Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 12
VINARÞEL Landtökumaður stappar stál-
inu í ísraelskan hermann sem á bágt
með að rýma landnemabyggðirnar á
Gaza-ströndinni.
12 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
Starfshættir skólameistara Menntaskólans á Ísafirði:
Rannsókn í kjölfar bænaskjals
MENNTAMÁL Stjórn Félags fram-
haldskólakennara (FF) hefur sent
frá sér yfirlýsingu þar sem því er
fagnað að fram eigi að fara opin-
ber rannsókn á stjórnarháttum og
samskiptum innan Menntaskólans
á Ísafirði.
Í yfirlýsingunni segir að með
bréfi til lögmanns FF hafi
menntamálaráðuneytið skýrt frá
því að eftir viðræður hafi skóla-
meistari samþykkt að falla frá
frekari málsmeðferð á hendur
Ingibjörgu Ingadóttur. Í kjölfarið
hafi ráðuneytið ákveðið að gera
úttekt á stjórnarháttum innan MÍ.
Í yfirlýsingunni er því fagnað að
ráðuneytið hafi ákveðið að taka
fram fyrir hendur skólameistara.
Ólína Þorvarðardóttir skóla-
meistari MÍ sagðist í Fréttablað-
inu í gær ánægð með að ráðuneyt-
ið skildi fara fram á rannsókn.
Eins sagðist hún sjálf hafa farið
fram á að slík úttekt yrði gerð.
Samkvæmt yfirlýsingu FF var
það hins vegar eftir að ráðuneyt-
inu barst bænaskjal frá 25 starfs-
mönnum skólans og beiðni frá
stjórn FF að ákveðið var að gera
þessa úttekt. - oá
Uppgröftur í Vestmannaeyjum:
Tíu hús grafin úr ösku
UPPGRÖFTUR Tvö hús sem fóru á
kaf í ösku í Vestmannaeyjagosinu
1973 verða grafin upp á vegum
Vestmannabæjar í sumar með
styrk frá Ferðamálaráði Íslands.
Bærinn hefur keypt tíu hús sem
fóru undir ösku í gosinu og er
stefnt að því að grafa þau öll upp
næstu tíu árin.
„Þetta er einstakt verkefni,
hefur aldrei verið gert áður. Í
Pompei eru minjarnar mjög gaml-
ar en hér er um að ræða nýlegar
gosleifar og einsdæmi að fyrrver-
andi eigendur húsanna fylgist
sjálfir með uppgreftrinum,” segir
Kristín Jóhannsdóttir menningar-
og markaðsfulltrúi Vestmanna-
eyjabæjar og verkefnastjóri upp-
graftarins.
Byggt verður yfir húsin og þau
gerð að safni, en slíkt safn hefur
verið á aðalskipulagi bæjarins.
Uppgröftur húsanna hefur verið
draumur margra Eyjamanna um
langt skeið að sögn Kristínar.
„Flestir eru mjög spenntir fyrir
þessu.“ Uppgröfturinn hefur
gengið vel enda askan laus í sér.
„Þetta er mjög heillegt. Útveggir
standa enn, málningin er utan á
þeim, og rúður eru heilar.“
Unnið er að heimildamynd um
uppgröftinn og von er á erlendum
blaðamönnum vegna verkefnis-
ins. - rgs
Spænska þingið stígur skref í frjálsræðisátt:
Hjónabönd samkynhneig›ra lögleidd
MADRÍD, AP Spænska þingið hefur
samþykkt frumvarp um að leyfa
hjónabönd samkynhneigðra.
Frumvarpið, sem er hluti af fé-
lagslegum umbótum spænska
sósíalistaflokksins, heimilar
samkynhneigðum pörum einnig
að ættleiða börn og erfa eigur
hvors annars.
Þegar kom í ljós að lögin yrðu
samþykkt stóðu fylgjendur lag-
anna í þinginu á fætur og fögn-
uðu með lófataki. Inni í þingsöl-
um og fyrir utan þinghúsið höfðu
stuðningsmenn úr röðum sam-
kynhneigðra safnast saman og
sendu þingmönnum fingurkossa.
Margir telja merk tíðindi að
Spánverjar séu svo framarlega í
réttindamálum samkynhneigðra
en landið hefur lengi verið talið
íhaldssamt þar sem þorri íbú-
anna er kaþólskur. Holland og
Belgía eru einu Evrópulöndin
sem heimila samkynhneigðum
að giftast samkvæmt landslög-
um.
Andstæðingar lagana hafa
haldið því fram að breytingarnar
séu óábyrgar af hálfu Zapatero,
forsætisráðherra Spánar. Hann
muni með þessu fá hálfa þjóðina
upp á móti sér. Kannanir sýna þó
að einungis um þrjátíu prósent
Spánverja séu á móti hjónabönd-
um samkynhneigðra. ■
Vernd Genfarsáttmála:
Íslendingar
efins um gildi
KÖNNUN Einungis þrettán prósent
Íslendinga telja að Genfarsátt-
málinn veiti fólki vernd á stríðs-
tímum, einungis Norðmenn hafa
minni trú á þeirri vernd sem sátt-
málinn veitir. Afganar hafa mesta
trú á samningnum, 74 prósent
telja hann veita fólki vernd á
stríðstímum.
Þetta er niðurstaða fjölþjóð-
legrar könnunar á því hversu vel
fólk kannast við Genfarsáttmál-
ann og trú fólks á honum.
Þrír af hverjum fjórum Íslend-
ingum höfðu heyrt um sáttmálann
samkvæmt könnuninni.
- bþg
Hættur leynast víða:
Hry›juverk
í mjólkinni
BANDARÍKIN Bandaríska vísindaaka-
demían hefur ákveðið að halda
áfram birtingu á rannsókn sinni um
mögulegar leiðir hryðjuverka-
manna til þess að
eitra bandarísku
mjólkina, sam-
kvæmt fréttavef
CNN. Í rannsókn-
inni kemur í ljós
að hægt er að
eitra fyrir hund-
ruð þúsunda
Bandaríkjamanna
á mjög einfaldan
hátt með því að
grípa inn í fram-
leiðsluferli mjólkurinnar. Birtingin
hefur verið harðlega gagnrýnd
vegna þess að margir telja að í
henni séu leiðbeiningar til hryðju-
verkamanna um hvernig þeir eigi
að ná til bandarísku þjóðarinnar. ■
Strákarnir
árita í dag
BT Smáralind
kl. 2 til 3
BT Kringlunni
kl 3 til 4
1.999
MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Mennta-
málaráðuneytið hefur nú ákveðið að
gerð verði úttekt á stjórnarháttum
skólameistara MÍ.
SPÆNSKIR HOMMAR FAGNA Spænska
þingið samþykkti ný lög sem leyfa sam-
kynhneigðum pörum að ganga í hjóna-
band, ættleiða börn og erfa eigur hvors
annars.
ELLIÐI VIÐARSON OG VIÐAR EINARSSON Viðar var sex ára í gosinu og hér stendur hann
yfir húsi föður síns, Einars Ólafssonar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
H
AN
N
I
N
G
I Á
R
N
AS
O
N
MJÓLKURVINNSLA
Bandaríkjamenn
hafa áhyggjur af
því að hryðjuverka-
menn eitri fyrir
þeim mjólkina.