Fréttablaðið - 05.06.2005, Síða 22
Aron Pálmi Ágústsson situr ístofufangelsi í Beaumont íTexas í þrjátíu og fimm
stiga hita. Hann var þrettán ára
gamall þegar hann var dæmdur til
tíu ára betrunarvistar af dómstóli
í Texas í Bandaríkjunum. Hann
hefur afplánað tæp átta ár af
dómnum en fékk skilorðsbundna
reynslulausn árið 2002. Hann þarf
þó að lúta ýmsum reglum sem
settar eru af fangelsisyfirvöldum
og hefur takmarkað frelsi.
Þegar Aron Pálmi var þrettán
ára gamall átti sér stað barnsleg
yfirsjón hans í leik við annað
barn. Yfirsjón sem flestir hefðu
litið á sem mistök í leik barna en
það háttaði svo til að líf Arons
Pálma tók stefnu sem engan hefði
órað fyrir. Dómari í Texas leit
málið alvarlegri augum en
tilheyrir þeim viðmiðum og
gildum sem Íslendingar hafa van-
ist og dæmdi Aron Pálma til
þungrar refsivistar.
„Ég gat ekki ímyndað mér að
ég ætti eftir að verða dæmdur til
tíu ára fangelsisvistar þegar ég
var í dómssalnum. Ég hélt
kannski að ég yrði settur í út-
göngubann eða eitthvað álíka. Ég
vissi ekki að það sem ég gerði var
rangt. Ég var bara barn. Þegar
dómurinn var lesinn upp áttaði ég
mig ekki heldur á alvarleika máls-
ins. Það var ekki fyrr en ég sá
fimmtán ára systur mína bresta í
grát í dómssalnum að ég skildi að
það var eitthvað óeðlilegt að ger-
ast,“ segir Aron Pálmi. Hann hóf
afplánun og bjó sig undir líf innan
veggja fangelsa Texas-fylkis án
gruns um hvað koma skyldi.
Niðurlæging og fangelsisgirðing-
ar
Afplánun Arons Pálma hófst og
fyrstu fjörutíu og fimm dagana
var hann vistaður innan um fjöru-
tíu einstaklinga sem svipað var
ástatt um; þeir höfðu framið ýmis
afbrot og hlotið dóm. Sumir höfðu
framið morð en aðrir höfðu stolið
bíl og tóku út sína refsingu.
„Á þessum stað var fólk brotið
niður. Þarna vorum við saman um
fjörutíu manns í einum sal. Þú
gerðir þarfir þínar fyrir framan
alla aðra og fékkst úthlutað
fimmtán salernisbréfum. Þú fórst
líka í sturtu fyrir framan aðra
fanga. Það var bannað að tala við
aðra og ef þú gerðir það þá var
þér refsað með því að láta þig
standa úti í horni í klukkutíma.
Þetta var upphafið á dvölinni og
mér leist ekki á það sem koma
skyldi,“ segir Aron.
Hann var svo fluttur í Gidd-
ings-fangelsið sem er í um fjöru-
tíu mínútna keyrslu frá Austin í
Texas. Þar eru vistaðir um 430
fangar af yngri kynslóðinni og er
fangelsið skilgreint sem
barnafangelsi með hámarks ör-
yggisgæslu. Fangaverðir eru bún-
ir tækjum og tólum til að bregðast
við ástandi sem upp kann að koma
en þar dvaldi Aron Pálmi næstu
sjö árin.
„Þarna eru vistaðir harðsvír-
ustu glæpamennirnir. Þetta er
kallað skóli en svæðið er afmark-
að með háum girðingum og er
auðvitað ekkert nema fangelsi. Ég
lauk ýmsum prófum þarna og
lærði eins og aðrir. Ég lauk prófi í
tölvufræði og hafði gaman af
náminu. Ég hef gaman af því að
læra og í framtíðinni langar mig
að ná mér í meistaragráðu í hegð-
unarsálfræði. Mér hefur alltaf
fundist ég hafa skilning á því
hvernig fólki líður og mig langar
að koma fólki til hjálpar. Áhuginn
er auðvitað líka til kominn út af
minni eigin reynslu en mig hefur
alltaf dreymt um að geta hjálpað
öðrum,“ segir Aron. Hann segir
lífið innan fangelsismúranna hafi
verið blanda af vinnu og námi.
Aron Pálmi hafði tvö störf með
höndum. Annað í eldhúsinu og hitt
í líkamsræktinni. Hann segir að
störfin hafi gert það að verkum að
tíminn leið hraðar en hann hafi þó
oft bundið vonir við frelsi og tím-
inn liðið hægt á köflum.
Vonaðist eftir lausn
„Ég fékk heimsóknir og foreldrar
mínir komu tvisvar í mánuði. Svo
komu frænkur og frændur og
meðal annars amma mín frá Ís-
landi sem er dáin í dag. Þegar for-
eldrar mínir komu máttum við
fara af svæðinu í þrjár klukku-
stundir í hverri heimsókn en fyrst
eftir að ég hafði verið í fangelsinu
í fimm ár. Það var mjög gaman að
fá þau í heimsókn en þetta var
erfitt fyrir þau eins og fyrir mig.
Þau sáu mig í aðstöðu sem þau
gátu ekkert gert í,“ segir Aron
Pálmi. Foreldrar Arons Pálma eru
íslenskir en stjúpfaðir hans er
bandarískur en Aron flutti til
Bandaríkjanna tveggja ára gam-
all.
Hann segist oft hafa bundið
vonir við frelsi þegar hann dvald-
ist í fangelsinu. Slíkt hafi verið
gefið í skyn af starfsmönnum
fangelsisins en það hafi verið
fölsk fyrirheit sem olli honum
gremju.
„Þau lugu einfaldlega. Auðvit-
að trúði maður því sem manni var
sagt. En svo var raunin önnur.
Einn starfsmaður fangelsisins
sagði við mig að hann byggist við
því að mér yrði sleppt fljótlega.
En ekkert gerðist. Ég sá svo
hversu mikið hatur og illska var í
þessu fólki þegar við fórum fyrir
dóm og verið var að reyna fá mig
færðan yfir í fangelsi fyrir full-
orðna. Tilhugsunin um það var
hræðileg enda hefur Texas orð á
sér fyrir að hafa einhver hræði-
legustu fangelsi í öllum Banda-
ríkjunum. Ofbeldið er ömurlegt
og nauðganir eru dagleg uppá-
koma. Ég vildi frekar vera dauður
heldur en að fara í þessi fangelsi.
En þau reyndu allt til að koma
mér í fangelsið. Þau breyttu skjöl-
um, lugu og eitt vitni þeirra var
staðið að því að bera ljúgvitni. Það
var sálfræðingur sem átti að vitna
gegn sinni eigin sannfæringu og
sagði lögmanni mínum frá því. En
svo vildi hún ekkert viðurkenna
en hún var eiðsvarin og dómarinn
sá í gegnum hana. Ég skildi reynd-
ar aldrei af hverju þeir voru að
reyna fá mig færðan yfir í annað
fangelsi. Hegðun mín var ekkert
óeðlileg. Kannski fannst þeim ís-
lensk yfirvöld vera of afskipta-
söm af þeirra málum. Kannski
fannst þeim einkennilegt að ein-
hver skyldi dirfast að ráðast gegn
sjálfu Texas,“ segir Aron Pálmi.
Með ökklaband í stofufangelsi
Aron Pálmi hlaut reynslulausn í
september 2002. Þá var hann
færður á áfangaheimili þar sem
heimilislausir einstaklingar á
reynslulausn eru vistaðir þar til
þeir hafa fundið sér heimili eða
finna lausn á húsnæðivanda sín-
um sem fangelsisyfirvöld fallast
á.
„Við vorum 30 manns í hverju
hjólhýsi og ég var langyngstur af
öllum föngunum þarna. Við feng-
um sama matinn í hverju hádegi
sem var samloka með kjötafgöng-
22 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Stökktu til
Portúgal
8. eða 22. júní frá kr. 29.990
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á
síðustu sætunum til Portúgal 8. og
22. júní. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla sumarleyfisstað. Þú bókar
sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Síðustu sætin
Verð kr. 29.990 í viku
kr. 39.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Stökktu tilboð 8. og 22. júní.
Verð kr. 39.990 í viku /
kr. 49.990 í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í
1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 8. og
22. júní.
Í BEAUMONT Í TEXAS Aron Pálmi á sér þann draum að flytjast til Íslands og hefja nýtt líf.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
O
H
N
W
ES
SL
ER
Aron Pálmi Ágústsson bí›ur eftir flví a› komast til Íslands. Hann hefur vari› sí›ustu átta árum ævinnar bak vi› lás og slá í fangelsum
Texas-ríkis í Bandaríkjunum. Hann er bjarts‡nn á framtí›ína, ætlar a› sækja sér mennntun og móta sér framtí› í ö›ru umhverfi.
Hjálmar Blöndal átti samtal vi› Aron Pálma sem sag›i frá fangelsum í Texas, daglegu lífi og draumnum um a› komast heim til Íslands.
ARON PÁLMI ÁGÚSTSSON „Það hefur
ekkert upp á sig að líta til baka. Í dag veit
ég að það sem ég gerði er rangt.
Ég hugsa og bið til þess einstaklings sem
ég braut gegn.“
ÉG VIL NÝTT LÍF Á ÍSLANDI