini. Nokkrir
þeirra komu fyrir sprengju und-
ir bílstjórasætinu í bifreið hans
í fyrradag og þegar hann ræsti
bílinn í fyrradag sprakk hún.
Sýrlensk stjórnvöld vísa því á
bug að þau beri ábyrgð á tilræð-
inu. ■
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
85
97
06
/2
00
5
Sumartilboð 9. og 16. júní
Costa del Sol
Glæsilegir gististaðir í boði
• Sunset Beach Club Mjög gott íbúðahótel við ströndina í
Benalmadena Costa.
• Amaragua Eitt vinsælasta íbúðahótelið á staðnum.
• Flatotel Glæsilegur gististaður í Benalmadena.
44.900* kr.
Verðdæmi á Flatotel:
á mann í íbúð m/1 svefnh. m.v. að 3 ferðist saman.
Enginn barnaafsláttur. Verð á aukaviku skv. verðlista.
Innif.: Flug, gisting í 7 nætur, akstur til og frá flugvelli erlendis, íslensk
fararstjórn og föst aukagjöld. Ef bókað er símleiðis eða á skrifstofu greiðist
bókunar- og þjónustugjald sem er 2.000 kr. á mann.
Tryggðu þér bestu
kjörin og bókaðu strax.
Sunset Beach Club
Fleiri eða færri?
Finndu verð á þinni ferð á www.urvalutsyn.is
Fær RJF-hópurinn Aron
Pálma Ágústsson lausan úr
fangelsi í Texas?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu áhyggjur af stöðu
efnahagsmála?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
56,8%
43,2%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
VEGAGERÐ Í BORGARFIRÐI Heilmikið efni þarf til að undirbúa jarðveginn fyrir nýja veginn á mýrlendinu í Borgarfirði. Framkvæmdirnar
ganga afar vel og stefnir verktakinn á að klára verkið 10 mánuðum fyrr en áætlað hafði verið.
VEGARKAFLINN Öryggi eykst þegar
framkvæmdum lýkur.
Sjómannadagsblað:
Li›in tí›
rifju› upp
SJÓMANNADAG-
URINN Sjó-
m a n n a d a g s -
blað Austur-
lands er komið
út og eru efnis-
tök blaðsins
fjölbreytt. Þar
er meðal ann-
ars að finna
viðamikla um-
fjöllun um
strand togar-
ans Egils rauða og frækilega björg-
un 29 manna úr áhöfninni, viðtal við
Önnu á Hesteyri og fjölmörg minn-
ingabrot frá liðinni tíð á Austur-
landi. Einnig er birt brot úr óútgefn-
um æviminningum Vilhjálms Árna-
sonar hæstaréttarlögmanns, fædd-
um á Seyðisfirði, og fjallað um fisk-
veiðar Færeyinga við Ísland á 19. og
20 öld og margt fleira.
Ritstjóri Sjómannadagsblaðs
Austurlands er Kristján J. Krist-
jánsson frá Norðfirði. ■
SJÓMANNADAGS-
BLAÐ AUSTURLANDS
DAVÍÐ LÚÐVÍKSSON „Sprotafyrirtækin eru
yfirleitt að nota meginhlutann af sínu fjár-
magni í þróunarstarf og eru oft fjárvana
þannig að þau hafa varla borð fyrir báru.
Flestir ættu að deyja við núverandi að-
stæður,“ segir Davíð Lúðvíksson, forstöðu-
maður hjá Samtökum iðnaðarins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
HESTAMENNSKA Hestaferðir virðast njóta
vinsælda bæði meðal Íslendinga og ferða-
manna sem hingað koma.
FERÐALÖG
ÁTAK Í ÖRYGGISMÁLUM Félag hóp-
ferðaleyfishafa ætlar á næstu mán-
uðum að hrinda af stað átaki í að
efla öryggis-, umhverfis- og gæða-
mál greinarinnar í heild. Markmið-
ið er að reyna að fyrirbyggja óhöpp
eins og hægt er samhliða því sem
umhverfis- og gæðamál greinarinn-
ar verða teknar í gegn af festu.
Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður Samtaka sprotafyrirtækja, um efnahagsástandið:
Sprotafyrirtækin berjast í bökkum