Fréttablaðið - 05.06.2005, Síða 8
Þegar flogið er yfir Reykjavík á
heiðríkum degi verður ekki hjá
því komist að hugsa um tvennt;
gullfallegar eyjar standa auðar á
sundunum við Kollafjörð og gam-
all flugvöllur ristir í sundur verð-
mætasta byggingarland borgar-
innar. Reykjavík er að mörgu
leyti vansköpuð borg, illa skipu-
lögð og hefur liðið óskaplega fyrir
það á allra síðustu árum að miðja
borgarinnar hefur færst yfir í
önnur sveitarfélög; miðborgin sit-
ur eftir sem alræmt úthverfi,
mannlaus mestallan daginn en
vaknar ófriðlega á kvöldin og
ólmast fram eftir nóttu.
Vandi flestra miðborgar-
samfélaga í Evrópu er að
þau vantar bakland. Íbúarn-
ir eru horfnir til pollrólegra
úthverfa og eftir stendur
óleystur bílastæðavandi
framan við dimmgráar
skrifstofubyggingar. Og
þegar bankastofnunum
sleppir, ásamt ráðuneytum
og einstaka sérverslunum ...
er ekkert meira að sækja í
miðborgina annað en stöðu-
mælasektir á daginn, pizzur
og pilsner á kvöldin, lífs-
háska að nóttu.
Skipulagsmál verða að
öllum líkindum helsta kosn-
ingamál borgarstjórnar-
kosninganna á næsta ári.
Það er innan við ár til
stefnu, svo sem eins og
fimmtíu vikur í pólitík. Og
þær líða hratt. Útspil sjálf-
stæðismanna í síðustu viku
þar sem áhersla var lögð á
landfyllingar á milli
Örfiriseyjar og Akureyjar,
ásamt íbúðabyggð í Engey,
Viðey og Geldinganesi, hef-
ur almennt hlotið jákvæðar
undirtektir, þar á meðal í
þessum dálki. Hugmyndir
sjálfstæðismanna eru ekki
síst þeirrar náttúru að kveikja í
umræðunni um skipulagsmál í
borginni, sem hefur verið stöðnuð
og leiðinleg um langt árabil – og
yfirmáta embættismannaleg.
Gallinn við þessa hugmyndavinnu
sjálfstæðismanna er að þeir þorðu
ekki að taka skrefið til fulls og
skófla Reykjavíkurflugvelli burt
úr Vatnsmýrinni og rýma með því
móti fyrir byggð beggja vegna við
miðborgina.
Reykjavíkurflugvöllur hefur
verið helsta tabú umræðunnar um
skipulagsmál í borginni um
tveggja áratuga skeið. Athyglis-
vert hefur verið að fylgjast með
stjórnmálamönnum allra flokka
hverfa ofan í hálsmálið þegar vik-
ið hefur verið að framtíð vallar-
ins. Í þeim efnum hefur pólitískt
þor verið af svo skornum
skammti að líkja verður við póli-
tíska fælni. Fyrir vikið hefur ver-
ið gripið til skammtímalækninga
á landsvæðinu í kringum völlinn á
síðustu misserum; lækninga sem
líkjast munu alvarlegu meini eftir
nokkra áratugi þegar Reykvíking-
ar horfa á allar steypuskellurnar
sem slett hefur verið á svæðið
eins skjálfhentur múrari hafi
stjórnað þar verki.
Íslendingar hafa efni á því að
færa Reykjavíkurflugvöll. Og
segja má reyndar með sanni að Ís-
lendingar skuldi höfuðborginni
það að flytja völlinn úr verð-
mætasta byggingarlandi borgar-
innar. Það eitt hefur vantað að
sterkur stjórnmálamaður opnaði
þverrifuna og talaði hreint og
beint út um framtíð þessa svæðis.
Og loks hefur það gerst. Alfreð
Þorsteinsson, oddviti framsóknar-
manna í Reykjavík og eitt
sterkasta límið í R-listasamstarf-
inu, kveður sér hljóðs á forsíðu
Fréttablaðsins á föstudag og tek-
ur af skarið: Alfreð vill flugvöll-
inn burt. Hann segir að landfyll-
ing undir nýjan Reykjavíkurflug-
völl á Lönguskerjum í Skerjafirði
geti kostað 10 til 20 milljarða
króna en menn megi ekki láta
þann kostnað vaxa sér í augum;
sala lóða í Vatnsmýrinni geri gott
betur en að hrökkva fyrir þeim
kostnaði.
Alfreð telur ástæðu til að skoða
nánar tillögur Sjálfstæðisflokks-
ins um eyjabyggð á sundunum en
bendir hins vegar á að þau mál
séu „ekki næsta stóra viðfangs-
efnið á sviði skipulagsmála í
Reykjavík. Þar hlýtur Vatnsmýrin
að koma á undan. Hvorki Sjálf-
stæðisflokkurinn né R-listinn geta
skotið sér undan því að taka af-
stöðu um framtíð Reykjavíkur-
flugvallar.“
Svo mörg voru þau orð.
Og mikið lifandi skelf-
ing er þægilegt að vita til
þess að alvarleg umræða
er farin af stað um þetta
efni. Hér fer saman skyn-
samlegt og arðsamt verk-
efni fyrir borgina og ríkið;
sáttalausn sem íbúar
Reykjavíkur og annarra
byggðarlaga á landinu
ættu að geta sætt sig fylli-
lega við.
Stjórnmál á Íslandi snú-
ast einna mest um þras.
Táknmynd þeirra er
tveggja manna tuð í sjón-
varpssal; hnútukast á síð-
um dagblaðanna, fýluköst
í opinskáum tímaritum.
Löngu er orðið tíma-
bært að stjórnmálaöfl sem
vilja láta taka sig alvar-
lega taki höndum saman
um framtíðarskipulag höf-
uðborgar Íslands. Miklu
betur fer á því að fulltrúar
Reykjavíkurlistans viður-
kenni að hugmyndir sjálf-
stæðismanna um eyja-
byggð eru bráðsnjallar en
að muldra ofan í bringu
sér einhvern ófögnuð um
annarra manna frum-
kvæði. Og þá fer ekki síð-
ur vel á því að fulltrúar
minnihlutans í Reykjavík grípi
hugmynd Alfreðs Þorsteinssonar
á lofti og fylgi henni eftir; þessar
tvær hugmyndir – eyjabyggð og
skerjavöllur – fara einstaklega
vel saman ... og hlúa betur að mið-
borgarkjarnanum en nokkrar aðr-
ar skipulagshugmyndir sem fram
hafa komið á undanliðnum árum.
Reykjavíkurflugvöllur verður
aldrei starfræktur í Keflavík – og
hvorki í Svínahrauni né Kapellu-
hrauni. Farþegaflug á milli byggð-
arlaga úti á landi og Reykjavíkur
verður aldrei arðvænlegt nema
móðurvöllurinn verði sem næst
stjórnsýslunni í höfuðborginni.
Þetta eru einföld sannindi sem
hafa þvælst fyrir stjórnmála-
mönnum í alltof langan tíma.
Það er tímabært að þétta
byggðina allt í kringum miðborg-
ina. Til þess þarf pólitískt þor og
áræði – og löngu tímabæra sam-
stöðu. Sjálfstæðisflokkurinn og
Alfreð Þorsteinsson hafa boðið
upp í dans. Fleiri þurfa að finna
taktinn. ■
Getur verið að allir aðrir en ráðamenn þjóðarinnar hafiáhyggjur af stöðu útflutningsgreina? Meðan fjöldaupp-sagnir dynja yfir er ekki annað að heyra en byggðamála-
ráðherrann telji ástandið ágætt á landsbyggðinni. Þar er verið að
reisa álver sem eflaust mun hafa jákvæð áhrif á atvinnulífið þar
eystra. Reyndar ekki áfallalaust, því á Reyðarfirði hefur þegar
þurft að loka fiskiðjuveri þar sem hátt gengi krónunnar er að
sliga sjávarútveginn. Verra er áfallið í þeim byggðum þar sem ál-
ver gagnast ekki, eins og á Bíldudal.
„Þetta er reiðarslag,“ sagði Jón Páll Jakobsson, sjómaður á
Bíldudal í samtali við Fréttablaðið. „Það hefur að sjálfsögðu
slæma þýðingu fyrir byggðarlagið þegar svo margir missa vinn-
una.“ Jón Páll sagði fólk almennt hætt að hugsa mikið um hvað
taki við á Bíldudal. „Baráttuandinn er alveg horfinn,“ sagði hann.
„Mjög erfitt er að yfirgefa þorpið enda ómögulegt að taka húsið
með sér.“ Bílddælingar taka ekki undir með ráðherranum um að
fólk á landsbyggðinni hafi það ágætt. Ruðningsáhrifin af álverinu
og virkjuninni fyrir austan hafa aukið áhyggjur Bílddælinga, og
fleiri.
„Fækkun starfa í innlendum samkeppnisiðnaði er af sömu rót-
um runnin og viðleitni fyrirtækja til þess að flytja störf á erlenda
grund. Það er hins vegar nefnt útrás,“ sagði Sveinn Hannesson
framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. „Það eru mörg önnur
störf en í fiskiðnaði sem eru að tapast en gætu verið arðbær. Þetta
gerist vegna firnasterkrar krónu. Ég sé eftir arðbærum störfum
eins og til dæmis Marel er að skapa í Slóvakíu. Þetta eru hátækni-
störf og Marel fjárfestir þar fremur en í Garðabæ.“
„Allir eru sammála um að orsakir ástandsins séu þrjár: Í fyrsta
lagi stóriðjustefnan, í öðru lagi skattalækkanir stjórnvalda og í
þriðja lagi ástandið á fasteignamarkaðinum. Stjórnvöld hafa
möguleika á beinum aðgerðum varðandi stóriðjustefnuna. Skyn-
samlegast væri að lýsa því yfir að nú sé nóg komið í bili og hag-
kerfinu verði gefið svigrúm til kælingar,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon formaður Vinstri grænna.
Sjávarútvegurinn er í vanda vegna þess hversu sterk krónan
er. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, hefur bent á að það sé ekki bara krónan
sem geri útgerðinni erfitt fyrir. Útvegurinn finnur mikið fyrir
veiðileyfagjaldinu, einkum og sér í lagi rækjuvinnslan og rækju-
veiðarnar. Þar mun vera mikið tap fyrir og þess vegna erfitt að
eiga á sama tíma að borga veiðileyfagjald sem leggst ofan á það
tap sem fyrir er. Óskum um að fresta innheimtu gjaldsins hefur
verið synjað. Ástæðan er eflaust sú að fólk hefur það víst svo gott
á landsbyggðinni, en ekki á Bíldudal og ekki á Stöðvarfirði og ef
varnaðarorð margra ganga eftir á vandinn eftir að aukast, en ekki
við byggingu álversins. Svo valdamenn geta áfram bent austur, en
ekki vestur, og ekki suður og ekki norður, bara austur.
5. júní 2005 SUNNUDAGUR
SJÓNARMIÐ
SIGURJÓN M. EGILSSON
Útflutningurinn er í erfiðri stöðu vegna þess hversu
sterk krónan er.
Ru›ningur
og gjaldtaka
FRÁ DEGI TIL DAGS
Mjög erfitt er a› yfirgefa florpi› enda ómögulegt a› taka húsi›
me› sér.
Taktu þátt...
í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is
og þú gætir farið frítt í leikhús - 20 miðar og 2 árskort í boði!
Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní
B
as
eC
am
p
Pr
od
uc
tio
ns
Í samvinnu við:
Arfleið Krumma
Eins og lesa má annars staðar í blaðinu
hefur Sjónvarpið gripið til þess ráðs að
fresta frumsýningu íslensks sjónvarps-
efnis. Þetta mun gert til
að koma kostnaði við
þættina Allir litir hafs-
ins eru kaldir fyrir
innan heimilda. Það
skrýtna við þetta er þó
að þegar er búið að
greiða fyrir þættina en
samkvæmt bókhalds-
reglum verður greiðslan
ekki bókfærð fyrr en
þættirnir eru sýndir.
Bókhaldið lítur því
mun betur út en
ella. Kunnugir
segja að þessa reglu megi rekja til
þeirra daga þegar Hrafn Gunnlaugsson
var yfir dagskrárdeild Sjónvarpsins. Þá
gustaði mjög um Krumma, eins og
reyndar oft áður og síðar. Eitt sem
hann gerði þá var víst að eyða mun
meira fé til kaupa á dagskrárefni en
sem nam fjárheimildum. Þá var brugð-
ið á það ráð að breyta bókhaldsreglum
þannig að þótt borgað væri fyrir þætti
eitt árið væri það ekki bókfært fyrr en á
næsta ári ef þættirnir væru ekki sýndir
fyrr en þá.
Frægi nafnlausi maðurinn
Vestan hafs hafa menn rætt mikið um
Mark Felt sem viðurkenndi á dögunum
að hann hefði verið frægasti nafnlausi
heimildarmaður blaðamanna í sög-
unni, sjálfur Deep Throat sem hefur
orðið tilefni ófárra bóka, blaðagreina
og sjónvarpsþátta – en heimildarmað-
urinn var nefndur svo eftir kunnri klám-
mynd þess tíma. Sitt sýnist hverjum
um ágæti þeirrar ákvörðunar Felt að
láta blaðamönnunum Carl Bernstein
og Bob Woodward í té upplýsingar
sem áttu mikinn þátt í að Richard
Nixon hrökklaðist af forsetastóli og
nokkrir samstarfsmenn hans enduðu í
fangelsi. Kemur þá í ljós að sumum er
enn heitt í hamsi, þar á meðal stuðn-
ingsmönnum forsetans fyrrverandi, og
kann það að staðfesta öðru fremur að
rétt var af Felt að koma upplýsingunum
á framfæri við fjölmiðla frekar en að
hætta á að málið væri þaggað niður
innan stjórnsýslunnar.
gm@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL-
SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA:
Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Vansköpu› borgarmynd
TÍÐARANDINN
SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON
Skipulagsmál ver›a
a› öllum líkindum
helsta kosningamál borgar-
stjórnarkosninganna á næsta
ári. fia› er innan vi› ár til
stefnu, svo sem eins og fimmtíu
vikur í pólitík. Og flær lí›a
hratt.
,,
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N