Fréttablaðið - 05.06.2005, Page 70
Vilhelm Anton Jónsson hefur
mörg andlit. Hann er kannski bet-
ur þekktur sem Villi naglbítur,
Villi grillari nú eða bingóstjórinn
Villi. Í augnablikinu er þó gítarinn
geymdur ofan í tösku, grilltang-
irnar fá að hvíla sig og bingótöl-
urnar liggja hreyfingarlausar.
Þess í stað hefur hann pensilinn
að vopni og á laugardaginn opnaði
hann sína fyrstu opinberu mál-
verkasýningu á Sólon í Banka-
strætinu. „Ég var einu sinni með
sýningu í Gallerý Gangi uppi í
Sjónvarpshúsi en hún var frekar
lokuð. Aðeins þeir sem áttu erindi
þangað upp eftir gátu séð hana,“
segir hann.
Vilhelm hefur verið að dunda
við að mála í mörg ár. Það var þó
ekki fyrr en sýningarstjóri Sólon
kom upp í vinnustofuna hans á
Laugaveginum að hann ákvað að
leyfa almenningi að sjá verkin
sín. „Ég hef verið að mála síðan í
febrúar þegar ég hætti í sjónvarp-
inu og eiginlega ekki gert neitt
annað,“ segir hann og bætir við að
honum finnist frábært að fá tæki-
færi til að skapa eitthvað.
Verkin sem verða til sýnis á
Sólon eru öll frekar stór, 1:2.
„Þetta eru verk úr meðal annars
olíu og akríl, olíu, túss og kolum.
Myndirnar eru frekar hráar og
stundum er texti skrifaður yfir
þær,“ segir hann. „Þær eru allar í
svipuðum dúr og lýsa samskiptum
fólks, svona lifandi myndir,“ segir
hann en vill þó ekki meina að hann
hafi einhverja eina fyrirmynd.
„Það eru svo margir góðir málar-
ar.“
Reykvíkingar og nærsveitar-
menn verða þó ekki þeir einu sem
fá að njóta verka Villa því seinna í
sumar mun hann leggja land und-
ir fót og heimsækja sveitunga
sína á Akureyri. „Ég verð með
sýningu á Kaffi Karólínu og vona
bara að þeir taki mér vel.“
freyrgigja@frettabladid.is
46 5. júní 2005 SUNNUDAGUR
Ungir sjálfstæðismenn færðu Al-freð Þorsteinssyni, stjórnarfor-
manni Orku-
veitu Reykjavíkur,
spilið Monopoly
að gjöf á föstu-
daginn var. Var
það gert til að
mótmæla taum-
lausri eyðslu Al-
freðs úr sjóðum
Orkuveitunnar en
eins og Frétta-
blaðið greindi frá
í vikunni sam-
þykkti stjórn
veitunnar að
reisa 600 sum-
arhús við Úlf-
ljótsvatn. Með
spilinu vonuðust
ungliðarnir til að Alfreð léti sér
nægja að kaupa eignir með spila-
peningum í stað þess að leika sér
með fjármuni borgarbúa en spilið
gengur út á að kaupa götur, hús og
hótel með þar til gerðum spilapen-
ingum. Það var Jón Hákon
Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri SUS, sem
færði Alfreð spilið að
gjöf en þar sem hann
var ekki við veitti ritari
hans því viðtöku. Alfreð
var hins vegar fljótur að
svara fyrir sig. Hann
endursendi spilið og
hvatti SUS-ara til að
bjóða Davíð
Oddsyni formanni
Sjálfstæðisflokksins í
Monopoly í Perl-
unni sem hann
hefði látið byggja
og borgarsjóður þyrfti
enn að borga fyrir. ■
TAK
TU
ÞÁT
T!
Taktu þátt þú gætir unnið: Meet the fockers
Lemony Snicket´s A Series Of Unfortunate Events
• Meet the parents SE • Aðrar DVD myndir
Kippur af Coke og margt fleira!
D3
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
HA HA HA
HA HA!
Nýtt andlit hefur sést í Íslandi í
bítið nú í vikunni en það er engin
önnur en Kolbrún Björnsdóttir
sem áður var með Djúpu laugina á
Skjá einum. „Ég hóf störf við þátt-
inn 20. maí en fór fyrst í útsend-
ingu þriðjudaginn 31. maí,“ segir
Kolbrún sem kann rosalega vel við
sig á Stöð 2. Hún segir að sam-
starfsmenn hennar séu alveg ynd-
islegir og starfið við Ísland í bítið
vera gjörólíkt því sem hún kynnt-
ist í Djúpu lauginni enda sé um allt
öðruvísi þátt að ræða. „Þessi þátt-
ur er á hverjum degi og hann er
tveggja tíma langur, við höfum
svo marga viðmælendur og ólík
viðfangsefni að það er alltaf eitt-
hvað nýtt að gerast.“ Umsjónar-
menn bítisins þurfa að vakna fyrir
allar aldir og segist Kolbrún enn
vera að reyna að koma því upp í
venju. „Ég þarf að hafa vekjara-
klukkuna langt frá rúminu og er
ennþá að stelast til að leggja mig
aðeins á daginn.“ Aðspurð hvort
hún haldi að amorstöfrarnir séu
enn á sveimi í kringum hana þá
segist hún ekki vita hvort hún eigi
eftir að koma einhverjum viðmæl-
endum sumarsins saman. „Ég
sendi samt mág minn á stefnumót
um daginn og ég held að hann sé
bara ástfanginn upp fyrir haus –
svo ég hef hæfileikann enn,“ segir
Kolbrún og hlær. ■
Kolbrún í bíti›
VILHELM ANTON: HEFUR PENSILINN AÐ VOPNI
Rokkari verður
málari
FRÉTTIR AF FÓLKI
HIN HLIÐIN
HIN HLIÐIN Á RÖGNU BJÖRGU INGÓLFSDÓTTUR, HÁSKÓLANEMA OG ÍSLANDSMEISTARA Í BADMINTON
Hvernig ertu núna? Mér líður bara ágætlega.
Augnlitur: Grængrár.
Starf: Nemi í heimspeki og sálfræði.
Stjörnumerki: Fiskur.
Hjúskaparstaða: Í sambúð.
Hvaðan ertu? Úr Laugardalnum í Reykjavík.
Helsta afrek: Að fá ólympíustyrk og badmintonið bara almennt.
Helstu veikleikar: Ég er svolítið óþolinmóð.
Helstu kostir: Ég er mikil keppnismanneskja, ákveðin og góð-
ur vinur.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Sex and the City.
Uppáhaldsútvarpsþáttur: Það var Tvíhöfði á sínum tíma.
Uppáhaldsmatur: Grillað kjöt.
Uppáhaldsveitingastaður: Mekong og Tapas-barinn.
Uppáhaldsborg: París.
Mestu vonbrigði lífsins: Að komast ekki á Ólympíuleikana 2004.
Áhugamál: Badminton, golf og afslöppun.
Viltu vinna milljón? Já.
Jeppi eða sportbíll: Jeppi.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Kennari.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Jón Gnarr.
Hver er kynþokkafyllst(ur)? Viðar Guðjónsson.
Trúir þú á drauga? Nei, ég trúi ekki á drauga.
Hvaða dýr vildirðu helst vera? Kisa.
Hvaða dýr vildirðu ekki vera? Hestur.
Áttu gæludýr? Þrjá hunda og eina kisu sem eru heima hjá
mömmu og pabba.
Besta kvikmynd í heimi? Zoolander.
Besta bók í heimi? Mér finnst margar heimspekibækur
mjög skemmtilegar.
Næst á dagskrá? Að æfa fyrir HM sem verður í Los Angeles
í ágúst og svo næstu Ólympíuleika sem verða í Peking 2008.
22.02.1983
... fær Stefán Einar Stefánsson
fyrir að sýna eldri borgurum þá
virðingu sem þeir eiga skilið.
HRÓSIÐ
KOLBRÚN BJÖRNSDÓTTIR hefur bæst í
fríðan flokk umsjónarmanna Íslands í bítið
Gulli Helga
Laugardagsmorgna 9-13
VILHELM ANTON Hefur málað
síðastliðna þrjá mánuði í litlu
vinnustofunni sinni á Laugavegin-
um. Afraksturinn verður til sýnis á
Sólon næstu daga.
Stefnir ótrau› á Ólympíuleikana 2008