Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 78
30 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Lárétt: 2 látið af hendi, 6 ármynni, 8
málmur, 9 fæðu, 11 lít, 12 álögu, 14 pen-
ingar, 16 varðandi, 17 fínt regn, 18 andi,
20 gangþófi, 21 lengdarmálseining.
Lóðrétt: 1 fugls, 3 enn fremur, 4 skráði, 5
viður, 7 lögreglumál, 10 lín, 13 trygg, 15
útstáelsi, 16 stórveldi, 19 fimmtíu og
einn.
LAUSN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Stór
Humar
Heimildarmynd um tónlistarhá-
tíðina Reykjavík Rocks, sem nú
er haldin í fyrsta sinn, er í bí-
gerð. Í myndinni er sjónum beint
að þeim sem koma að hátíðinni
en ekki endilega að lista-
mönnunum sjálfum. „Við erum
að tala við þá sem koma að hátíð-
inni, gæslumenn, veitingafólk,
ljósamenn, sviðsmenn auk þess
sem við tölum við tónleikagesti
og förum jafnvel í fyrirpartí.
Núna fyrir Duran Duran fórum
við á blaðamannafund, hittum
forfallna Duran-aðdáendur og
spjölluðum við þá og að sjálf-
sögðu tókum við upp á tónleikun-
um líka,“ segir Hjördís Unnur
Másdóttir dagskrárgerðarkona
sem gerir myndina ásamt félaga
sínum Helga Jóhannessyni.
„Myndin á ekki beinlínis að
snúast um hljómsveitirnar sjálf-
ar heldur þá sem eru á bak við
tjöldin. Markmiðið er því bæði
að fanga stemninguna á tónleik-
unum auk þess sem við sýnum
hversu margir koma að svona
tónleikum og hversu langt ferli
þetta er. Við Helgi höfum unnið
mikið saman í sjónvarpi og
vinnum þessa mynd algjörlega í
sameiningu. Við fengum svo
Villa Naglbít til þess að vera um-
sjónarmaður myndarinnar en
honum kynntumst við þegar við
unnum að Atinu. Þegar kemur að
Foo Fighters og Queens of The
Stone Age tónleikunum munum
við líklega vinna þá öðruvísi því
aðdáendur þeirra eru í yngri
kantinum. Þá förum við jafnvel
og spjöllum við krakka í ung-
lingavinnunni og stemningin
verður allt önnur.“
Hjördís hefur áður unnið að
þáttum eins og Atinu, Hvernig
sem viðrar og Á Bak Við Tjöldin
og leikstýrt nokkur tónlistar-
myndböndum. „Ég hef ekki gert
heimildarmynd áður en ég hef
unnið mikið í sjónvarpi og lít
eiginlega á þetta verkefni sem
heimildarþátt frekar en mynd.
Hún verður ekki sýnd í kvik-
myndahúsum en líklega í sjón-
varpi þó ekkert sé komið á hreint
með það.“ hilda@frettabladid.is
HEIMILDARMYND: SPJALLAÐ VIÐ FÓLKIÐ Á BAK VIÐ TJÖLDIN
Reykjavíkurrokk fest á filmu
Hljómsveitin Foo Fighters er mætt til landsins og
spilar öðru sinni fyrir íslenska áheyrendur í Egilshöll
5. júlí, ásamt rokkbandinu Queens of the Stone Age.
Mörgum er í fersku minni þegar Foo Fighters brá sér
í humar á Stokkseyri og rann á hljóð ungra pilta í
hljómsveitinni Nilfisk í nærstöddum bílskúr, en Dave
Grohl, forsprakki Foo Fighters, bauð þeim drengjum
að hita upp fyrir hljómveitina á tónleikum daginn
eftir.
„Það sem einkennir Foo Fighters er einmitt Dave
Grohl, en hann er svolítið sér á báti,“ segir Matthías
Már Magnússon, dagskrárstjóri á útvarpsstöðinni
XFM.
„Dave Grohl hefur haft gríðarleg áhrif á rokkið, eins
og dæmin sýna með
Queens of the Stone
Age sem er band sem
hefði aldrei komist inn
í A-rokkgeirann hefði
Dave ekki tekið sig til
og trommað inn á
plötu með þeim. Hann
er svona góði gaurinn í
rokkinu, laus við
stjörnustæla og auð-
mjúkur mannvinur. Ég
veit ekki um margar
hljómsveitir sem
myndu leyfa ungum
strákum frá Stokkseyri að spila með sér á hljómleik-
um með engum fyrirvara. Dave er vinnualki, alltaf
með augun opin fyrir nýjum böndum og kemur
þeim á kortið með því að spila á trommur með
þeim,“ segir Matthías, en á dögunum var Grohl val-
inn annar besti trommuleikari heims í
tímaritinu Classic Rock.
„Að mínu mati er Dave betri hljóðfæra-
leikari en söngvari, en hann syngur
með Foo Fighters því það er hans eigið
band og virðist fá útrás fyrir trommu-
sláttinn með öðrum hljómsveitum.
Hann er þekktur fyrir að setjast við
trommusettið hjá öðrum og þykir mikil
upphefð, því Dave er lifandi goðsögn
og einkar virtur í sínu fagi. Og þótt
hann hafi verið trommuleikari Nirvana
er hann löngu búinn að sanna að þess
þurfti hann ekki til að verða góður tón-
listarmaður, þar sem hann fékk greinilega lítið að
sýna sitt rétta andlit. Hann er allt öðruvísi tónlistar-
maður í dag, sem vinnur af hugsjón og skiptir allri
innkomu jafnt á milli hljómsveitarmeðlima, þótt
hann sé aðalsprautan og semji velflest lögin sjálfur.“
MATTHÍAS MÁR MAGNÚSSON DAGSKRÁSTJÓRI XFM 91.9 SEGIR DAVE GROHL AUÐMJÚKAN MANNVIN MEÐ OPIN AUGU.
SÉRFRÆÐINGURINN
MATTHÍAS MÁR MAGNÚSSON
Lifandi go›sögn laus
vi› stjörnustæla
fær Mugison fyrir að heilla hátíð-
argesti á Hróaskeldu upp úr
skónum með einlægum flutningi.
HRÓSIÐ
Nú styttist í síðasta uppklapp hér á
hátíðinni enda tæp vika síðan fyrsta
hljómsveitin steig á svið. Enn eiga
þó stór nöfn eftir að troða upp og
fólk virðist jafn áhugasamt um tón-
listina nú eins og fyrsta daginn.
Fólk dansar salsa og drekkur kok-
teila í heimstónlistartjaldinu og fer
úr að ofan í danstjaldinu af jafn
miklum móð í dag og það gerði fyr-
ir þremur dögum. Sólin hefur
greinilega hlaðið fólk af orku.
Svæðið er farið að láta á sjá, eink-
um tjaldstæðið. Rusl liggur á víð og
dreif og daunn berst frá kömrun-
um, svo sterkur að best er að halda
niðri í sér andanum þegar gengið er
framhjá. Þótt starfsfólk sé í
stöðugri vinnu við sorphirðu tekur
eflaust töluverðan tíma að hreinsa
upp allt ruslið. Gestirnir þurfa svo
sem ekki að hafa miklar áhyggjur
af því. Það eina sem þeir þurfa að
gera nú er að njóta síðustu tónanna,
sopana og sólargeislanna. HRÓARSKELDA Mannhafið á Hróarskeldu er gríðarlegt.
KRISTJÁN SIGURJÓNSSON BLOGGAR FRÁ HRÓARSKELDU
Sí›ustu metrarnir
HJÖRDÍS UNNUR MÁSDÓTTIR OG HELGI JÓHANNESSON Þau hafa unnið saman
að fjölda sjónvarpsþátta og gera nú saman heimildarmynd um tónlistarhátíðina Reykjavík
Rocks.
DURAN DURAN Þeir gömlu félagar hafa
væntanlega verið hið fínasta myndefni fyrir
heimildarmyndina en gömlu goðin fóru á
kostum í Egilshöll á fimmtudaginn.
Lárétt: 2selt,6ós,8eir, 9mat,11sé,12
skatt,14aurar, 16um,17úða,18sál,20
il,21alin,
Lóðrétt: 1lóms,3og,4listaði,5tré,7
sakamál,10tau,13trú,15rall,16usa,
19li.
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N