Fréttablaðið - 01.07.2005, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 1. júlí 2005 31
LEIKIR GÆRDAGSINS
Landsbankadeildin:
FH–FRAM 3–1
ÞRÓTTUR–VALUR 0–2
KEFLAVÍK–GRINDAVÍK 1–1
STAÐAN:
FH 9 9 0 0 26–5 27
VALUR 9 7 0 2 20–5 21
KEFLAVÍK 9 4 3 2 16–19 15
FYLKIR 8 3 2 3 14–14 11
KR 8 3 1 4 8–11 10
ÍA 8 3 1 4 7–11 10
GRINDAVÍK 9 2 3 4 10–16 9
FRAM 9 2 2 5 10–12 8
ÍBV 8 2 0 6 6–18 6
ÞRÓTTUR 9 1 2 6 11–17 5
Norski bikarinn:
ROSENBORG–HÖNEFOSS 1–2
START–VALERENGA 2–3
Jóhannes Harðarsson var í byrjunarliði Start en
fór útaf Árni Gautur Arason lék að venju allan
leikinn fyrir Valeranga
VIKING–LILLESTRÖM 0–2
Hannes Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Viking.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
28 29 30 1 2 3 4
Föstudagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
20.00 KS mætir Völsungi á
Siglufirði.
20.00 Víkingur Ólafsvík fær Fjölni
í heimsókn.
20.00 Víkingur tekur á móti
Haukum á heimavelli.
20.00 KA mætir Breiðabliki á
Akureyrarvelli.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn.
07.30 Olíssport á Sýn.
08.00 Olíssport á Sýn.
08.30 Olíssport á Sýn.
16.50 Fótboltakvöld á RÚV.
17.00 Landsbankadeildin á RÚV.
18.40 Olíssport á Sýn.
19.10 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.35 Motorworld á Sýn.
20.05 World Supercross á Sýn.
21.00 World Poker Tour 2 á Sýn.
22.30 K-1 á Sýn.
23.25 Gullmót í frjálsum á RÚV.
JOE, AVI OG BRYAN SYNIR MALCOLM GLAZER. Synir Malcolm Glazer voru hinir rólegustu
er þeir virtu fyrir sér Old Trafford í fyrradag, en þeir lentu í miklum vandræðum þegar æst-
ir stuðningsmenn Manchester United biðu þeirra fyrir utan völlinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Stuðningsmenn Man Utd efast um metnað Glazer:
Heimsókn Glazer-fe›ga veldur
uppfloti í Manchester
FÓTBOLTI Hundruð stuðningsmanna
Man. Utd mótmæltu harðlega
heimsókn Malcolm Glazer og sona
hans þriggja til Manchester í
fyrrakvöld, þegar þeir skoðuðu
Old Trafford, heimavöll félagsins.
Heimsóknin átti að vera leyni-
leg en fljótt spurðist út í borginni
að feðgarnir væru á staddir á vell-
inum. Stuðningsmennirnir söfn-
uðust saman fyrir utan Old Traff-
ord og reyndu að koma í veg fyrir
að Glazer feðgarnir kæmust keyr-
andi í burtu frá vellinum.
Glazer á nú orðið níutíu og átta
prósenta hlut í félaginu og stjórn-
ar því orðið alfarið. Stuðnings-
menn liðsins eru ósáttir og mót-
mæla kröftulega dag eftir dag.
Upp úr sauð í fyrrakvöld þegar
feðgarnir ætluðu að yfirgefa völl-
inn og þurfti að kalla til tugi lög-
reglumanna til þess að ná tökum á
æstum mannfjöldanum. Feðgarn-
ir komust í burtu í stórum lög-
reglubíl.
Glazer hafði deginum áður hitt
íþróttamálaráðherra Bretlands,og
sannfærði hann ráðherrann um að
hann hyggðist reyna eftir fremsta
megni að láta félagið ná sem best-
um árangri í keppnum, en margir
stuðningsmanna félagsins hafa
efast um að Glazer setji velgengni
Manchester United í fyrsta sæti á
forgangslista sínum. - mh
Forráðamenn Real Madrid hröktuí gær allar sögusagnir þess efnis
að Michael Owen væri á leið frá fé-
laginu í sumar, en hann hefur með-
al annars verið orðaður við Man.
Utd. Arrigo Sacchi, yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá félaginu, segir að
Owen hafi aldrei haldið því fram að
hann væri óánægður hjá félaginu.
„Hann er ekki til sölu því hann er
svo sannarlega inni í plönum þjálf-
ara liðsins,“ sagði Sacchi.
Brasilíski sóknarmaðurinn Ron-aldo viðurkenndi í gær að hann
óttaðist að sæti hans í landsliðinu
væri á bak og burt. Brasilía vann
Álfukeppnina með sannfærandi
hætti í vikunni þar sem Ronaldo
fékk frí en í hans fjarveru blómstraði
Adriano og fór létt með að tryggja
sér byrjunarliðssæti næsta árið með
frammistöðu sinni. „Þjálfarinn sagði
við mig að ég ætti öruggt sæti í
hópnum en ég held að hlutirnir virki
ekki þannig. Ég sé ekki eftir því að
hafa farið í frí en nú verður erfiðara
fyrir mig að vinna sætið aftur.“
Annar leikmaður sem sló í gegn ífjarveru Ronaldo er sóknarmað-
urinn Robinho, sem er líklega eftir-
sóttasti leikmaður heims um þessar
mundir. Eftir sigurinn í Álfukeppn-
inni lýsti hann því yfir að hann vildi
helst fara til Real Madrid, en
Arsenal er einnig að reyna að lokka
hann til sín. „Ég hef talað við full-
trúa félagsins og ég held að það
yrði gott fyrir feril minn að fara
núna,“ sagði Robinho.
ÚR SPORTINU