Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2005, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 01.07.2005, Qupperneq 8
1Hvað heitir hinn umdeildi sóknar-prestur í Garðasókn? 2Hvar á Frelsisturninn að rísa? 3Hvaða þjóð sigraði í Álfukeppninni íknattspyrnu? SVÖRIN ERU Á BLS. 50 VEISTU SVARIÐ? 8 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR Þarfasti þjónninn hefur numið land í Ástralíu: Íslenskir hestar í félagsskap kengúra DÝRALÍF Hryssa af íslenskum ætt- um, Dana, eyðir nú dögunum í fé- lagsskap kengúruhóps í Ástralíu. Í haganum hjá henni eru líka tvö önnur hross, einnig af íslenskum uppruna. Eigandi hrossanna heitir Estelle Hobbins en hún kynntist íslenska hestinum fyrst 1997, þegar hún fór í ferð yfir Kjöl með Íshestum. Í bréfi sem hún sendir Einari Bollasyni for- stjóra, ásamt kengúrumyndinni, kveðst hún telja að hún hafi ver- ið fyrsti Ástralíubúinn til að fara slíka ferð. Eftir ferðina segist Estella hafa fengið hestabakteríuna og verið harðákveðin í að kaupa sér íslenskan hest. Þeir eru nú reyndar orðnir þrír, sem hún keypti með talsverðri fyrirhöfn og fyrir mikla peninga, segir hún. Þar sem enga slíka var að finna í Ástralíu, þurfi hún að leita til annarra landa. Hún keypti tvö íslensk hross frá Nýja Sjálandi, tólf vetra hryssuna Gránu og fimm vetra hest sem heitir Silfri. Dana er hins vegar fjögurra vetra og fædd í Ástral- íu. Estella ætlar að skella sér í hrossaræktun og segist vera far- in að leggja drög að annarri ferð með Íshestum. -jss Ísland fær um 300 milljónir Nor›ursló›aáætlun Evrópusambandsins hefur úthluta› 272 milljónum króna í fjögur verkefni sem Íslendingar taka flátt í. N‡veri› fengu fimm verkefni vilyr›i um styrk. Alls tekur Ísland flátt í 27 verkefnum sem í gangi eru á vegum Nor›ursló›aáætlunarinnar. EVRÓPUSAMSTARF Ísland er þátttak- andi í fjórum af fimm verkefnum sem stjórn Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins samþykkti að styrkja á fundi sínum fyrir skömmu. Heildarúthlutun til verkefnanna fimm er 381 milljón króna, en verkefnin fjögur sem Ísland tekur þátt í fá rúmar 272 milljónir króna. Að meðtöldum verkefnunum sem samþykkt voru nú tekur Ísland þátt í 27 verkefn- um á vegum áætlunarinnar. Ísland leiðir eitt verkefnanna fjögurra, en það snýst um sjúkra- flutninga og -þjónustu í dreifðum byggðum, en þátttakendur hér eru FSA Háskólasjúkrahús á Ak- ureyri og Sjúkraflutningaskólinn. Verkefnið fær 54,5 milljónir króna frá Norðurslóðaáætluninni fram til ársins 2007. „ Verkefnið tengir saman fólk með sérhæfða þekkingu og reynslu í sjúkraflutn- ingum og skipulagi þeirra í fá- mennum og dreifbýlum svæðum, með það að markmiði að greina skipulagið, þekkingu og hæfni þeirra sem stunda sjúkraflutn- inga á þessum svæðum,“ segir í lýsingu verkefnisins. Hildigunnur Svavarsdóttir, skólastjóri Sjúkra- flutningaskólans, segir enn unnið að lokafjármögnun verkefnisins, því Norðurslóðaáætlunin styrkir ekki verk nema að hámarki 60 prósent. „Verkefnið er stórt og mikið og ákjósanlegt fyrir landið og sjúkraflutninga hér að vera með,“ segir hún og kveðst mjög ánægð með þá viðurkenningu sem verkefnið hafi fengið með úthlut- uninni. Auk Íslands, taka nyrðri byggðir í Svíþjóð þátt og svo suð- ureyjar Skotlands, auk þess sem fleiri gætu bæst við. „Þetta er tveggja og hálfs árs verkefni og við sjáum fram á að þetta skili okkur töluverðu um skipulag á sjúkraflutningum og hvernig nýta má mannskap betur.“ Hin verkefnin þrjú sem fengu vilyrði um styrk eru af ýmsum toga. Eitt snýst um öryggi á sjó, en að því kemur Landhelgisgæsl- an og Háskóli Íslands, annað er framhaldsverkefni um atvinnu- ráðgjöf, sem Atvinnuþróunarsjóð- ur Suðurlands kemur að og svo er verkefnið Spatial North sem snýst um áætlanagerð og að kem- ur bæði Skipulags- og Byggða- stofnun. olikr@frettabladid.is Forstjóri Neytendastofu: Tryggvi rá›inn í stö›una NEYTENDUR Tryggvi Axelsson lög- fræðingur hefur verið skipaður í stöðu forstjóra Neytendastofu. Tryggvi var forstjóri Löggildingar- stofu frá árinu 2003 en sú stofnun var lögð niður vegna gildistöku nýrra laga um Neytendastofu og talsmann neytenda. Hann starfaði í viðskiptaráðuneytinu 1986-2003 að viðskipta- og neytendamálum. Auk embættisprófs í lögfræði og mál- flutningsréttinda hefur Tryggvi MBA gráðu í viðskiptafræðum og stjórnun frá Háskólanum í Reykja- vík. Hann tekur við störfum í dag. ■ Barnið kemur í næsta mánuði KEYPTI 20 MILLJÓN KRÓNA PARHÚS Í HVERAGERÐI MEÐ HEITUM POTTI OG SÓLPALLI: Linda flytur í heilsubæinn BANDARÍKIN MÁLIÐ ÞINGFEST Við þingfestingu máls Kers hf. á hendur ríkinu og samkeppnisyf- irvöldum lagði fyrirtækið fram fjölda gagna, en meðal annars var endurskoðun- arfyrirtæki fengið til að fara yfir hugsanleg- an ávinning af samráði olíufyrirtækjanna. Mál Kers þingfest: Vill fá sektir felldar ni›ur DÓMSTÓLAR Þingfest var í Héraðs- dómi Reyjavíkur í gær kæra eign- arhaldsfélagsins Kers, sem á Ol- íufélagið Essó, á hendur ríkinu og samkeppnisyfirvöldum til að fá ógiltan fyrri úrskurð áfrýjunar- nefndar samkeppnismála frá því í janúar um samráð olíufélaganna. Varakrafa Kers felur í sér niður- fellingu eða lækkun 495 milljóna króna sektar samkeppnisyfir- valda. Olís og Skeljungur, sem einnig hlutu sektir, undirbúa eigin stefnur á hendur ríkinu. Þá var einnig þingfest í gær skaðabótamál Neytendasamtak- anna á hendur Keri vegna ólög- legs samráðs olíufélaganna. - óká ÓFRESKJA DÆMD TIL DAUÐA Dómstóll í Kaliforníu hefur dæmt Marcus Wesson til dauða fyrir að myrða níu börn sín. Lík barnanna fundust í fyrravor, en þau hafði Wesson eignast með mörgum konum, þar á meðal nokkrum dætrum sínum. Wesson hefur einnig verið sakfelldur fyrir sifjaspell og nauðganir. DANA OG KENGÚRURNAR Líklega er þetta fyrsta myndin á heimsvísu sem tekin er af ís- lenskum hesti í félagsskap kengúra, en hana tók Estelle Hobbins eigandi íslensku hryssunnar Dönu. SJÚKRABÍLL FASTUR Í SNJÓ Sjúkraflutningum í dreifðari byggðum geta fylgt vandamál sem ekki þarf að takast á við í þéttbýli, en Norður- slóðaáætlun ESB hefur veitt vilyrði fyrir styrk til rannsókna á þeim málum. Norðurslóðaáætlunin nær til norðursvæða Finnlands, Svíþjóð- ar, Noregs og Skotlands, ásamt Grænlandi, Færeyjum og Íslandi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI NOREGUR ÓK BÍL INN Í MÖTUNEYTI Eftir þrjár tilraunir tókst konu nokk- urri að aka bifreið sinni inn í mötuneyti sjúkrahússins í Asker, nærri Osló, á þriðjudagskvöldið. Lögreglan handsamaði ökuníðing- inn skömmu síðar en ekki er vit- að hvað henni gekk til. Breiðband Símans: Loka› á Sirkus FJÖLMIÐLAR Síðdegis á mánudag, þremur dögum eftir að hafið var að senda sjónvarpsstöðina Sirkus út á merki PoppTíví, var lokað á útsendingar Sirkus á breiðbandi Símans. Eva Magn- úsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir ástæðuna þá að enginn samningur sé til á milli 356 ljósvakamiðla og Símans um að dreifa Sirkus á breiðbandinu eða um ADSL kerfi Símans; „En við höfum boðist til að dreifa öllu efni fyrir 365.“ Samningur var fyrir hendi um að PoppTíví yrði dreift á breiðbandinu og segir Gunnar Smári Egilsson, framkvæmda- stjóri 365 að Sirkus sé nú alls staðar dreift á sama dreifikerfi og þar sem áður var Popp Tíví. „Okkar breyting er ekki ólík nafnabreytingu, og það er sér- kennileg túlkun hjá Símanum að ekki þurfi að efna samninginn, þó við breytum nafni sjónvarps- stöðvarinnar. Að loka fyrir út- sendingu á breiðbandinu gagn- ast Símanum ekki en er skaði fyrir 365 og þó sérstaklega fyr- ir þau heimili sem hafa breið- bandið.“ ■ EITT ANDLITA SIRKUS Guðmundur Steingrímsson sér um kvöldþáttinn á Sirkus, sem er ekki dreift á breiðbandi Símans, þar sem sjónvarpsstöðin heitir ekki PoppTíví.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.