Fréttablaðið - 05.06.2005, Blaðsíða 52
28 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Þ riðja plata bresku hljóm-sveitarinnar Coldplay, X&Y,kemur út á mánudag. Plöt-
unnar hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu, enda hafa
þær tvær síðustu, Parachutes og
A Rush of Blood Through the
Head, notið gríðarlegar hylli bæði
á meðal gagnrýnenda og almenn-
ings.
Tilfinningaþrungnir og grípandi
Coldplay var stofnuð árið 1998 í
London og strax ári eftir gerði
sveitin útgáfusamning við Parlo-
phone. Frumburðurinn Para-
chutes kom út 2000 og með tilfinn-
ingaþrungnum lögum á borð við
Yellow og Trouble sló Coldplay
umsvifalaust í gegn. Tveimur
árum síðar kom A Rush of Blood
Through the Head út og vakti ekki
síður athygli fyrir innihaldsríkar
og grípandi lagasmíðar. Þessar
tvær plötur hafa selst í yfir 16
milljónum eintaka og gert Cold-
play að einni af allra stærstu
hljómsveitum heimsins. Hér á
landi hafa báðar plöturnar náð
gullsölu; Parachutes hefur selst í
8.500 eintökum og A Rush of
Blood to the Head í 6.000 eintök-
um. Liðsmenn Coldplay eru líka
vel kunnugir landi og þjóð því
þeir hafa þegar haldið tvenna tón-
leika fyrir fullu húsi í Laugardals-
höll.
Útgáfudeginum frestað
Þeir félagar, Chris Martin, Jonny
Buckland, Guy Berryman og Will
Champion, tóku sér langan tíma í
gerð nýju plötunnar og frestuðu
útgáfudegi nokkrum sinnum
vegna þess að þeir voru ekki full-
komlega ánægðir með útkomuna.
„Það sem við vorum að gera var
bara ekki nógu gott,“ segir gítar-
leikarinn Buckland. „Lögin hljóm-
uðu eins og við hefðum ekkert
unnið að þeim saman. Það er alltaf
hætta á að leiðast út í fullkomnun-
aráráttu og gleyma hvað það er
sem skiptir mestu máli.“ Söngvar-
inn Martin er sammála Buckland.
„Það vantaði alla sál í þetta hjá
okkur,“ segir hann. „Þannig að við
ákváðum að hlaða batteríin á nýj-
an leik, fara í gamla æfingarher-
bergið okkar með bjórslettum á
gólfinu og hljómsveitarnöfn krot-
uð á veggina og bara spila sam-
an.“
Átján mánaða upptökum lýkur
Eftir þetta fóru hlutirnir að
smella saman. Þeir sögðu skilið
við upptökustjóra sinn til langs
tíma, Ken Nelson, og tóku upp
nokkur lög með Danton Supple
sem hljóðblandaði síðustu plötu
þeirra. Hljómurinn var hrár og
orkuríkur og svo virtist sem
hjartað og sálin væru komin aftur
í sveitina. Eftir átján mánaða upp-
tökumaraþon í átta hljóðverum í
Chicago, New York, Los Angeles,
Liverpool og London er gripurinn
loksins á leiðinni í búðir og virðast
þeir félagar vera yfir sig hrifnir.
Martin hefur þegar lýst því yfir
að það verði erfitt að toppa þessa
plötu og Buckland virðist vera á
svipuðu máli. „Við vildum prófa
nýja hluti og þróa hljóminn okkar
áfram en við einbeitum okkur
ennþá að lögunum sjálfum og svo
hljómar röddin í Chris frábær-
lega,“ segir Buckland. „Allir eru
að standa sig betur en nokkru
sinni fyrr.“
Stærsta tónleikaferðin til þessa
Til að fylgja eftir nýju plötunni,
sem fékk nýverið fullt hús stiga í
tímaritinu Q, ætlar Coldplay í
stærstu tónleikaferð sína um
heiminn til þessa. Hún byrjar í
Hamborg í Þýskalandi 15. júní og
heldur síðan áfram fram eftir ári.
Á meðal þeirra sem munu hita
upp fyrir sveitina í Evrópu eru
Interpol, Supergrass, Doves, El-
bow og Morning Runner.
Hljómurinn flróa›ur áfram
firi›ja plata bresku hljómsveitarinnar Coldplay, X&Y, kemur í bú›ir á mánudag.
Tónlistarunnendur hafa be›i› spenntir eftir plötunni og flá flyrstir í einn eitt
stórvirki› frá sveitinni. Freyr Bjarnason hita›i upp fyrir plötuna.
COLDPLAY Hljómsveitin var stofnuð fyrir sjö árum og er um þessar mundir að gefa út sína þriðju plötu.
CHRIS MARTIN Söngvarinn Chris Martin hefur tvisvar sinnum haldið tónleika hér á landi.