Fréttablaðið - 05.06.2005, Side 62
5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Stjórnmálamenn hafa
tekið upp á því síðustu
ár að velja sér þá fjöl-
miðla eða fjölmiðla-
menn sem þeir ræða
við. Valið fer oft eftir því
hvort og þá hvernig
fjölmiðlarnir eða við-
komandi fjölmiðla-
menn hafa fjallað um mál sem snúa
að stjórnmálamönnunum.
Margir hafa gagnrýnt þessa að-
ferð stjórnmálamannanna enda til-
heyra þeir þeirri stétt sem veita
þarf hvað mest aðhald.
Nú hefur komið í ljós að stjórn-
málamenn hafa beitt álíka aðferðum
um langt skeið og á jafnvel enn und-
arlegri máta en áður er greint frá.
Finnur Ingólfsson, fyrrum við-
skiptaráðherra, lýsti því yfir í vik-
unni að hann hefði neitað fjölmiðla-
manni um viðtal vegna andlegs
ástands mannsins og neitaði að út-
skýra nánar hvað hann átti við þeg-
ar falast var eftir því.
Nú ætla ég ekki að fullyrða um
andlegt ástand fjölmiðlamannsins á
þeim tíma þegar Finnur neitaði hon-
um um viðtal. Hitt veit ég þó að
stjórnmálamenn, eins og aðrir
menn, hafa oft á tíðum verið í annar-
legu ástandi andlega þegar þeir hafa
stigið í ræðustól eða veitt viðtöl.
Stundum má fólk anda djúpt áður en
það talar.
Það sem hræðir mig samt
kannski meira við orð Finns er það
að stjórnmálamenn virðast vera
farnir að láta undan asnalegum kröf-
um samtímans um útlit og vaxtarlag
fólks. Finnur neitaði nefnilega líka
að tala við fjölmiðlamanninn þar
sem hann var líka í annarlegu líkam-
legu ástandi. Ef marka má orð Finns
myndi hann varla tala við mig því
sjálfur hef ég alltaf verið langt und-
ir kjörþyngd og þyki frekar ljótur.
Nú en ef stjórnmálamenn ætla að
velja fjölmiðlamenn eftir útliti gætu
þeir kannski auglýst eftir þeim í þar
til gerðum dálkum smáauglýsinga.
Þá gæti auglýsingin hljómað svona:
„Alþingismaður óskar eftir því að
tala við ljóshærðan, fallegan, vel
byggðan og brjóstastóran blaða-
mann í kjörþyngd sem spyr þægi-
legra spurninga. Mynd og upplýs-
ingar sendist í Alþingishúsið við
Austurvöll.“ ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
KRISTJÁN HJÁLMARSSON HEFUR ÁHYGGUR AF STJÓRNMÁLAMÖNNUM
Líkamlegt ástand
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
FORSÝND Í KVÖLD KL. 20.00
Bönnuð innan 16 ára
★★★★
★
„Svalasta
mynd
ársins“ ÞÞ
FBL
■ PONDUS
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Frode Överli
Jæja sitjið þið bara
hérna tvær og hafið
það notalegt?
Alveg karlmannlausar,
Úpps
Æjæ, fyrirgefðu
elskan
Þú hreinsar bara
borðin eins og
venjulega?
Ég vill fara
heim!