Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 14.06.2005, Qupperneq 10
EINKAVÆÐING Ríkisendurskoðandi segir að ljóst sé að hugleiðingar um hæfi Halldórs Ásgrímssonar í umfjöllun um sölu Búnaðarbank- ans séu óþarfar. Ástæðurnar séu þær að Halldór tók hvorki þátt í umfjölluninni um val á S-hópnum til viðræðna um kaupin á Búnað- arbankanum né tillögu fram- kvæmdanefndar um einkavæð- ingu um að fá heimild til að skrifa undir söluna. Þetta kemur fram í nýrri at- hugun Ríkisendurskoðunar á hæfi Halldórs Ásgrímssonar til þess að fjalla um sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum til S-hópsins árið 2002, sem Halldór Ásgríms- son forsætisráðherra kynnti á blaðamannafundi í gær. Á þessum tíma átti Halldór um 1,33 prósenta hlut í Skinney- Þinganesi, sem átti helmingshlut í Hesteyri hf. sem var einn stærsti hluthafinn í Keri, sem var hluti af S-hópnum. Jafnframt áttu skyld- menni Halldórs samtals um 25 prósenta hlut í Skinney-Þinganesi. Ríkisendurskoðandi segir í skýrslu sinni að hagsmunir Hall- dórs og skyldmenna hans teljist smávægilegir og telur málið þess eðlis að þáttur Halldórs í meðferð málsins hafi verið svo lítilfjörleg- ur að ekki yrði talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hefðu áhrif á ákvörðun hans. Var í veikindafríi Í skýrslunni segir jafnframt að Halldór hafi verið frá störfum vegna veikinda frá 14. október til 26. nóvember 2002, en hinn 4. nóvember staðfesti ráðherra- nefndin tillögu framkvæmda- nefndarinnar um að fá heimild til að ganga til viðræðna við S- hópinn um kaupin á Búnaðar- bankanum. „Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu að í fyrsta lagi hafi ég ekki fjallað um málið og því sé óþarft að líta á það og í öðru lagi hefði ég fjallað um það þá hefði ég ekki verið til þess vanhæfur,“ segir Halldór. Halldór segir að fram til 14. október hafi ekkert gerst í sölu- ferli Búnaðarbankans sem varð- aði ákvörðun um það við hvern yrði talað varðandi söluna á Búnaðarbankanum. Skinney-Þinganes og Kaupfé- lag Skagfirðinga endurvöktu Hesteyri í því skyni að kaupa ráðandi hlut í Keri um miðjan ágúst 2002. Ker var þá hluti af S- hópnum sem var einn þriggja bjóðenda sem til greina komu varðandi kaupin á Landsbankan- um eða Búnaðarbankanum. Hesteyri seldi hlut sinn í Keri þremur mánuðum síðar í skipt- um fyrir hlutabréf í VÍS. Veit ekki um hagnaðinn Verðmæti hlutar Skinneyjar- Þinganess í Keri jókst um nokk- ur hundruð milljónir á þessu þriggja mánaða tímabili vegna hækkunar á markaðsvirði Kers sem varð vegna þess að félagið var innan S-hópsins í viðræðum við ríkissjóð um kaupin á Bún- aðarbankanum. Þegar Halldór er spurður hvað hann hafi sjálf- ur hagnast á þessari hækkun segist hann ekki vita það. „Ég tek hins vegar eftir því að í þessari skýrslu Ríkisendurskoð- anda kemur fram að í þeim við- skiptum hafi engar peninga- greiðslur átt sér stað. Ég held að það geti ekki verið rétt að hagn- aðurinn hafi verið mörg hund- ruð milljónir,“ segir Halldór. Hann bendir á skýrslu ríkisend- urskoðunar sem segir engan söluhagnað hafa átt sér stað hjá Hesteyri vegna sölu hlutarins í Keri enda hafi verið greitt fyrir þau með hlutabréfum. Kemur sjálfur ekkert að fyrir- tækinu Spurður hvort ekki hefði verið eðlilega að skýra frá eigna- tengslunum milli Skinneyjar- Þinganess og Kers á meðan við- ræðurnar um sölu Búnaðar- bankans stóðu yfir segir Halldór að enginn hafi haft orð á því. „Ég hafði engar hugleiðingar um það og taldi að svo væri alls ekki,“ segir Halldór. „Ég kem sjálfur ekkert að þessu fyrir- tæki. Ég fékk þennan hlut í arf eftir föður minn og er ekki í neinum tengslum við fyrirtæk- ið. Ég hafði ekki hugmynd um hvað þeir hyggðust fyrir,“ segir Halldór. Aðspurður sagðist hann ekki hafa vitað að Skinney- Þinganes ætti óbeina aðild að S- hópnum. Spurður hvort hann hafi þá ekki vitað að Hesteyri ætti hlut í Keri á þessum tíma segir Halldór: „Ég frétti af því eins og hver annar borgari þeg- ar Skinney-Þinganes keypti í Keri í gegn um Hesteyri en mér var ekki sérstaklega tilkynnt um það.“ Halldór var spurður hvort ekki hefði verið pólitískt rétt í ljósi stöðu hans áður en hann fór í veikindaleyfi, að hann hefði skýrt frá tengslunum. „Það hef- ur aldrei neitt verið dregið í efa í þessu sambandi. Það kom aldrei upp í þessari umræðu og aðalatriðið er það að niðurstaða ríkisendurskoðanda er komin fram,“ segir Halldór. Hann segist aðspurður ekki hafa rætt eignatengslin við sam- starfsflokk sinn í ríkisstjórn né innan ráðherranefndarinnar. Segir afskipti sín ekki óeðlileg Halldór var spurður hvort hann hafi ekki haft óeðlileg afskipti af Búnaðarbankasölunni sem ráð- herra þegar hann tók þátt í síma- fundi með tveimur bjóðendum í Búnaðarbankann, S-hópnum og Kaldbaki, í ljósi þess að þá hafi Skinney-Þinganes átt hlut í Keri, sem stóð að S-hópnum. Á fundin- um var rætt um það hvort Kald- bakur og S-hópurinn gætu ekki sameinast um kaupin á Búnaðar- bankanum. „Ég tel að það hafi ekki verið óeðlileg afskipti að veita viðtöl. Ég hef veitt viðtöl við fólk út af alls konar málum, ég veitti til að mynda Almenn- ingi viðtal vegna kaupanna á Símanum,“ segir Halldór. „Ég veitti þetta viðtal. Ég reyndi ekki að hafa nein áhrif á niðurstöð- una,“ segir Halldór. Rætt um að auglýsa ekki bankana Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að ákvörðunin um að auglýsa báða bankana til sölu samtímis hafi verið tekin að loknum umræð- um á fundi ráðherranefndarinnar í júní 2002, eftir að Björgólfur Guð- mundsson átti samtal við Davíð Oddsson um hugsanleg kaup Sam- son á öðrum hvorum bankanum. Davíð Oddsson kynnti þá hugmynd á fundi ráðherranefndarinnar að Samson myndi kaupa Landsbank- ann og tilkynnt yrði um það þegar samningum væri lokið. Heimildir Fréttablaðsins segja að Halldór Ásgrímsson og Valgerður Sverris- dóttir, sem áttu sæti í ráðherra- nefndinni ásamt Davíð og Geir Haarde, hafi komið í veg fyrir að Landsbankinn yrði seldur Samson án auglýsingar og því hafi báðir bankarnir verið auglýstir samtím- is. Halldór staðfestir að þessar um- ræður hafi komið upp innan ráð- herranefndarinnar á þessum tíma. „Leitað hafði verið að erlendum fjárfesti til að kaupa kjölfestuhlut í bönkunum og stóð sú leit nokkuð fram yfir áramót 2002. Ekki tókst að selja bankana og málið lá niðri þegar bréf Samson barst. Þá var um það rætt hvort hægt væri að líta á þá ósk Samson sem hluta af þeirri leit sem þegar hafði átt sér stað þannig að ekki þyrfti að aug- lýsa að nýju. Við ræddum þetta okkar í milli. Niðurstaðan var sú, og ég held að hún hafi verið rétt, að það væri ekki hægt og það yrði að auglýsa á nýjan leik og það var gert,“ segir Halldór. Spurður hvort, eftirá að hyggja, hefði mátt standa betur að verki við sölu bankanna segir Halldór að alltaf megi standa betur að verki í öllum málum. „Því miður, sem voru náttúrulega vonbrigði á sínum tíma, var tiltölulega lítill áhugi um kaupin á þessum tveimur bönkum. Þrír aðilar voru metnir hæfir til að kaupa bankana og tveir þeirra keyptu,“ segir Halldór. Formlegt vald til sölunnar ekki hjá ráðherranefnd Ríkisendurskoðandi segir að hið formlega vald til sölu bankanna hafi verið í höndum viðskiptaráð- herra eins en ekki ráðherranefnd- arinnar. Ráðherranefnd um einka- væðingu sé fyrst og fremst ætlað að einfalda aðkomu ríkisstjórnar að einkavæðingarverkefnum og greiða fyrir staðfestingu stefnu- markandi ákvarðana þeim tengd- um, sem annars væru í höndum ríkisstjórnar. Ákvörðunin sé eftir sem áður tekin af og á ábyrgð við- komandi ráðherra. Ráðherra- nefndin geti því varla talist stjórnsýslunefnd, sem ætlað er að taka stjórnvaldsákvarðanir í skilningi stjórnsýslulaga. Til þess sýnist hana skorta nægilega skýr- an lögformlegan grundvöll. Ríkisendurskoðandi segir jafn- framt að ráðherranefndin hafi sem slík ekki tekið beinan þátt í samningaviðræðum um sölu Bún- aðarbankans. Hún hafi hins vegar tekið stefnumarkandi ákvarðanir í málinu, sem fyrst og fremst fólust í að ákveða að auglýsa bankana til sölu og fallast á tillög- ur framkvæmdanefndarinnar um sölufyrirkomulagið. Halldór sagðist vonast til þess að stjórnarandstaðan sætti sig við niðurstöður ríkisendurskoðanda. „Ríkisendurskoðun er eftirlits- stofnun Alþingis. [...] Alþingi hlýt- ur að treysta sinni eftirlitsstofnun til að fara með þau mál sem að því lýtur,“ segir Halldór. ■ 10 14. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR fréttir og fró›leikur SVONA ERUM VIÐ > Heildarfjöldi leikskólabarna á Íslandi: 16.710 Með íslensku sem móðurmál 93% Erlent tungumál móðurmál 7%Heimild: Hagstofan FBL-GREINING: LANDAKOTSSKÓLI Rógur, valdatafl og afsagnir Skólastjóri Landakotsskóla, Hjalti Þor- kelsson, sagði starfi sínu lausu föstu- daginn 3. júní. Afsögn Hjalta var afleiðing spennu sem geisað hafði innan skólans frá því í lok janúar þegar kennararáð hélt til fundar við skólastjórn og gagnrýndi skólastjóra, aðstoðarskólastjóra og nafngreinda kennara við skólann. Í kjölfarið spruttu upp deilur innan skólans þar sem skólastjóri og kennarar kröfðust þess að fá að sjá gögn fundarins. Gögnin voru hins vegar sögð glötuð. Á kennarafundi 1. mars var samþykkt vantrauststillaga á kennararáðið og skorað á það að segja af sér sem það gerði ekki. Í maí skipaði kaþólski biskupinn yfir Ís- landi, Jóhannes Gijsen, nýja skólastjórn Landakotsskóla með Gunnar Örn Ólafsson sem formann. Skömmu síðar sagði stjórnin Bessí Jóhannsdóttur að- stoðarskólastjóra upp störfum. Hjalti Þorkelsson réð eftirmann Bessíar en stjórnin stóð þá í vegi fyrir því. Hjalti sagði upp starfi sínu í kjölfarið. Afsögn Hjalta markaði upphafið að valdatafli milli tveggja hópa innan skól- ans, annars vegar skólastjórnarinnar og kennararáðsins og hins vegar hluta kennarahópsins sem var handgenginn Hjalta og taldi skólastjórnina seka um valdníðslu. Foreldrar barna við Landakotsskóla héldu fund fyrir viku síðan þar sem skor- að var á skólastjórnina að segja af sér. Stjórnin sendi kennurum skólans bréf um að skrifleg stuðningsyfirlýsing við skólastjórnina væri skilyrði þess að þeir héldu starfi sínu. Skólastjórnin boðaði svo til foreldrafund- ar á fimmtudaginn þar sem lesin var upp tilkynning með nöfnum þeirra kennara sem studdu stjórnina. Laufey Jónsdóttir kennari las upp tilkynningu þar sem skorað var á stjórnina að segja af sér og undirituð var af átta kennurum. Fomaður skólastjórnarinnar, Gunnar Örn Ólafsson, og Jóhann Long ritari sögðu svo af sér á föstudaginn með von um að sátt gæti skapast um fram- tíð skólans. Óánægði hluti kennarahópsins segir deiluna enn í hnút. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON „Ég hef aldrei verið í neinum vafa um hæfi mitt í þessu máli. Mér hefur sárnað sú umfjöllun sem hefur verið síðustu daga og vikur. Ég hef lagt mig fram við að vinna mín störf af einlægni og heiðarleika og það er ný reynsla fyrir mig að vera sak- aður um eitthvað annað eins og verið hefur nú upp á síðkastið.“ Hugleiddi aldrei a› sk‡ra frá eignatengslunum vi› S-hópinn Halldór Ásgrímsson áréttar a› hann hafi ekkert haft me› rekstur Skinneyjar-fiinganess a› gera flegar félagi› ger›ist óbeinn a›ili a› S-hópnum í a›draganda Búna›arbankasölunnar. Ríkisendursko›andi segir Halldór ekki hafa veri› vanhæfan til a› fjalla um söluna. SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING MEINT VANHÆFI FORSÆTISRÁÐHERRA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.