Fréttablaðið - 01.07.2005, Síða 2
2 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Löggildingarnám fasteignasala hjá Endurmenntun Háskóla Íslands:
Tveir af hverjum flremur féllu á prófinu
MENNTAMÁL Rúmlega 64 prósent af
78 manna hópi féllu á fyrsta áfanga
löggildingarnáms til fasteignasölu
sem er á vegum Endurmenntunar
Háskóla Íslands.
Með gildistöku nýrra fasteiga-
laga eru gerðar ríkari menntunar-
kröfur til þeirra sem vilja öðlast
löggildingarréttindi, að sögn Odd-
nýjar Halldórsdóttur verkefna-
stjóra hjá Endurmenntun. Þetta er
fyrsti áfangi löggildingarnáms sem
boðið er upp á eftir að nýju lögin
tóku gildi og á vegum Endurmennt-
unar.
Að sögn Oddnýjar er náminu nú
skipt í þrjár annir, sem gefur 10 ein-
ingar hver. Námsefni fyrstu annar
skiptist í stórum dráttum í inngang
að lögfræði, eignarrétt og samn-
ingarétt. Þátttakendur verða að fá 5
í lágmarkseinkunn til þess að stand-
ast próf í hverju fagi fyrir sig, en 7
í meðaleinkunn til að ná áfanganum.
Oddný segir þær kröfur gerðar
til þeirra sem vilja hefja löggilding-
arnám að þeir hafi stúdentspróf,
hafi starfað í eitt ár hjá löggildum
fasteignasala og menn geti ekki far-
ið í prófin nema hafa sótt námið.
-jss
Tveir erlendir farþegar handteknir við komu Norrænu til Seyðisfjarðar:
Me› fjögur kíló af fíkniefnum
FÍKNIEFNAMÁL Tveir erlendir far-
þegar voru handteknir í gær eft-
ir að fjögur kíló af hvítu efni
sem annað hvort mun vera am-
fetamín eða kókaín fundust í bif-
reið í Norrænu í gærmorgun.
Það voru fíkniefnahundar lög-
reglunnar sem þefuðu efnin uppi
en þau fundust í hólfi aftarlega í
bifreiðinni skömmu eftir að
hundarnir komu lögreglumönn-
um á sporið.
Tvímenningarnir gistu fanga-
geymslur lögreglunnar á Egils-
stöðum í nótt en málið er í rann-
sókn að sögn lögreglunnar á
Seyðisfirði.
Lögreglan á Seyðisfirði segir
ennfremur að þetta sé mesti
fíkniefnafundur í Norrænu frá
upphafi þótt þeir hafi áður fund-
ið meira magn en árið 1992 urðu
farþegar skipsins uppvísir að
smygli á fimm kílóum af kanna-
bisefnum og þrjúhundruð
grömmum af amfetamíni.
Tollverðir frá Reykjavík eru
oft á svæðinu við komu Norrænu
og reyndist svo einnig vera í
gær og naut lögreglan því lið-
sinnis þeirra.
-jse
Lífeyrir gæti skerst
um næstu áramót
Lífeyrissjó›ur bankamanna er óstarfhæfur og dau›adæmdur fáist bakábyrg›
Landsbankans ekki vi›urkennd. A› óbreyttu flarf a› grípa til sker›ingar lífeyr-
isréttinda flegar um næstu áramót ver›i ekkert a› gert.
LÍFEYRIR „Samkomulag við Lands-
bankann var gert í góðri trú á sín-
um tíma,“ segir Friðbert Trausta-
son stjórnar-
f o r m a ð u r
L í f f e y r i s -
sjóðs banka-
manna. Hann
bætir við að
að óbreyttu
geti sjóður-
inn ekki stað-
ið við lífeyr-
isskuldbind-
ingar sínar.
„Það er hins
vegar svo að
samkomulagið um að setja á fót
nýtt kerfi sem tryggir afkomu líf-
eyrissjóðsins er hvergi til skjal-
fest.“
Eigendur Landsbankans líta
svo á að engar bakábyrgðir gagn-
vart lífeyrissjóðnum séu í gildi og
svo hafi ekki verið frá því gert
var upp við Lífeyrissjóð banka-
manna árið 1997 í aðdraganda
þess að ríkisbönkunum var
breytt í hlutafélög og þeir
síðan einkavæddir.
Svo sem
g r e i n t
var frá í Fréttablaðinu í gær hef-
ur Lífeyrissjóðurinn nú höfðað
mál gegn Landsbankanum og rík-
inu. Meginkrafa sjóðsins er að
Landsbankinn viðurkenni bak-
ábyrgðir vegna vaxandi skuld-
bindinga sjóðsins með sama hætti
og var fyrir árslok 1997. Til vara
krefst lífeyrissjóðurinn liðlega
2,6 milljarða króna skaðabóta
vegna tjóns sem sjóðurinn telur
sig hafa orðið fyrir vegna rangra
útreikninga.
Friðbert Traustason segir að
launaskriðið í Landsbankanum
frá árinu 1999 hafi verið allt ann-
að og meira en búist var við eftir
að bankinn var seldur. Gert hafi
verið ráð fyrir 27 prósenta meðal-
hækkun til ársins 2002.
Raunin hafi hins vegar
orðið 48 prósenta
hækkun.
L í f -
eyrir
sjóðsfélaga miðast við laun sem
þeir hafa við starfslok. Hafi laun
starfsmanns með langan starfs-
aldur hækkað verulega síðustu
þrjú árin sem hann starfaði þarf
sjóðurinn að standa skil á hækk-
uðum greiðslum til hans í takt við
lokalaunin. „Sjóðurinn er yfir
hættumörkum nú með 11,8 pró-
senta neikvæða afkomu. Okkur
ber að grípa til aðgerða strax og
við skríðum yfir 10 prósenta
markið. Takist ekki að rétta við
fjárhag sjóðsins, til dæmis með
málaferlum sem við reynum nú,
fáum við vafalaust tilmæli frá
Fjármálaeftirlitinu um að skerða
lífeyrisgreiðslur. Það verðum við
að gera í síðasta lagi um næstu
áramót. Aðildarfélög eins og
Landbankinn verða að bera bak-
ábyrgð. Annars er sjóðurinn
dauðadæmdur,“ segir Friðbert
Traustason.
johannh@frettabladid.is
MILLJARÐAR Í BARÁTTUNA VIÐ MALARÍU
George W. Bush:
Rá›ist gegn
m‡rarköldu
WASHINGTON, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær
að ríkisstjórn sín myndi á næstu
árum verja jafngildi 78 milljarða
íslenskra króna til þess að berjast
gegn malaríu. Yfir ein milljón
íbúa jarðar deyr árlega úr veik-
inni og er stór hluti þeirra börn.
Vonast er til að með fénu megi
fækka dauðsföllum um helming
árið 2010.
Auk þess verður 26 milljörðum
króna varið til menntunar
afrískra stúlkna og jafnframt er
áformað að leggja ríflega 300
milljónir í að bæta stöðu kvenna
sem orðið hafa fyrir ofbeldi.
Yfirlýsingin kemur í aðdrag-
anda fundar átta helstu iðnríkja
heims en hann verður haldinn í
næstu viku í Skotlandi. ■
SPURNING DAGSINS
Jojo, misstir›u af Bruce?
„Neinei, við erum alltaf í sambandi.“
Götutónlistarmaðurinn Jojo lék eitt sinn með
Bruce Springsteen á Strikinu í Kaupmannahöfn.
Springsteen tók lagið í Leifsstöð þegar hann milli-
lenti í fyrradag.
ENDURMENNTUN Endurmenntun Háskóla
Íslands hefur nú tekið við námi til löggild-
ingar fasteignasala. Myndin er frá útskrift
Endurmenntunar.
FRIÐBERT TRAUSTASON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
NORRÆNA Í HÖFN Á SEYÐISFIRÐI Tveir voru handteknir við komu Norrænu í gærmorgun
eftir að fjögur kíló af amfetamíni eða kókaíni fundust í bíl tvímenninganna. Aldrei áður
hefur svo mikið af sterkum fíkniefnum fundist í Norrænu.
KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR REKTOR HÍ Krist-
ín Ingólfsdóttir tók við embætti rektors Há-
skóla Íslands í gær úr hendi Páls Skúlason-
ar sem gegnt hefur embættinu undanfarin
átta ár. Hún er fyrsta konan sem kjörin er
rektor við skólann.
Bæjarráð Siglufjarðar:
Brá›abirg›a-
kvóti á lo›nu
LOÐNUVEIÐAR Í ályktun sem bæjar-
ráð Siglufjarðar samþykkti í gær,
og send var sjávarútvegsráðherra
samdægurs, er lagt til að kannaður
verði möguleiki á bráðabirgðakvóta
vegna loðnuveiða í sumar. Leggur
bæjarráð áherslu á að rannsóknir
og veiðar í sumar verði ekki afskrif-
aðar strax þar sem um mikið hags-
munamál sé að ræða. - kk
DANMÖRK
LÖGREGLUMAÐUR Í STEININN
Eystri-Landsréttur dæmdi í gær
54 ára gamlan lögreglumann í
tveggja ára fangelsi fyrir pen-
ingaþvætti. Hann hafði hjálpað
stjúpsyni sínum að koma pening-
um í umferð sem aflað hafði ver-
ið með fíkniefnasölu. Dómstóll í
Tåstrup hafði áður dæmt mann-
inn í þriggja ára fangelsi en sá
dómur hefur nú verið mildaður.
BRIXTOFTE ENN AÐ Peter
Brixtofte, sem þekktastur er fyr-
ir að hafa steypt bænum Farum í
skuldafen í bæjarstjóratíð sinni,
fær ekki að kenna nýstofnaðan
flokk sinn við frjálslynda sósí-
alista. Venstre-flokkurinn, sem
Brixtofte var áður í, kennir sig
einnig við frjálslyndisstefnu og
stefndi því Brixtofte. Innanríkis-
ráðuneytið tók undir sjónarmið
Venstre og féllst ekki á að skrá
flokk Brixtofte undir þessu nafni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KVEIKTU Í VINNUSKÚR Í REYKJA-
VÍK Einhverjir tóku sig til og
báru eld að vinnuskúr við Lang-
holtsskóla um kvöldmatarleytið í
gær. Aðstæður reyndust brennu-
vörgunum hinsvegar ekki hlið-
hollar í votviðrinu og náði
slökkviliðið að ráða niðurlögum
eldsins þegar hurð skúrsins hafði
brunnið til hálfs. Það var vökull
vegfarandi sem gerði slökkvilið-
inu viðvart.