Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 11
milljarða en Burðarás vildi fá
hærra verð. Stjórnendur félags-
ins hafa því greinilega séð tæki-
færi í sameiningu flutningafé-
lags og flugfélags.
Kaupin komu dálítið á óvart
vegna þess að í tilkynningu frá
Burðarási frá því í febrúar
sagði að ekki væri áformað að
selja Eimskip að sinni, enda þótt
fjölmargir aðilar hafi látið í ljós
áhuga á að kaupa félagið.
En hvaða tækifæri sjá stjórn-
endur Avion og hvar liggja þau?
Magnús Þorsteinsson, aðaleig-
andi og stjórnarformaður Avion
og Eimskipa segir tækifærin
liggja víða og bendir til dæmis á
þrjú atriði sem víkja að kostnaði
félaganna.
Í fyrsta lagi fái fyrirtækið
ódýrari tryggingar vegna
stærðar sinnar og betri samn-
ingsstöðu gagnvart tryggingafé-
lögum. Kostnaður vegna trygg-
inga er umtalsverður í rekstri
félaganna. Í öðru lagi verði inn-
kaup á olíu hagstæðari fyrir fé-
lögin vegna stærðarinnar en ol-
íukostnaður er einnig umtals-
verður í rekstri félaganna. Air
Atlanta leigir vélar með olíu og
viðskiptavinir félagins bera
kostnaðinn af olíunni en félagið
ber sjálft kostnaðinn af elds-
neyti á vélum Excel Airways.
Excel Airways er leiguflugfélag
og dótturfélag Avion. Í þriðja
lagi verði fjármögnun félagsins
ódýrari.
Magnús bendir einnig á að
hægt verði að samtvinna starf-
semi Eimskipa og Avion víða um
heim en starfsstöðvar félagsins
eru 80 um allan heim.
Hafþór Hafsteinsson, for-
stjóri flugrekstrar Avion segir
sameininguna styrkja starfsemi
eignarhaldsfélagsins. Sterkar
stoði séu innan Eimskips sem
hægt sé að nýta fyrir hin félög-
in. Hann segir þó ekki stefnt að
sameiningu allra stoðdeilda en
verið sé að skoða hvernig hægt
sé að ná fram sem flestum tæki-
færum.
Magnús segir félagið geta
boðið heildarlausnir í flutning-
um. Félögin hafa haft samstarf í
flutningum en Atlanta flýgur
fraktflug frá Íslandi undir eigin
nafni.
Starfsemi félagsins verður
fjölbreyttari en áður og því
verða sveiflur í rekstrinum lík-
lega minni.
Af markaði
Eimskip hverfur nú tímabundið
af hlutabréfamarkaði en stefnt
er að skráningu félagsins fyrir
lok janúar á næsta ári. Stefnt er
að því að hluthafar Burðaráss,
sem eru tæplega 20 þúsund fái
þá bréf í Avion. Tæpir níu millj-
arðar af kaupverðinu eru borg-
aðir með bréfum í Avion og seg-
ir Magnús líklega hluta af þeim
fara áfram til hluthafa Burðar-
áss en eitthvað verði eftir í fé-
laginu.
Áður var stefnt að því að skrá
Eimskip á markað og á síðasta
aðalfundi Burðaráss greindi
Björgólfur Thor Björgólfsson
frá því að til greina kæmi að
greiða bréf í Eimskip út til hlut-
hafa Burðaráss í formi nokkurs
konar arðs. Sama virðist því
eiga við nú með bréf í Avion. Ef
ekki verður að skráningu hafa
stærstu hluthafar Avion Group
skuldbundið sig til að kaupa áð-
urnefnda hluti af Burðarási.
Talið er að það komi sér vel
fyrir félagið að allir hluthafar
Burðaráss fái bréf í félaginu og
að það sé svo stórt því að þá
verða viðskipti með félagið tíð-
ari og verðmyndun á því betri.
Magnús Þorsteinsson er nú
stærsti eigandi Avion Group en
hann keypti hlut Þóru Guð-
mundsdóttur í félaginu og
einnig keypti hann helming af
hlut Arngríms. Aðrir eigendur
eru Gunnar Björgvinsson, Ómar
Benediktsson og eitthvað af
fyrri eigendum Excel Airways.
Kaupin eru gerð með fyrir-
vara um að Avion Group fjár-
magni kaupin innan 14 daga og
Magnús telur að það verði auð-
velt. Tilboða verður leitað bæði
hjá erlendum bönkum og inn-
lendum. Hann sagði ekki sjálf-
gefið að Landsbankinn fjár-
magni kaupin en hann hefur
verið viðskiptabanki Avion,
áður Air Atlanta um tíma.
Áður stefnt á markað
Avion hefur stefnt að skráningu
í nokkurn tíma og var fyrst
greint frá því fyrir rúmu ári síð-
an. Skráning hefur dregist nokk-
uð og búist var við skráningu nú
í haust. Kaupin á Eimskip fresta
því skráningunni nokkuð.
Kauphöllin hefur lengi freist-
að Avion, eignarhaldsfélags Air
Atlanta, því árið 1999 var til-
kynnt að Atlanta stefndi á mark-
að innan 18 mánaða. Búnaðar-
bankinn Verðbréf keypti þá rúm
20 prósent í félaginu. Andri
Sveinsson, starfsmaður Samson
vann þá hjá fyrirtækjaráðgjöf
Búnaðarbankans.
Ekkert varð þó af skráningu
en félagið var þá í eigu Arn-
gríms Jóhannssonar og Þóru
Guðmundsdóttur, stofnenda
þess.
Um þessar mundir eru mark-
aðsaðstæður hagstæðar fyrir
nýskráningar og verða það eitt-
hvað áfram.
Verðmæti félagins gæti verið
í kringum 50 milljarða króna.
Mikil veltuaukning
Velta Avion eykst hratt en hagn-
aðurinn virðist ekki vaxa jafn
hratt. Hafþór segist vera mjög
sáttur við afkomu ársins í fyrra.
Stjórnendur félagsins hafi ekki
átt von á svo hröðum viðsnún-
ingi í fluggeiranum. Einnig
bendir hann á að hátt eldsneytis-
verð hafi ekki komið jafn hart
niður á flugfélögum og vænta
mátti vegna þess að aukin eftir-
spurn hafi komið á móti, það sjá-
ist í afkomutölum þeirra. Tap
ársins 2003 segir Hafþór vera
vegna tiltektar í efnahagsreikn-
ingnum áður en félagið verður
skráð. Aðallega var það afskrift
viðskiptakrafna sem félagið
taldi sig ekki fá greiddar sem
skýrir tapið.
Rekstur Eimskips hefur
einnig verið bættur mikið að
undanförnu og hefur félagið
vaxið með kaupum á öðrum fé-
lögum. Ágætlega hefur tekist
til þar og hefur afkoma rekstr-
arins batnað.
Vinna er framundan hjá
stjórnendum félagins við að
koma auga á tækifærin sem fel-
ast í kaupum Avion á Eimskip og
í að styrkja rekstur fyrirtækis-
ins. Frekari kaup á félögum eru
ekki útilokuð og fagna íslenskir
fjárfestar komu félagsins á
markað þrátt fyrir að einhverjir
hefðu líklega viljað sjá tvö félög
í stað eins. dogg@frettabladid.is
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 11
Sumartilboð í Sony Center
Alvöru klippihugbúnaður og 3 spólur fylgja!
DSR-HC22
Stafræn myndavél
• 2,5 snertiskjár
• 20x optical Carl Zeiss linsa
• Tengistöð einfaldar allar tengingar
4.995 krónur á
mánuði vaxtalaust*
59.940 krónur staðgreitt.
DSR-PC55
Stafræn myndavél
• 3" snertiskjár
• 12x optical Carl Zeiss linsa
• Tengistöð einfaldar allar tengingar
7.495 krónur á
mánuði vaxtalaust*
89.940 krónur staðgreitt.
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
AFKOMA AVION GROUP SÍÐUSTU ÁR Í – MILLJÓNUM KRÓNA
Velta Hagnaður
Félag 2004 2003 2004 2003
Air Atlanta 21.380 14.495 541 -910
Íslandsflug 8.526 5.510 178 102
Excel Airways 38.601 29.906 1.766 1.125
Samtals Avion Group: 68.507 49.911 2.485 317
Eimskip 24.063 23.284 991 536
Sameinað félag: 92.570 73.195 3.476 853