Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 2
2 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR Fyrstu útgönguspár vegna þingkosninga í Albaníu: Stjórnarandstö›unni spá› sigri TIRANA, AP Fyrstu útgönguspár í gær benda til þess að stjórnarand- staðan hafi sigrað þingkosning- arnar í Albaníu, sem haldnar voru í gær. Von er á opinberri niður- stöðu síðar í dag. Eftir því sem einkarekna stjórnvarpsstöðin Klan skýrði frá í gærkvöld hafði Lýðræðisflokkur Sali Berisha, sem er í stjórnarand- stöðu, meirihluta í 11 kjör- dæmum. Sósíalistaflokkur Fato Nano forsætisráðherra, hafði náð meirihluta atkvæða í fjórum kjör- dæmum. Berisha hvatti stuðn- ingsmenn sína til þess að sýna stillingu og fagna ekki of snemma. Frekar að bíða þar til úr- slit kosninganna væru ljós. Hund- ruð stuðningsmanna höfðu safn- ast saman fyrir fram höfuðstöðv- ar Lýðræðisflokksins til að fagna þessum fréttum sjónvarpsstöðv- arinnar. Gramoz Ruci, háttsettur maður innan Sósíalistaflokksins kallaði útgönguspána fáránlega. Einhverjir kjörstaðir voru enn opnir, tveimur tímum eftir að þeir áttu að loka, til að þúsundir kjós- enda sem mættu of seint gætu kosið. Um fimmhundruð aðilar frá alþjóðlegum stofnunum fylgd- ust með því að kosningarnar færu rétt fram. Samkvæmt albönsku lögregl- unni var starfsmaður á kjörstað í Tirana skotinn í gærkveldi og lést hann skömmu síðar á sjúkrahúsi. Ekkert frekar er vitað um tildrög málsins. ■ Gestir Humarhátíðar: Flú›u í íflróttahúsi› LÖGREGLA All margir gestir humar- hátíðar á Höfn þurftu aðstoð frá björgunarsveitum við að taka sam- an föggur sínar þegar veðrið tók að versna í gærmorgun. Þar sem ekki var ráðlagt að vera á ferðinni vegna veðurs leituðu um 80 manns skjóls í íþróttahúsinu og biðu þar eftir að veðrinu slotaði. Starfsmenn Rauða krossins buðu upp á heita súpu og björgunarsveitamenn voru fólki innan handar. Upp úr hádegi skán- aði veðrið og menn fóru að tygja sig til síns heima. Humarhátíðin fór að öðru leiti ágætlega fram en gestir voru tals- vert færri en búist var við. Ölvun var þó nokkur en lítið um slagsmál og læti. - þo SPURNING DAGSINS Jón, eru› fli› rolur? Það er nú annarra að dæma um það en hæfi ráðherra verður að vera hafið yfir allan vafa. Davíð Oddsson segir stjórnarandstöðuna ekki hafa þorað að láta lögmenn á sínum snærum svara spurningunni um hvort Halldór Ásgrímsson hafi verið hæfur í bankasölumálinu. Jón Bjarna- son er þingmaður Vinstri grænna. Óvissa me› kaup Baugs á Somerfield Í breskum fjölmi›lum í gær var sagt frá flví a› Baugur hafi bo›ist til a› draga sig út úr vi›ræ›um um kaup á bresku verslanake›junni Somerfield í kjölfari› á kæru Ríkislögreglustjóra. Hreinn Loftsson stjórnarforma›ur Baugs segir fletta rangt. BAUGSMÁLIÐ Breska blaðið Sunday Times greindi frá því í gær að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefði boðist til að draga sig út úr viðræðum um kaup á bresku verslanakeðjunni Somerfield í kjölfar 40 liða kæru sem Ríkislög- reglustjóri gaf út á hendur sex að- ilum tengdum Baugi síðastliðinn föstudag. Ein af ástæðunum er talin vera sú að bankastofnanir yrðu tregar til að lána Baugi fé vegna kaupanna meðan óvissa ríkti um framtíð fyrirtækisins. Fleiri breskir fjölmiðlar fjölluðu um málið í gær svo sem eins og Financial Times, Daily Telegraph og Sunday Herald. „Fyrirtækið greindi frá því á föstudag að þessi ákæra myndi ekki hafa nein áhrif á starfslega getu félagsins til þess að standa við skuldbindingar sínar og mun- um við kappkosta að halda áfram okkar striki. Við leggjum höfuðá- herslu á að fyrirtækið verði ekki fyrir skakkaföllum Ég kannast því ekkert við að Baugur hafi boðist til að draga sig út úr fyrir- tækjahópnum og Jón Ásgeir kann- ast ekkert við að hafa gefið út yfirlýsingu þess efnis,“ segir Hreinn Loftsson, stjórnarformað- ur Baugs, um fréttir breskra dag- blaða um að Baugur hafi boðist til að draga sig út viðræðum vegna kaupa á Somerfield. Baráttan um Somerfield stend- ur milli tveggja fyrirtækjahópa, annars vegar fjárfestingarfélags- ins London & Regional og hins vegar hóps þar sem eru Baugur Group hf., Apax, Barclays Capital og kaupsýslumaðurinn Robert Tchenguiz. Fyrirtækahópurinn hafði áformað kynningu á tilboði sínu eftir örfáa daga. Í Sunday Times var haft eftir ónefndum ráðgjafa fyrirtækja- hópsins, sem Baugur tilheyrir, að hann væri viss um að Baugur drægi sig út út úr samninga- viðræðunum ef ákæran hefði óæskileg áhrif á hópinn. Ráð- gjafinn sagði að hópurinn myndi halda áfram að undirbúa kauptil- boðið þrátt fyrir að Baugur hafi átt að leggja til 25 prósent kaup- verðsins á Somerfield sem talið er nema um 127 milljörðum króna. Blaðamaður Daily Telegraph sagði í gærkvöldi að hann hefði heyrt að Baugur ætlaði sér að halda áfram í fyrirtækjahópnum en það væri spurning hvort hin fyrirtækin í hópnum vildu halda áfram samstarfi við Baug í ljósi aðstæðna. Ekki náðist í Jón Ásgeir Jóhannesson vegna málsins. ingi@frettabladid.is Kjalarnes: Fauk út af BIFHJÓLASLYS Um klukkan fjögur síðdegis í gær fauk bifhjól út af veg- inum á Kjalarnesi. Gríðarlegt hvassviðri og rigning olli því að víða var illfært um vegi landsins og var ástandið sérlega slæmt á Vestur- landsvegi. Ökumaður bifhjólsins slapp ómeiddur og hjólið skemmdist lítið. Í kjölfar slyssins var gefin út við- vörun til fólks um að takmarka ferðir sínar um Vesturlandsveg allt frá Mosfellsbæ til Borgarness. Öku- menn með fellihýsi og aðra aftaní vagna voru sérstaklega varaðir við að vera á ferðinni. ■ Lúðvík Bergvinsson um þýska bankann: Ríkisstjórnin líklega blekkt VIÐSKIPTI „Ef þýski bankinn keypti aldrei bréf í Búnaðar- bankanum, eins og haldið er fram, hefur ríkisstjórnin líklega verið blekkt,“ segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, um hinn þráláta orðróm að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi aldrei átt bréf í Búnaðarbankanum. „Gengið var út frá því að er- lendur aðili reiddi fram eigið fé til kaupanna. Þátttaka hans var forsenda þess að kaupandi fengi að kaupa bréfin. Forsætisráð- herra, persónulega í gegnum eignarhald sitt á hlut í hlutafé- lagi, ásamt hlutafélögum í eigu ættingja hans og vina úr fram- sóknarflokknum og fleiri, áttu í viðræðum um kaupin og keyptu bréfin,“ segir Lúðvík og segir kaupendur hafa hagnast um tugi milljarða. „Ef fullyrðingar háskóla- manna, fjölmiðlamanna og fleiri eru réttar um að erlendur banki hafi aldrei lagt fram eigið fé til kaupanna hafa kaupendur lík- lega haft uppi blekkingar. Þá vaknaði spurningin um hvað nú- verandi forsætisráðherra vissi um raunverulega aðild þýska bankans, einkum í ljósi þess hverjir keyptu. Það yrði mikil- vægt að fá svar við þeirri spurn- ingu, komi í ljós að þýski bank- inn hafi aldrei reitt fram eigið fé til kaupanna.“ - hb LÚÐVÍK BERGVINSON Lúðvík segir að spurningar hafi vaknað um hvað Halldór Ásgrímsson vissi um raun- verulega aðild Hauck & Aufhäuser að kaupunum bréfa í Búnaðarbankanum. ÁHRIF ÁKÆRUNNAR Samkvæmt frétt á vefsvæði Financial Times í gærkvöldi er talið lík- legt að Baugur dragi sig út fyrirtækjahóp sem ætlar að bjóða í bresku verslunarkeðjuna Somerfield í kjölfar útgáfu ákæru Ríkislögreglustjóra á hendur fyrirtækinu. SALI BERISHA Fyrrum forseti Albaníu og leiðtogi stjórnarandstöðunnar hvatti til stillingar í gærkveldi, eftir að sjónvarpsstöð hafði spáð flokki hans sigri í kosningunum sem haldnar voru í gær. LÖGREGLUFRÉTTIR BÍLVELTA Í HVALFIRÐI Jeppi valt við Hvammsvík í Hvalfirði á sjö- unda tímanum í gærkvöld. Í bílnum voru hjón með dóttur sína og voru þau öll flutt á slysadeild. Þau eru að líkindum ekki eins slösuð og talið var í fyrstu. Bíllinn er gjör- ónýtur. Mjög hvasst var á þessum slóðum í gær og ekki ólíklegt að slysið megi rekja til þess. Snæfellsnes: Húsbíll fauk út af veginum LÖGREGLA Síðdegis í gær fauk hús- bíll út af veginum við Böðvarsholt í Staðarsveit. Bíllinn er gjörónýtur en allir sem í bílnum voru sluppu nokkuð vel og fengu að fara heim eftir læknisskoðun. Að sögn lögreglu í Ólafsvík var helgin lífleg á Snæfellsnesinu en gekk stórslysalaust fyrir sig. Margir héldu snemma heim af færeyskum dögum vegna veðurs. Talsvert magn fíkniefna fannst á hátíðinni enda gerði lögreglan sér- stakt átak í þeim efnum. ■ BÍLVELTA VIÐ BÖÐVARSHOLT Engin meiðsl urðu á fólki en bíllinn er ónýtur. M YN D /T H EL M A TÓ M AS SO N Evrópubúar varaðir við: Ásakanirnar uppspuni ÍRAN, AP Íran hefur varað Evrópu- búa við því að falla í gildru Banda- ríkjamanna og fordæma Ahmadi- nejad, nýkjörinn forseta landsins. Síðustu daga hafa birst fjölmargar fréttir sem tengja forsetann við gíslatökuna í Tehran árið 1979, þegar stúdentar tóku yfir sendiráð Bandaríkjanna og héldu gíslum í 444 daga. „Ásakanirnar eru svo greinilega rangar að þær verðskulda ekki einu sinni að þeim sé svarað,“ sagði tals- maður utanríkisráðuneytisins í Íran. Hann segir að ásakanirnar séu áróður sem runnin er undan rifjum Síonista í Bandaríkjunum og að leið- togar Evrópuríkja ættu ekki að taka mark á þeim. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.