Fréttablaðið - 01.07.2005, Síða 50

Fréttablaðið - 01.07.2005, Síða 50
38 1. júlí 2005 FÖSTUDAGUR ■ ■ TÓNLEIKAR  17.00 Hljómsveitin Æla leikur í Gallerí Humar eða frægð, Kjörgarði.  20.00 Karlakórinn Os frá Noregi með tónleika í Norræna húsinu  21.00 Tónleikar Guðrúnar Gunn- arsdóttir ásamt þeim Friðriki Ómari Hjörleifssyni og Valgeiri Skagfjörð á hinu nýja ferðaþjónustusvæði á Fossatúni í Borgarfirði.  21.30 Brasilíukvintett Ife Tolentino og Óskars Guðjónssonar leikur í Iðnó.  22.00 Hljómsveitirnar Shadow Parade, Ókind og Kalli Tenderfoot spilar á Grandrokk. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. FUGLAR Gestum sýningar Aðalheiðar gefst kostur á að bæta fuglum og fiskum við þá sem hún hefur smíðað. Þorsteinn Gylfason, Joris Rademaker og fjölþjóðabandið Mimoun eru meðal þeirra sem troða upp með sköpun sína klukkan 12 alla dagana á meðan sýn- ingin stendur yfir. Hafsjór af fuglum og fiskum Aðalheiður S. Eysteinsdóttir verð- ur með opið verkstæði í porti Hafnarhússins dagana 1. til 6. júlí. „Verkefnið verður í gangi allan tímann sem ég verð með sýning- una þarna, alltaf verður eitthvað að bætast við því fólk getur kom- ið með eigin fiska og fugla og bætt þeim við þá skúlptúra af fiskum og fuglum sem ég hef gert úr tré og ég sýni á sýningunni. Í hádeginu koma svo ýmsir gestir með sköpun sína og deila henni með sýningargestum. Þorsteinn Gylfason kemur meðal annars og les ljóð sem hann hefur þýtt sem fjalla um fugla og Guðbrandur Siglaugsson les frumsamin ljóð sín sem fjalla um skilin á milli náttúruaflanna,“ segir Aðalheiður og bætir við að fólk þurfi ekki að svelta því hægt verði að kaupa súpu á staðnum. „Ég vona að sem flestir komi og leggi sýningunni lið með sköp- un sinni, að þarna verði hafsjór af fuglum og fiskum sem skapa muni skemmtilega stemmningu,“ segir Aðalheiður, sem sett hefur upp 90 svipaða listviðburði á síð- ustu 10 árum. Dagskrá sýningarinnar er að finna á vef Listasafns Reykjavík- ur www.listasafnreykjavikur.is. ■ Sumarsýning Listasafnsins á Akureyri verður opnuð laugar- daginn 2. júlí klukkan 15. Sýn- ingin fjallar um ófreskjur og kynjaverur af öllum gerðum í íslenskri myndlist allt frá frá verkum Ásgríms Jónssonar og fram á okkar daga. „Það hefur verið siðvenja okkar hér á Listasafni Akureyr- ar að hafa íslenska list til sýn- ingar á sumrin, þegar mikið er af útlendingum hér á landi og Ís- lendingar eru að ferðast innan- lands,“ segir Hannes Sigurðs- son, forstöðumaður listasafns- ins á Akureyri. Hannes segir sýninguna ekki síst fjalla um skrímslin í okkur sjálfum því án óttans sem við berum í brjósti eru ekki til nein skrímsli. Úlfhildur Dagsdóttir bók- menntafræðingur er sýningar- stjóri sumarsýningarinnar að þessu sinni. „Mér er ómögulegt að átta mig á hrifningu minni á skrímslum, en ég hugsa stund- um með sjálfri mér að nafn mitt Úlfhildur, hafi ekki beint gefið mér mikið val. Skrímsli eru al- mennt tengd ótta og skelfingu, árásargirni og illsku. Skrímslið er andstæða mennskunnar, það þrífst á manninum, bókstaflega, því flest skrímsli eru mannætur, myndgerving á ótta mannsins,“ segir Úlfhildur. Sýningin mótast annars vegar af hugmyndum Úlfhildar og hins vegar af úrvali verka í eigu Listasafns Reykjavíkur og Lista- safns Íslands auk þess sem leitað var til fjölmargra listamanna um lán á verkum. Á sýningunni verða sýnd verk eftir 23 lista- menn, m.a. Ásgrím Jónsson, Ás- mund Sveinsson, Erró, Dunga- non, Alfreð, Gabríelu Friðriks- dóttur, Huldu Hákon, Ólöfu Nor- dal og Þorra Hringsson. Sýningin stendur til 21. ágúst. ■ Íslensk skrímsli í heila öld Trío Trix á Akureyri HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 28 29 30 1 2 3 4 Föstudagur JÚLÍ TRÍÓ TRIX Tríóið er skipað þeim Sigríði Bjarneyju Baldvinsdóttur fiðluleikara, Vigdísi Más- dóttur víóluleikara og Helgu Björg Ágústsdóttur sellóleikara. Þær stöllur munu halda tón- leika í Ketilhúsinu á Akureyri föstudaginn 1. júlí klukkan 12. F31300605 TríóTrix ÚTI VIÐ HAFSAUGA... Verk eftir Huldu Hákon sem unnið var sérstak- lega fyrir sýninguna og sýnt verður á árlegri sumarsýningu Listasafnsins á Akureyri. Að þessu sinni fjallar sýn- ingin um ófreskjur og skrímsli og 23 listamenn sýna verk sín. Tríóið Trio Trix heldur tónleika klukkan 12 í dag í Ketilhúsinu á Akureyri á vegum Listasumars á Akureyri 2005. Tríóið er skipað hljómlistar- konunum Sigríði Bjarneyju Bald- vinsdóttur fiðluleikara, Vigdísi Másdóttur víóluleikara og Helgu Björg Ágústdóttur sellóleikara og mun það vera eina starfandi strengjatríóið á Íslandi en það hefur starfað óslitið síðan 2003. Á efnisskránni eru Serenada op. 10 eftir Ernst von Dohnányi, strengjatríó í B-dúr eftir Franz Schubert og strengjatríó í a-moll eftir Max Reger. Á þriðjudagskvöldið klukkan 20.30 mun tríóið svo leika í Lista- safni Sigurjóns í Reykjavík. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.