Fréttablaðið - 14.06.2005, Blaðsíða 10
EINKAVÆÐING Ríkisendurskoðandi
segir að ljóst sé að hugleiðingar
um hæfi Halldórs Ásgrímssonar í
umfjöllun um sölu Búnaðarbank-
ans séu óþarfar. Ástæðurnar séu
þær að Halldór tók hvorki þátt í
umfjölluninni um val á S-hópnum
til viðræðna um kaupin á Búnað-
arbankanum né tillögu fram-
kvæmdanefndar um einkavæð-
ingu um að fá heimild til að skrifa
undir söluna.
Þetta kemur fram í nýrri at-
hugun Ríkisendurskoðunar á hæfi
Halldórs Ásgrímssonar til þess að
fjalla um sölu á hlut ríkisins í
Búnaðarbankanum til S-hópsins
árið 2002, sem Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra kynnti á
blaðamannafundi í gær.
Á þessum tíma átti Halldór um
1,33 prósenta hlut í Skinney-
Þinganesi, sem átti helmingshlut í
Hesteyri hf. sem var einn stærsti
hluthafinn í Keri, sem var hluti af
S-hópnum. Jafnframt áttu skyld-
menni Halldórs samtals um 25
prósenta hlut í Skinney-Þinganesi.
Ríkisendurskoðandi segir í
skýrslu sinni að hagsmunir Hall-
dórs og skyldmenna hans teljist
smávægilegir og telur málið þess
eðlis að þáttur Halldórs í meðferð
málsins hafi verið svo lítilfjörleg-
ur að ekki yrði talin hætta á að
ómálefnaleg sjónarmið hefðu
áhrif á ákvörðun hans.
Var í veikindafríi
Í skýrslunni segir jafnframt að
Halldór hafi verið frá störfum
vegna veikinda frá 14. október
til 26. nóvember 2002, en hinn 4.
nóvember staðfesti ráðherra-
nefndin tillögu framkvæmda-
nefndarinnar um að fá heimild
til að ganga til viðræðna við S-
hópinn um kaupin á Búnaðar-
bankanum.
„Ríkisendurskoðun kemst að
þeirri niðurstöðu að í fyrsta lagi
hafi ég ekki fjallað um málið og
því sé óþarft að líta á það og í
öðru lagi hefði ég fjallað um það
þá hefði ég ekki verið til þess
vanhæfur,“ segir Halldór.
Halldór segir að fram til 14.
október hafi ekkert gerst í sölu-
ferli Búnaðarbankans sem varð-
aði ákvörðun um það við hvern
yrði talað varðandi söluna á
Búnaðarbankanum.
Skinney-Þinganes og Kaupfé-
lag Skagfirðinga endurvöktu
Hesteyri í því skyni að kaupa
ráðandi hlut í Keri um miðjan
ágúst 2002. Ker var þá hluti af S-
hópnum sem var einn þriggja
bjóðenda sem til greina komu
varðandi kaupin á Landsbankan-
um eða Búnaðarbankanum.
Hesteyri seldi hlut sinn í Keri
þremur mánuðum síðar í skipt-
um fyrir hlutabréf í VÍS.
Veit ekki um hagnaðinn
Verðmæti hlutar Skinneyjar-
Þinganess í Keri jókst um nokk-
ur hundruð milljónir á þessu
þriggja mánaða tímabili vegna
hækkunar á markaðsvirði Kers
sem varð vegna þess að félagið
var innan S-hópsins í viðræðum
við ríkissjóð um kaupin á Bún-
aðarbankanum. Þegar Halldór
er spurður hvað hann hafi sjálf-
ur hagnast á þessari hækkun
segist hann ekki vita það. „Ég
tek hins vegar eftir því að í
þessari skýrslu Ríkisendurskoð-
anda kemur fram að í þeim við-
skiptum hafi engar peninga-
greiðslur átt sér stað. Ég held að
það geti ekki verið rétt að hagn-
aðurinn hafi verið mörg hund-
ruð milljónir,“ segir Halldór.
Hann bendir á skýrslu ríkisend-
urskoðunar sem segir engan
söluhagnað hafa átt sér stað hjá
Hesteyri vegna sölu hlutarins í
Keri enda hafi verið greitt fyrir
þau með hlutabréfum.
Kemur sjálfur ekkert að fyrir-
tækinu
Spurður hvort ekki hefði verið
eðlilega að skýra frá eigna-
tengslunum milli Skinneyjar-
Þinganess og Kers á meðan við-
ræðurnar um sölu Búnaðar-
bankans stóðu yfir segir Halldór
að enginn hafi haft orð á því.
„Ég hafði engar hugleiðingar
um það og taldi að svo væri alls
ekki,“ segir Halldór. „Ég kem
sjálfur ekkert að þessu fyrir-
tæki. Ég fékk þennan hlut í arf
eftir föður minn og er ekki í
neinum tengslum við fyrirtæk-
ið. Ég hafði ekki hugmynd um
hvað þeir hyggðust fyrir,“ segir
Halldór. Aðspurður sagðist hann
ekki hafa vitað að Skinney-
Þinganes ætti óbeina aðild að S-
hópnum. Spurður hvort hann
hafi þá ekki vitað að Hesteyri
ætti hlut í Keri á þessum tíma
segir Halldór: „Ég frétti af því
eins og hver annar borgari þeg-
ar Skinney-Þinganes keypti í
Keri í gegn um Hesteyri en mér
var ekki sérstaklega tilkynnt
um það.“
Halldór var spurður hvort
ekki hefði verið pólitískt rétt í
ljósi stöðu hans áður en hann fór
í veikindaleyfi, að hann hefði
skýrt frá tengslunum. „Það hef-
ur aldrei neitt verið dregið í efa
í þessu sambandi. Það kom
aldrei upp í þessari umræðu og
aðalatriðið er það að niðurstaða
ríkisendurskoðanda er komin
fram,“ segir Halldór.
Hann segist aðspurður ekki
hafa rætt eignatengslin við sam-
starfsflokk sinn í ríkisstjórn né
innan ráðherranefndarinnar.
Segir afskipti sín ekki óeðlileg
Halldór var spurður hvort hann
hafi ekki haft óeðlileg afskipti af
Búnaðarbankasölunni sem ráð-
herra þegar hann tók þátt í síma-
fundi með tveimur bjóðendum í
Búnaðarbankann, S-hópnum og
Kaldbaki, í ljósi þess að þá hafi
Skinney-Þinganes átt hlut í Keri,
sem stóð að S-hópnum. Á fundin-
um var rætt um það hvort Kald-
bakur og S-hópurinn gætu ekki
sameinast um kaupin á Búnaðar-
bankanum. „Ég tel að það hafi
ekki verið óeðlileg afskipti að
veita viðtöl. Ég hef veitt viðtöl
við fólk út af alls konar málum,
ég veitti til að mynda Almenn-
ingi viðtal vegna kaupanna á
Símanum,“ segir Halldór. „Ég
veitti þetta viðtal. Ég reyndi ekki
að hafa nein áhrif á niðurstöð-
una,“ segir Halldór.
Rætt um að auglýsa ekki
bankana
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að ákvörðunin um að auglýsa
báða bankana til sölu samtímis
hafi verið tekin að loknum umræð-
um á fundi ráðherranefndarinnar í
júní 2002, eftir að Björgólfur Guð-
mundsson átti samtal við Davíð
Oddsson um hugsanleg kaup Sam-
son á öðrum hvorum bankanum.
Davíð Oddsson kynnti þá hugmynd
á fundi ráðherranefndarinnar að
Samson myndi kaupa Landsbank-
ann og tilkynnt yrði um það þegar
samningum væri lokið. Heimildir
Fréttablaðsins segja að Halldór
Ásgrímsson og Valgerður Sverris-
dóttir, sem áttu sæti í ráðherra-
nefndinni ásamt Davíð og Geir
Haarde, hafi komið í veg fyrir að
Landsbankinn yrði seldur Samson
án auglýsingar og því hafi báðir
bankarnir verið auglýstir samtím-
is.
Halldór staðfestir að þessar um-
ræður hafi komið upp innan ráð-
herranefndarinnar á þessum tíma.
„Leitað hafði verið að erlendum
fjárfesti til að kaupa kjölfestuhlut í
bönkunum og stóð sú leit nokkuð
fram yfir áramót 2002. Ekki tókst
að selja bankana og málið lá niðri
þegar bréf Samson barst. Þá var
um það rætt hvort hægt væri að
líta á þá ósk Samson sem hluta af
þeirri leit sem þegar hafði átt sér
stað þannig að ekki þyrfti að aug-
lýsa að nýju. Við ræddum þetta
okkar í milli. Niðurstaðan var sú,
og ég held að hún hafi verið rétt, að
það væri ekki hægt og það yrði að
auglýsa á nýjan leik og það var
gert,“ segir Halldór.
Spurður hvort, eftirá að hyggja,
hefði mátt standa betur að verki
við sölu bankanna segir Halldór að
alltaf megi standa betur að verki í
öllum málum. „Því miður, sem voru
náttúrulega vonbrigði á sínum
tíma, var tiltölulega lítill áhugi um
kaupin á þessum tveimur bönkum.
Þrír aðilar voru metnir hæfir til að
kaupa bankana og tveir þeirra
keyptu,“ segir Halldór.
Formlegt vald til sölunnar ekki
hjá ráðherranefnd
Ríkisendurskoðandi segir að hið
formlega vald til sölu bankanna
hafi verið í höndum viðskiptaráð-
herra eins en ekki ráðherranefnd-
arinnar. Ráðherranefnd um einka-
væðingu sé fyrst og fremst ætlað
að einfalda aðkomu ríkisstjórnar
að einkavæðingarverkefnum og
greiða fyrir staðfestingu stefnu-
markandi ákvarðana þeim tengd-
um, sem annars væru í höndum
ríkisstjórnar. Ákvörðunin sé eftir
sem áður tekin af og á ábyrgð við-
komandi ráðherra. Ráðherra-
nefndin geti því varla talist
stjórnsýslunefnd, sem ætlað er að
taka stjórnvaldsákvarðanir í
skilningi stjórnsýslulaga. Til þess
sýnist hana skorta nægilega skýr-
an lögformlegan grundvöll.
Ríkisendurskoðandi segir jafn-
framt að ráðherranefndin hafi
sem slík ekki tekið beinan þátt í
samningaviðræðum um sölu Bún-
aðarbankans. Hún hafi hins vegar
tekið stefnumarkandi ákvarðanir
í málinu, sem fyrst og fremst
fólust í að ákveða að auglýsa
bankana til sölu og fallast á tillög-
ur framkvæmdanefndarinnar um
sölufyrirkomulagið.
Halldór sagðist vonast til þess
að stjórnarandstaðan sætti sig við
niðurstöður ríkisendurskoðanda.
„Ríkisendurskoðun er eftirlits-
stofnun Alþingis. [...] Alþingi hlýt-
ur að treysta sinni eftirlitsstofnun
til að fara með þau mál sem að því
lýtur,“ segir Halldór. ■
10 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
> Heildarfjöldi leikskólabarna á Íslandi: 16.710
Með íslensku sem
móðurmál 93%
Erlent tungumál móðurmál 7%Heimild: Hagstofan
FBL-GREINING: LANDAKOTSSKÓLI
Rógur, valdatafl og afsagnir
Skólastjóri Landakotsskóla, Hjalti Þor-
kelsson, sagði starfi sínu lausu föstu-
daginn 3. júní.
Afsögn Hjalta var afleiðing spennu sem
geisað hafði innan skólans frá því í lok
janúar þegar kennararáð hélt til fundar
við skólastjórn og gagnrýndi skólastjóra,
aðstoðarskólastjóra og nafngreinda
kennara við skólann. Í kjölfarið spruttu
upp deilur innan skólans þar sem
skólastjóri og kennarar kröfðust þess að
fá að sjá gögn fundarins. Gögnin voru
hins vegar sögð glötuð.
Á kennarafundi 1. mars var samþykkt
vantrauststillaga á kennararáðið og
skorað á það að segja af sér sem það
gerði ekki.
Í maí skipaði kaþólski biskupinn yfir Ís-
landi, Jóhannes Gijsen, nýja skólastjórn
Landakotsskóla með Gunnar Örn
Ólafsson sem formann. Skömmu síðar
sagði stjórnin Bessí Jóhannsdóttur að-
stoðarskólastjóra upp störfum. Hjalti
Þorkelsson réð eftirmann Bessíar en
stjórnin stóð þá í vegi fyrir því. Hjalti
sagði upp starfi sínu í kjölfarið.
Afsögn Hjalta markaði upphafið að
valdatafli milli tveggja hópa innan skól-
ans, annars vegar skólastjórnarinnar og
kennararáðsins og hins vegar hluta
kennarahópsins sem var handgenginn
Hjalta og taldi skólastjórnina seka um
valdníðslu.
Foreldrar barna við Landakotsskóla
héldu fund fyrir viku síðan þar sem skor-
að var á skólastjórnina að segja af sér.
Stjórnin sendi kennurum skólans bréf
um að skrifleg stuðningsyfirlýsing við
skólastjórnina væri skilyrði þess að þeir
héldu starfi sínu.
Skólastjórnin boðaði svo til foreldrafund-
ar á fimmtudaginn þar sem lesin var upp
tilkynning með nöfnum þeirra kennara
sem studdu stjórnina. Laufey Jónsdóttir
kennari las upp tilkynningu þar sem
skorað var á stjórnina að segja af sér og
undirituð var af átta kennurum.
Fomaður skólastjórnarinnar, Gunnar
Örn Ólafsson, og Jóhann Long ritari
sögðu svo af sér á föstudaginn með
von um að sátt gæti skapast um fram-
tíð skólans.
Óánægði hluti kennarahópsins segir
deiluna enn í hnút.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON „Ég hef aldrei verið í neinum vafa um hæfi mitt í þessu máli. Mér hefur sárnað sú umfjöllun sem hefur verið
síðustu daga og vikur. Ég hef lagt mig fram við að vinna mín störf af einlægni og heiðarleika og það er ný reynsla fyrir mig að vera sak-
aður um eitthvað annað eins og verið hefur nú upp á síðkastið.“
Hugleiddi aldrei a› sk‡ra frá
eignatengslunum vi› S-hópinn
Halldór Ásgrímsson áréttar a› hann hafi ekkert haft me› rekstur Skinneyjar-fiinganess a› gera flegar félagi› ger›ist óbeinn a›ili a›
S-hópnum í a›draganda Búna›arbankasölunnar. Ríkisendursko›andi segir Halldór ekki hafa veri› vanhæfan til a› fjalla um söluna.
SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
MEINT VANHÆFI
FORSÆTISRÁÐHERRA