Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 4. júlí 2005 15 www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 81 6 0 6/ 20 05 Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Prius - 63% afsláttur af aðflutningsgjöldum Verð: 2.490.000 kr. Okkur er það sérstök ánægja að geta nú boðið umh- verfisvæna tvinnbílinn Prius, bíl ársins í Evrópu árið 2005, á mun lægra verði en áður eða aðeins 2.490.000 kr. Prius er einstakur bíll sem tvinnar saman raforku og bensíneldsneyti. Hann gefur frá sér lítinn sem engan útblástur í tafsamri umferð eða í innanbæjarakstri og umhverfið hagnast. En þú hagnast líka. Fyrir þig er það umtalsverður sparnaður að aka bíl með einstakri eldsneytisnýtingu eða um 4,1 l á hverja 100 km. Settu í græna gírinn! Aktu á Prius! Þú sparar og umhverfið hagnast Hinn fyrsta júlí urðu miklar breytingar á samkeppniseftirliti þegar ný lög tóku gildi. Samkeppnisstofnun var lögð niður og Samkeppniseftirlitið tók við flestum hennar verkefnum. Hvernig er nýja skipulagið? Yfir Samkeppniseftirlitinu starfar for- stjóri sem skal sjá um daglegan rekstur og stjórnun stofnunarinnar ásamt því að ráða starfsmenn hennar. Forstjórinn ber síðan ábyrgð gagnvart þriggja manna yfirstjórn sem er skipuð af ráðherra. Fyrir gildistöku laganna sáu Samkeppnisstofnun, samkeppnisráð og áfrýjunarnefnd sam- keppnismála um daglega stjórnsýslu á því sviði. Nú tekur Samkeppniseftirlitið við verkefnum Samkeppnisstofnunar og flest- um verkefnum samkeppnisráðs auk þess sem yfirstjórnin tekur yfir verkefni samkeppnisráðs að einhverju leyti. Hvers konar breytingar verða á sam- keppniseftirliti? Breytingarnar eru tvíþættar. Í fyrsta lagi fel- ast þær í annars konar skipulagi og stjórn- sýslu samkeppnisyfirvalda sem miðar að því að einfalda eftirlitið. Skipulagið sem fyrir er þótti óþarflega flókið þar sem of margar stofnanir sáu um daglega stjórn- sýslu. Í öðru lagi eru ákveðin verkefni sem færast frá stofnuninni. Þannig á að koma til móts við þá staðreynd að Samkeppnis- stofnun réði engan veginn við öll verkefnin sem henni var falið að leysa samkvæmt lögum. Af hverju er sérstök stjórn yfir Sam- keppniseftirlitinu? Hlutverk stjórnarinnar er að móta áherslur í starfi og fylgjast með starfseminni, auk þess sem allar meiriháttar ákvarðanir skal bera undir hana til samþykktar eða synj- unar. Stjórnin skal einnig skipa forstjóra Samkeppniseftirlitsins en sú tilhögun er höfð til þess að tryggja sjálfstæði stofnun- arinnar gagnvart viðskiptaráðherra. FBL-GREINING: SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ 70 til 80 prósent nemenda Há- skólans á Akureyri muni setjast að á Akureyri eða úti á landi að loknu námi. Samkvæmt sömu könnun mun svipað hlutfall braut- skráðra nemenda Háskóla Ís- lands setjast að á höfuðborgar- svæðinu. „Ein af niðurstöðum könnunarinnar var að staðsetn- ing háskóla er lykilatriði hvað varðar framtíðarbúsetu nem- enda og erlendar rannsóknir staðfesta það,“ segir Ingi Rúnar. Á meðal markmiða byggða- áætlunar ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2002 til 2005 er að efla Akureyri sem skólabæ og byggðakjarna fyrir Norður- og Austurland, til mótvægis við höfuðborgarsvæðið. Valgerður Sverrisdóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, ber sem iðnaðarráðherra ábyrgð á framkvæmd byggðaáætlunar. „Háskólinn á Akureyri hefur fram til þessa notið sérstöðu innan menntakerfisins og mun áreiðanlega gera það áfram. Rannsóknarhúsið á Akureyri er eina þekkingarsetrið á landinu sem stendur undir nafni,“ segir Valgerður. Fjárhagsvandinn leystur Menntamálaráðuneytið og Há- skólinn á Akureyri hafa gert drög að samkomulagi sem leysir fjárhagsvanda háskól- ans. Samkvæmt samkomulag- inu fær háskólinn söluandvirði eignarhluta ríkins í Glerárgötu 36 á Akureyri, um 100 milljónir króna, og verður fjárhæðin nýtt til að greiða leigu skólans fyrir afnot að Borgum, nýja rann- sóknarhúsinu á Akureyri. Ríkið seldi nýverið eignarhlut sinn í Glerárgötu 36 en auðlindadeild Háskólans á Akureyri hafði af- not af húsnæðinu þar til Borgir voru teknar í notkun í fyrra. Þá mun menntamálaráðu- neytið einnig beita sér fyrir því að skólinn fái aukafjárveitingu á þessu ári, um 40 milljónir króna. Á móti koma ýmsar að- gerðir af háskólans hálfu til að ná tökum á rekstrinum svo sem að innrita ekki nemendur á fyrsta ár í upplýsingatækni- deild. Það sem eftir stendur af upp- söfnuðum fjárhagsvanda, tæp- lega 100 milljónir króna, verð- ur greitt með sérstökum fjár- veitingum til skólans á næstu árum auk þess sem háskólinn grípur til margvíslegra sparn- aðaraðgerða, án þess að dregið verði umtalsvert úr þjónustu skólans. Í samkomulaginu er kveðið á um að fjárveitingar skólans til næstu fjögurra ári, frá árinu í ár að telja, miðist við sex til átta prósenta fjölgun nemenda. „Það mun hægja á vexti skólans en er þó vel viðunandi,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. ■ ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Menntamálaráðuneytið leggur Háskólanum á Akureyri til auknar fjárveitingar vegna fjárhagsvanda skólans. Reynt a› tryggja sjálfstæ›i gagnvart rá›herra. KEISARINN ER NAKINN Í tilefni af 200 ára ártíð Hans Christians Andersen tóku listamenn frá 15 löndum þátt í sandkast- alakeppni í Kaupmannahöfn í gær. Allir byggðu þeir á sögum Andersens. Lítill drengur gengur hér fram hjá Nýju fötum keisarans eftir Ítalann Gianni Schiumarini. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.