Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 61
SUNNUDAGUR 5. júní 2005 37
Enska úrvalsdeild-arliðið Tottenham
hefur rekið Danann
Frank Arnesen frá
störfum en hann
hefur haft yfirumsjón
með knattspyrnu-
málum Tottenham
síðasta árið. Arnesen
er sakaður um að hafa á laun átt
viðræður við Chelsea og með því
brotið reglur enska knattspyrnu-
sambandsins. Þetta er í annað
skiptið á skömmum tíma sem
Chelsea er uppvíst að því að falast
ólöglega eftir leikmönnum sem
samningsbundnir eru öðrum
félögum.
Þórey Edda Elísdóttir stangar-stökkvari stökk 4.18 metra og
varð í 5. til 6. sæti á alþjóðlegu
stigamóti í frjálsum íþróttum í Sevilla
í gær en hún sigraði
Smáþjóðaleikanna á fimmtudaginn
með stökki upp á 4,40 metra sem
var Smáþjóðaleikamet.
Belgíska tennsidrottningin JustineHenin-Hardenne vann opna
franska meiataramótið í tennis í
annað sinn í gær en hún var
úrslitaleikinn gegn frönsku konunnni
Mary Pierce af miklu öryggi í tveimur
settum, 6-1 og 6-1.
Hafsteinn ÆgirGeirsson slasaði í
götuhjólreiðum á
Smáþjóðaleikunum
en í upphafi annars
dags datt einn
keppandi fyrir framan
hann með þeim
afleiðingum að
Hafsteinn þurfti að snarbremsa og
datt. Hann var fluttur á spítala með
sjúkrabíl og eftir ítarlega skoðun og
myndatöku var hann settur í gifs frá
ökkla og upp að læri. Læknir
hópsins, Ágúst Kárason, skoðaði
myndirnar og mat stöðu Hafsteins
þannig að hann væri ekki brotinn
eða alvarlega slasaður.
ÚR SPORTINU
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Sunnudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
16.00 KS og Víkingur R. mætast á
Siglufirði í 1. deild karla.
16.00 Stjarnan og Tindastóll
mætast í Garðabænum í 2. deild
karla.
■ ■ SJÓNVARP
10.50 Handbolti gegn
hörmungum á RÚV.
11.35 Hnefaleikar á Sýn. Kostya
Tszyu – Ricky Hatton. (e)
15.30 Golf á Sýn. Memorial
Tournament (e)
19.00 Golf á Sýn. Bein útsending
frá Memorial Tournament.
22:00 Helgarsportið á RÚV.
22.00 Hnefaleikar á Sýn. Kostya
Tszyu – Ricky Hatton. (e)
22:15 Smáþjóðaleikarnir á RÚV.
(1:5)
00.30 NBA körfuboltinn á Sýn.
Detroit – Miami. (e)
Sex leikmenn frá FH í liðinu
Daði Lárusson, FH: Hefur fengið fæst mörk á
sig. Traustur og reyndur markvörður.
Guðmundur Sævarsson, FH: Skemmtilegasti
bakvörðurinn í deildinni. Fljótur og góður
sóknarlega.
Auðun Helgason, FH: Mjörg sterkur í ná-
vígjum og mikill keppnismaður.
Tommy Nielsen, FH: Les leikinn vel og gefur
góðar sendingar. Góður stjórnandi.
Bjarni Ólafur Eiríksson, Val: Líkamlega sterk-
ur leikmaður. Er með góðar sendingar og getur
auðveldlega skorað mörk.
Helgi Valur Daníelsson, Fylki: Duglegur og
skynsamur leikmaður. Heldur bolta vel.
Dennis Siim, FH: Mjög sterkur í loftinu, góðar
sendingar og hefur batnað með hverjum leik.
Guðmundur Benediktsson, Val: Hugmynda-
ríkur og óútreiknanlegur. Skorari og leggur auk
þess upp mörkin.
Tryggvi Guðmundsson, FH: Fæddur marka-
skorari. Klókur og keppnismaður mikill.
Guðmundur Steinarsson, Keflavík: Frá-
bær skotmaður, grimmur og fljótur að fram-
kvæma hlutina.
Matthías Guðmundsson, Val: Fljótur, vinnu-
samur og hefur bætt sig í markaskorun.
„Þjálfari þessa liðs gæti verið í kaffi allan
leikinn og það kæmu margir að horfa á
það því það væri stórskemmtilegt.“
Daði
Siim
4-3-3
LIÐIÐ MITT > NJÁLL EIÐSSON BÝR TIL ÚRVALSLIÐ 1. TIL 4. UMFERÐAR LANDSBANKADEILDARINNAR
Guðmundur Auðun Tommy Bjarni
Guðmundur B.
Helgi Valur
Matthías Tryggvi
Guðmundur S.
Enn ekkert gull í körfuboltanum
KÖRFUBOLTI Körfuboltalandsliðin
þurftu bæði að sætta sig við silfur
á Smáþjóðaleikunum í Andorra og
lengist því biðin eftir gullinu um
að minnsta kosti tvö ár í viðbót.
Silfrið kom í hús hjá körlunum í
gær þegar íslenska liðið vann 12
stiga sigur á San Marínó, 94-82, í
fjórða og síðasta leik sínum.
Magnús Þór Gunnarsson skor-
aði 27 stig í leiknum og Hlynur
Bæringsson bætti við 17 stigum.
Þeir Magnús og Hlynur voru tveir
stigahæstu menn íslenska liðsins á
Smáþjóðaleikunum, Magnús Þór
var með 17,5 stig að meðaltali í leik
og Hlynur skoraði 16 stig og tók 10
fráköst í leik. Nýi Íslendingurinn
Darrel Lewis skoraði hinsvegar
bara 9,3 stig að meðaltali og varð
fjórði stigahæstur á eftir Sigurði
Þorvaldssyni sem skoraði 10,8 stig
í leik.
Ísland hefur bara unnið eitt gull
á síðustu sex leikum og það unnu
stelpurnar á heimavelli 1997.
Karlalandsliðið hefur ekki unnið
Smáþjóðaleikanna síðan á Möltu
fyrir tólf árum en þeir voru þó
mun nærri gullinu á síðustu tveim-
ur leikum en í Andorra þar sem Ís-
land tapaði með 24 stigum gegn
Kýpur í óopinberum úrslitaleik.
Frá því að karlaliðið vann gull
tvö ár í röð í Andorra 1991 og á
Möltu 1993 hefur uppskera liðsins
verið þrjú silfur og tvö brons. Bið-
in eftir gullinu er því orðin löng,
alltof löng af mati flestra sem hafa
á sama tíma séð íslenska liðið
vinna sig upp metorðalistann í
Evrópukeppninni.
1995 tapaði íslenska landliðið
fyrir heimamönnum í Lúxemburg,
86-95, í undanúrslitunum en vann
síðan San Marínó í leik um þriðja
sætið. Tveimur árum síðar hófst
Kýpurmartröð íslenska liðsins
sem tapaði undanúrslitaleiknum
fyrir Kýpur í Smárunum með 15
stigum, 64-79.
Ísland vann síðan Lúxemburg
örugglega í leiknum um þriðja
sætið. 1999 var ekki keppt í körfu-
bolta en tveimur árum síðar tapaði
íslenska liðið með 14 stigum fyrir
Kýpur í úrslitaleik. Vonbrigðin
voru örugglega mest á Möltu fyrir
tveimur árum þegar íslensku
strákarnir misstu niður unnan úr-
slitaleik gegn Kýpur. Ísland náði
mest 16 stiga forskoti um miðja
þriðja leikhluta, 58-42, en varð á
endanum að sætta sig við tveggja
stiga tap, 77-79. Í ár átti íslenska
liðið aldrei möguleika í lið Kýpur
sem komst í 21-7, leiddi með 21
stigi í hálfleik, 21-46, og vann leik-
inn að lokum með 24 stigum, 66-80.
Þetta er stærsta tap Íslands á Smá-
þjóðaleikunum frá upphafi og
bætti reyndar gamla metið um heil
9 stig. Íslenska liðið hefur aðeins
tapað fjórum leikjum á leikunum
frá 1997, öllum fyrir Kýpur og all-
ir hafa þeir kostað íslenska liðið
gullið.
Það vantaði vissulega í íslenska
liðið, þjálfarinn Sigurður Ingi-
mundarson og fyrirliðinn Friðrik
Stefánsson sátu báðir heima, þá
var Jón Arnór Stefánsson meiddur
og þeir Jakob Sigurðarson og Logi
Gunnarsson komust ekki til And-
orra.
Engu að síður mættum við með
mjög frambærilegt sem ætti að
gera betur en að steinliggja fyrir
Kýpurbúum sem hafa unnið gull-
verðlaunin á fimm Smáþjóðaleik-
um í röð. ooj@frettabladid.is
MAGNÚS MEÐ 70
STIG OG 18
ÞRIGGJA STIGA
KÖRFUR Keflvík-
ingurinn Magnús
Þór Gunnarsson
var stigahæstur
hjá íslenska lands-
liðinu á Smá-
þjóðaleikunum,
skoraði 17,5 stig
úr leik og hitti úr
18 af 42 þriggja
stiga skotum sín-
um (43%).
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslenska karlalandsli›i› enda›i í ö›ru sæti flri›ju Smáfljó›aleikana í rö›. K‡pur trygg›i sér fimmta gulli›
í rö› me› flví a› vinna stærsta sigurinn á Íslandi í sögu leikanna.
BIÐ KARLALANDSLIÐSINS
EFTIR GULLI Á LEIKUNUM:
2005 2. sæti
2003 2. sæti
2001 2. sæti
1999 Ekki keppt
1997 3. sæti
1995 3. sæti
1993 1. sæti
1991 1. sæti