Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.07.2005, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 01.07.2005, Qupperneq 28
Gamlir tímar og nýir mætast í veitingastaðnum Fjalakettin- um sem tilheyrir Hótel Reykjavík Centrum í Aðal- stræti. Á matseðlinum eru hefðbundnir íslenskir réttir og íslenskt hráefni er notað á ný- stárlegan máta í alþjóðlegum réttum. Fjalakötturinn er nútímalegur veitingastaður sem minnir á gamla tíma. Framhlið staðarins er nákvæm eftirlíking af framhlið gamla Fjalakattarins sem stóð í Aðalstræti 8 og var fyrsta leikhús landsins. Leiklistin hefur vikið fyrir matargerðarlistinni er minningin um húsið er sterk og við innganginn mætir gestunum risastór ljósmynd af gamla hús- inu. Tvær elstu myndir sem tekn- ar voru af Reykjavík eru á einum vegg staðarins og á öðrum veggj- um getur að líta gamlar myndir af borginni. „Við vildum hafa staðinn hlý- legan og halda í söguna en hafa hann nútímalegan á sama tíma,“ segir Ómar Sigurðsson, hótel- stjóri Hótel Reykjavík Centrum, þar sem veitingastaðinn er að finna. Matseðillinn endurspeglar vissulega þetta viðhorf þar sem íslenskt hráefni í nútímalegum réttum spilar stórt hlutverk. „Rík áhersla er lögð á að nota íslenskt hráefni og við erum við jafnframt með mikið af þjóðleg- um réttum eins og plokkfisk, salt- kjöt og baunir og hangikjöt sem færðir hafa verið í nýjan búning,“ segir Ómar. Hann segir erlenda ferðamenn vera forvitna um þessa rétti og Íslendingar taki þeim vel. „Hangikjöts-carpaccio er afar vinsælt hjá okkur, auk þess sem fiskurinn er mjög vin- sæll og lambið,“ segir Ómar. Í næsta húsi, en þó sama húsi, er kaffihús hótelsins sem heitir Uppsalir og þar gefst gestum veit- ingastaðarins kostur á að blanda geði við kaffihúsagesti og drekka þar kaffið eftir matinn, eða sitja í róleguheitunum við heita kamínu. Viss götustemning ríkir á hótelinu og er tilfinningin sú að maður hafi gengið yfir götuna inn á næsta stað og Fjalakötturinn sé eitt húsið í lítilli þyrpingu þar sem huggulegheit og gömul saga svíf- ur yfir vötnum. kristineva@frettabladid.is Gulrætur Gulrætur voru fyrst ræktaðar í Afganistan á sjöundu öld og voru þá gular að innan, en fjólubláar að utan. Það voru Hollendingar sem þróuðu appelsínugula gulrót.[ ] S í m i : 5 6 8 6 4 4 0 | b u s a h o l d @ b u s a h o l d . i s Stá lpottasett á góðu verði Brúðhjónal istar og gjafakort Kaffihús: Laugavegi 24 Smáralind Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri Galapagos er ein af fegurstu náttúruparadísum jarðar. Þessar baunir eru mjög sjaldgæfar og er þetta í fyrsta sinn sem baunir frá Galapagos fást á Íslandi. Það er bannað með lögum að koma með kemísk efni á eyjuna og er kaffið því 100 % lífrænt. Kaffiáhugafólk ætti ekki að láta þetta kaffi fram hjá sér fara. Kaffið er í frábæru jafnvægi, með meðal fyllingu og einstöku eftirbragði. Njótið vel ! Galapagos Nú á frábæru kynningarverði í öllum verslunum Te og kaffi 250 gr. - kr 795 Kaffi mánaðarins Júlí - 2005 is ak w in th er .c om Fjalakötturinn mjálmar að nýju Ómar Sigurðsson, hótelstjóri Hótel Reykja- vík Centrum, fyrir framan elstu myndina. Flestir þekkja Montecillo-vínin hennar Maríu Martinez, víngerðarkon- unnar heimsþekktu. Nú er María komin með nýtt vín sem heitir Solaz og er framleitt í hjarta Spánar, í Kastillíu-héraði. Vínið er blanda af þrúgunum cabernet sauvignon og hinni spænsku tempranillo. Vínið þykir einkar hagstætt í kaupum, vínrýnir- inn frægi Robert Parker gefur því 87 í einkunn, segir það ein bestu kaup á markaðnum og undir það tekur tíma- ritið Wine Enthusiast sem gefur því 85 í einkunn. Vínið fékk einstaklega góða dóma í Morgunblaðinu fyrir eigi alls löngu og Þorri Hringsson, vínrýnir Gestgjafans, taldi þetta eitt albesta kassavínið í úttekt sem hann gerði á kassavínum sl. sumar. Osborne Solaz er kjörið með grill- uðu kjöti, kjúklingi, ostum, pastarétt- um og vert er að benda á að fá rauðvín eiga betur við lax. Það er auðdrekkan- legt með miklum ávexti og kryddtón- um. Kynningarverð á sumardögum í Vínbúðum 3.390 kr. SOLAZ: Ein bestu kaupin FAXE RED: Nýr rauður 5% bjór Til áratuga var hefð fyrir rauðum lager- bjórum í Danmörku en yfirvöld stöðvuðu framleiðsluna vegna notkunar aukaefna sem þóttu skaðleg. Hefðin lá niðri um nokkurt skeið en engu að síður dreymdi danska bruggmeistara áfram um að gera rauðan lagerbjór með heilbrigðum hætti og loks duttu bruggmeistarar Faxe niður á réttu formúluna. Bjórinn er venjulegur lagerbjór, bruggaður úr vatni, malti og humlum. Í hann er bætt lit úr kirsuberjum og jarðar- berjum til að fá þann rauða lit sem ein- kennir bjórinn; með öðrum orðum er eng- um aukaefnum bætt í bjórinn og fólki því óhætt að drekka heilu baðkerin af miðin- um þess vegna! Enda Faxe með alveg hreina stefnu í þeim málum, engin e-efni eða aukaefni eru í bjórnum. Við þetta verður bjórinn svolítið ávaxtakenndur og mjög auðdrukkinn. Bjórinn höfðar jafnt til karla og kvenna og er tilvalin tilbreyting í garðveislur og á sólpallinn í sumar. Verð í Vínbúðum 189 kr. í 500 ml dós. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N EFST: Séð inn í veitingasalinn. TIL VINSTRI: Framhlið hússins er nákvæm eftirlíking af gamla Fjalakettinum sem stóð í Aðalstræti. FYRIR OFAN: Matargerðarlist í Fjalakettinum. HÚSRÁÐ: KRYDDAÐAR KARTÖFLUR Köldu kartöflurnar frá gærdegin- um eru ágætismatur. Afhýðið þær og skerið í báta eða skífur en nýjar kartöflur er óþarfi að flysja. Steikið bátana upp úr smjöri á pönnu og kryddið með salti og örlitlu timjan eða dilli. Snúið kartöflunum þar til þær hafa fengið lit. Ef notaðar eru ósoðnar kartöflur þarf að steikja þær lengur en flýta má fyrir mat- reiðslunni með því að setja þær stutta stund í örbylgjuofn. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.