Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 58
5. júní 2005 SUNNUDAGUR34
Ásgeir Sigurvinsson landsli›sfljálfari var mjög ánæg›ur me› spilamennsku íslenska li›sins í gær flrátt fyr-
ir tap. Hann hrósar ungu leikmönnunum sérstaklega.
Mikið varið í ungu strákana
FÓTBOLTI „Við spiluðum glimrandi
leik og meira get ég ekki krafist,
ég hef ekkert yfir leikmönnum að
kvarta. Grétar Rafn, Gunnar Heið-
ar, Halli og Kári eru allt drengir
sem gefa sig alveg hundrað pró-
sent í þetta og stimpluðu sig vel
inn. Svo áttum við langbesta mann-
inn á vellinum, Eið Smára, sem
sýndi hvað eftir annað frábær til-
þrif.“ sagði Ásgeir Sigurvinsson,
annar þjálfara íslenska
landsliðsins að leik loknum.
Mjög sáttur við leik liðsins
„Ég er mjög sáttur við leik okk-
ar manna en því miður voru engin
stig skilin eftir handa okkur. Við
áttum svo sannarlega skilið að fá
allavega eitt ef ekki fleiri stig úr
þessum leik. Við komumst yfir en
fengum síðan á okkur vafasamt
víti, þetta var erfitt þar sem við
misstum nánast þrjá af velli í fyrri
hálfleik vegna meiðsla.
Eiður fékk dauðafæri til að
koma okkur yfir en við vorum
óheppnir þar. Svo missum við Ólaf
Örn af velli þegar hann fær sitt
annað gula spjald í ódýrari kantin-
um og aftur fengum við á okkur
víti en ég sá það ekki nægilega vel
af bekknum. Það var samt gaman
að sjá okkur komast inn í leikinn
einum manni færri og jafna, það
var mjög ánægjulegt hvað þessir
drengir sýndu í dag og ég sé enga
ástæðu til að vera eitthvað að ör-
vænta með það. Það var virkilega
súrt að fá þetta mark síðan á okkur
sem tryggði þeim sigurinn, það
var af ódýrari gerðinni.“ sagði Ás-
geir.
Ásgeir vildi lítið setja út á dóm-
arana. „Það vill oft vera svona með
þessa dómara að sunnan, súrt að fá
spjöld fyrir mótmæli, ég spurði til
dæmis Indriða hvað hann hefði
sagt en hann sjálfur sagðist bara
ekki vita það. Svo fær Ólafur gult
spjalt þegar það er skotið í hann og
svo kemur annað gult í seinna vít-
inu, er það ekki nógu mikil refsing
að fá á sig vítaspyrnu?“
Mikið um forföll
Það verður mikið um forföll í
leiknum á miðvikudaginn og sagði
Ásgeir að það þyrfti eflaust að
bæta eitthvað í hópinn fyrir þann
leik. „Við höfum unga og efnilega
leikmenn sem sýndu að mikið er
varið í þá. Ég hef ekki trú á að Pét-
ur Marteinsson og Gylfi Einarsson
geti leikið á miðvikudag. Svo er
spurning hvort Grétar Rafn
Steinsson verði leikhæfur en hann
stimplaði sig vel inn í leikinn.“
elvar @frettabldid.is
Lothar Matthaus, þjálfari ungverska landsliðsins:
FÓTBOLTI „Ég er afar ósáttur við
leik minna manna í dag og þó við
höfum fengið þrjú stig, var þetta
ekki knattspyrna sem við vorum
að spila þarna úti. Ég er afar von-
svikinn og ég verð eiginlega að
biðja Íslendinga afsökunar, því
þið voruð með stærra hjarta en
við, betra hugarfar og betri
knattspyrnu. Ég er því afar hissa
á því að við skulum hafa unnið
þennan leik,“ sagði Lothar Matt-
haus, þjálfari Ungverja eftir
leikinn í gær. Við spurðum hann
hvað honum hefði fundist við um
vítaspyrnudómana tvo.
„Því miður var ég staðsettur
svo langt frá atvikunum að ég er
ekki dómbær á það. Mér skilst að
um hendi og brot hafi verið að
ræða, en ég verð að sjá það í sjón-
varpinu áður en ég get dæmt um
það að fullu. Það var heppni að
við skyldum fá þessi víti og ná að
stela sigrinum hérna, því við vor-
um að leika skelfilega og ég þarf
greinilega að lesa hraustlega yfir
hausamótunum á mínum mönn-
um. Við þurfum að fara yfir af
hverju menn virkuðu svona latir,
þreyttir og áhugalausir inni á
vellinum. Ég hef skamman tíma
til að vinna með liðið í þessum
landsleikjum og því verðum við
að bregðast skjótt við og laga
þessa hluti. Ungverjar hafa stóra
drauma og miklar væntingar til
liðs síns og við verðum svo sann-
arlega að bregðast skjótt við ef
við eigum að standa undir þess-
um væntingum,“ sagði þjálfar-
inn. baldur@frettabladid.is
Ba› Íslendinga afsökunar
ÓRÉTTLÆTI Indriði Sigurðsson var ekki
ánægður með dómaratríóið í gær.
ÞAKKAÐ FYRIR LEIKINN Kollegi Eggerts hjá ungverska knattspyrnusambandinu gat ekki
annað en huggað Eggert eftir þennan ósanngjarna sigur sinna manna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MARK Í UPPSIGLINGU Eiður Smári er hér um það bil að skora fyrsta mark íslenska liðsins
í gær eftir að Gylfi Einarsson vann tæklingu í teignum. FRÉTTABLAÐIÐ/PALLI
SÁRT AÐ FÁ EKKERT STIG Landsliðsþjálfarinn Ásgeir Sigurvinsson var ánægður með
spilamennsku íslenska liðsins en liðið átti skilið að fá öll þrjú stigin í gær. Ísland hefur því
ekki náð að vinna enn þrátt fyrir að sex leikjum sé lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Indriði Sigurðsson eftir leik:
Miki› órétt-
læti í flessu
FÓTBOLTI „Eftir þennan leik er orð-
ið óréttlæti það sem fyrst kemur
upp í hugann. Við vorum að spila
þetta vel og börðumst allan tím-
ann, vorum miklu betri. Svo má
setja stórt spurningamerki við
það að gefa gul spjöld í báðum
vítaspyrnudómunum.“ sagði Ind-
riði Sigurðsson að leik loknum.
„Ég er langt í frá ánægður með
þetta dómaratríó á þessum leik.
Strax í byrjun er annar línuvörð-
urinn búinn að hóta mér gulu
spjaldi fyrir eitthvað sem ég veit
ekki hvað var. Svo nær hann að
gefa mér það, ég fékk þarna gult
spjald fyrir ekki neitt. Ég sagði
kannski eitthvað upphátt með mér
en ekkert sem beint var til hans,
hann hefur bara tekið það til sín.
Þetta var samt ekkert sem verð-
skuldaði gult spjald.“ sagði Ind-
riði. „Völlurinn var nokkuð erfið-
ur en þrátt fyrir það náðum við
góðu samspili, þetta var besti leik-
ur okkar í langan tíma. Við náðum
að jafna og það var ansi súrt að
missa það síðan niður, það var
ennþá mikill sigurvilji í okkur og
við vorum líklegri til að skora ef
eitthvað var.“ -egm
VEL VAFINN Grétar Rafn Steinsson sést hér
með óvenjulegt höfuðfat. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Grétar Rafn Steinsson:
Svekkjandi
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, var svekktur:
Samt stoltur af strákunum
FÓTBOLTI Við spurðum Grétar Rafn
Steinsson fyrst hvernig hann væri
í höfðinu eftir höggið þunga sem
hann fékk í leiknum. „Ætli það
hafi ekki bara gert mér gott, þá
lagast maður kannski eitthvað
þarna uppi,“ sagði Grétar í kald-
hæðnum tón, greinilega
hundsvekktur yfir tapinu.
„Þetta eru einhver fjögur til sex
spor sem þarf að sauma í þetta á
eftir. Það er ömurlega svekkjandi
að þurfa að vera út af meira og
minna allann fyrri hálfleikinn út
af einhverju rugli, þegar er verið
að gera að sárum manns og þurfa
svo að vera inni í klefa í síðari
hálfleiknum. Ég er búinn að vera
lengi að bíða eftir tækifærinu
mínu og það er leiðinlegt að það
skuli fara svona, “ sagði Grétar,
sem var með höfuðið vel vafið inn
í sárabindi eftir leikinn eftir sam-
stuðið á vellinum. -bb
FÓTBOLTI Eggert Magnússon var
ekki síður svekktur en aðrir með
tapið gegn Ungverjum í gær.
„Þetta var mjög óverðskuldað
tap í dag, liðið var að spila vel og
því var mjög svekkjandi að tapa
þessu. Eins og strákarnir lýsa
þessu atviki þegar fyrra vítið er
dæmt, er mér sagt að það hafi
verið metri í höndina á honum og
hann hefði því líklega þurft að
saga hana af sér til að forðast
spjaldið. Svo fer auðvitað jafn-
vægið dálítið úr liðinu þegar við
missum mann út af, eftir að hafa
verið miklu betri aðilinn á vellin-
um. Ég var að tala við Matthaus
áðan og hann sagðist aldrei hafa
verið eins heppinn í knattspyrnu-
leik eins og hér í dag og sagði sína
menn hafa verið að leika skelfi-
lega.
Ég er engu að síður mjög stolt-
ur af strákunum og fannst þeir
spila mjög vel. Ég get ekki ætlast
til meira af þeim, en auðvitað
verður að vera einhver smá
heppni með okkur í þessu líka, en
í dag var það bara óheppnin sem
elti okkur og ef ég á að vera alveg
heiðarlegur man ég nú ekki eftir
annarri eins óheppni í landsleik
og hér í dag,“ sagði Eggert Magn-
ússon, formaður KSÍ -bb
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
Vináttulandsleikur í gær:
Fjögur fl‡sk
FÓTBOLTI Þjóðverjar skoruðu fjögur
mörk í sigri á Norður Írum í
vináttulandsleik í Belfast í gær.
Michael Ballack skoraði tvö
markanna, annað þeirra úr víti, en
mörkin skoruðu þeir Gerald
Asamoah og Lukas Podolski.
Þjóðverjar léku manni færri frá
15. mínútu þegar Robert Huth,
leikmanni Chelsea, var vikið af
velli fyrir að verja með hendi á
marklínu. -óój