Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 17
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 17
Hætt er við að þorri almennings
þurfi að bæta við sig eins og
tveimur störfum eða selja íbúð
sína standi hugur til að fjárfesta
í dýrustu tegund af húsbílum
sem seldir eru hérlendis. Er þar
um bíl af tegundinni Hymer að
ræða sem Evró ehf. á Grensás-
vegi selur þessa dagana á tæpar
þrettán milljónir króna.
Hægt er að fá bílalán til 84 mán-
aða fyrir gripnum, sem gerir um
155 þúsund krónur á mánuði auk
vaxta, en fyrir vikið þarf um eng-
an að væsa sem ferðast í slíkum
bíl. Sturtur inni og úti, fallegt sal-
erni, sjónvarpsflatskjár, stór kæli-
skápur, öflugt hitakerfi og allt sem
nokkurn mann getur vanhagað um.
Fer þeim fjölgandi hér á
landi sem selja húsbíla enda
vaxandi eftirspurn ár frá ári.
Verð er æði mismunandi eftir
gæðum og búnaði hvers bíls fyr-
ir sig en almennt má fá góða al-
menna húsbíla frá fimm milljón-
um króna og upp úr. Er það ekki
ósvipuð upphæð og greiða þarf
fyrir sæmilegan sumarbústað
en þá á eftir að taka tillit til
eldsneytisnotkunar og þar sem
flestir húsbílar nota dísilolíu er
hætt við að mörgum bregði við í
júlí þegar ný lög um olíugjald
taka gildi. Mun þá lítri af dísilol-
íu verða á svipuðu verði og lítr-
inn af bensíni.
Svo virðist sem þetta sé ekki
efst í huga þeirra sem hug hafa á
að kaupa sér einn húsbíl enda er
sömu sögu að segja frá öllum um-
boðunum; salan milli ára hefur
margfaldast og nokkrar vinsæl-
ustu tegundir húsbíla eru þegar
uppseldar. - aöe
LÆTUR EKKI MIKIÐ YFIR SÉR Dýrasti húsbíll landsins er þessi Hymer sem Evró sleur.
Verðmiðinn hefur ekki komið í veg fyrir að fjölmargir hafa forvitnast og eru fleiri en eitt
umboð að skoða innflutning á enn dýrari tegundum á næsta ári.
HELSTU SELJENDUR HÚSBÍLA:
Netsalan Knarrarvogi 4
Húsbílar frá 4,1 – 6,2 milljóna
Evró ehf. Grensásvegi
Húsbílar frá 4,7 – 12,9 milljóna
Seglagerðin ÆgirEyjaslóð 7
Húsbílar frá 3,9 – 7,9 milljóna
Víkurverk Tangarhöfða 1
Húsbílar frá 4,4 – 8,1 milljónar
Sala á húsbílum hér á landi margfaldast milli ára:
Sá d‡rasti á flrettán milljónir
White giftist
Karen Elson
Söngvari hljómsveitarinnar White
Stripes, Jack White, giftist unn-
ustu sinni á kanó í Amazonfljóti í
Brasilíu. Jack giftst bresku fyrir-
sætunni Karen Elson síðastliðinn
miðvikudag og Meg White, fyrr-
verandi eiginkona Jacks var brúð-
armeyja við athöfnina. Giftingin
var framkvæmd af Shaman-töfra-
presti en strax eftir brúðkaupið
fóru þau og fengu blessun ka-
þólsks prests í kirkju sem kallast
Igreja Matric. Karen hefur
verið kölluð „sú skrítna“
í fyrirsætubransanum
vegna mjög sérstaks
útlits og hin nýbök-
uðu hjón eiga það
sameiginlegt að vera
mjög föl. Elson
kemur fram í
nýjasta myndbandi
hljómsveitarinnar
við lagið Blue
Orchid en að öðru
leyti hefur sam-
band þeirra farið
mjög leynt. Þess-
ar fréttir koma að-
eins nokkrum vik-
um á eftir fregn-
um af brúðkaupi Renee Zellweger
en hún og Jack voru par og eru til-
tölulega nýhætt saman. Annars
eru White Stripes að fara að gefa
út sína fimmtu plötu 6. júní sem
mun heita Get Behind Me Satan. ■
JACK WHITE hefur getið sér gott orð sem
leikari og kom meðal annars fram í kvik-
myndinni Coffee and Cigarettes.
KAREN ELSON
var mikið strítt í
skóla fyrir skrítið
útlit sitt.
Googlað á netinu
Vinsæl veiki
Hermannaveiki hefur verið mik-
ið í umræðunni undanfarið enda
hafa greinst óvenju mörg tilvik
hennar á þessu ári. Þegar her-
mannaveiki er slegið inn á
Google þá koma 1.390 færslur.
Hermannaveiki er ein tegund
lungnabólgu og þegar því orði er
googlað fást 562 færslur. Á ensku
heitir hermannaveiki legionary
disease og þá fást mun fleiri síð-
ur, eða 17.400. Það er hins vegar
bakterían Legionella sem veldur
hermannaveiki og um hana finn-
ast langflestar færslur, því þær
eru hvorki fleiri né færri en
754.000. ■