Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 70
4. júlí 2005 MÁNUDAGUR22
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
1 2 3 4 5 6 7
Sunnudagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 Víkingur tekur á móti KR í
VISA-bikarkeppni karla á Víkingsvelli.
19.15 Valur tekur á móti Haukum í
VISA-bikarkeppni karla að Hlíðarenda.
19.15 ÍA mætir Breiðablik í VISA
bikarkeppni karla.
20.00 FH tekur á móti Keflavík í
Landsbankadeild kvenna.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Gillette sportpakkinn á Sýn.
18.15 PGA mótið í golfi á Sýn.
22.00 Ensku bikarmörkin á Sýn.
22.55 Kraftasport á Sýn.
23.25 Álfukeppnin 2005 á Sýn.
Allra veðra von
Viðarvörn er ekki það sama og viðarvörn. Kjörvari er
sérstaklega þróaður fyrir íslenska veðráttu þar sem
mikilvægt er að gæðin séu í lagi.
Notaðu viðarvörn sem þolir íslenskt veðurfar
Náðu þér í nýja Kjörvara litakortið
Tryggðu viðnum bestu fáanlegu vörn.
Á Íslandi er allra veðra von.
Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfirði Málningarbúðin Akranesi
• Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfirði Litabúðin Ólafsvík
Núpur byggingavöruverslun Ísafirði • Vilhelm Guðbjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • Byko Reyðarfirði • Verslunin Vík, Neskaupstað • Byko Selfossi
Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík
VIERI Hefur átt köflóttu gengi að fagna á
undanförnum árum.
Framherjinn Christian Vieri:
Ákve›ur sig
senn
FÓTBOLTI Í lok vikunnar ætlar sókn-
armaðurinn Christian Vieri að
vera búinn að taka ákvörðun um
það hvar hann leikur á næstu leik-
tíð. Þetta sagði umboðsmaður
hans, Sergio Berti, við enska fjöl-
miðla.
Vieri er að verða 32 ára en
samningi hans við Inter Milan var
rift í síðustu viku, hann hefur átt
frekar brösótta tíma síðan Ro-
berto Mancini tók við liðinu. Vieri
hefur verið orðaður við nokkur
ensk lið, Tottenham, Bolton,
Liverpool og Newcastle. Fyrsta
tungumál Vieri er enska en hann
ólst upp í Ástralíu.
Graeme Souness, framkvæmd-
astjóri Newcastle, segir að það sé
efst á óskalista hans að fara í
spænska boltann. „Ég fékk mann
sem ég þekki til að ræða við Vieri
og Vieri sagði honum að það væri
hans ósk að fara til Spánar.“ sagði
Souness. -egm
Graeme Souness:
Fær hann a›
fjúka fyrstur?
FÓTBOLTI Samkvæmt veðbönkum
er líklegast að Graeme Souness
hjá Newcastle verði fyrsti fram-
kvæmdastjóri ensku úrvalsdeild-
arinnar til að verða rekinn á
næsta tímabili. Hann er alveg
harðákveðinn í að sigrast á
þessum líkum. „Ef ég endist í 12
mánuði til viðbótar þá telst það
gott. Ég verð að sýna styrk og
mun örugglega ekki gefast upp á
þessari áskorun. Það er aðeins ein
leið sem ég fer, það er mín leið.“
sagði Souness.
Laurent Robert, sem er farinn
frá Newcastle til Portsmouth,
fékk sekt í síðustu viku fyrir að
gagnrýna þjálfunaraðferðir Sou-
ness harðlega. „Hann er bara að
reyna að skemma fyrir okkur og á
ekki skilið að fá þá athygli í fjöl-
miðlum sem hann er að fá.“ sagði
Souness sem telur að það sem hafi
skemmt síðasta tímabil hafi verið
slagsmál Lees Bowyer og Kierons
Dyer í apríl. „Möguleiki okkar á
velgengni hvarf þá skyndilega.“
sagði Souness. -egm
FORMÚLA 1 Spánverjinn Fernando
Alonso styrkti stöðu sína í For-
múlu-1 í gær þegar hann vann ör-
uggan sigur á Magny Cours braut-
inni. Hann var á ráspól og lét for-
ystuna aldrei af hendi, var í fyrsta
sæti frá upphafi til enda keppn-
innar. Hann jók þó forskot sitt
ekki mikið í heildarkeppni öku-
þóra þar sem hans helsti keppi-
nautur, Kimi Räikkönen, varð
annar í kappakstrinum þrátt fyrir
að hafa þurft að byrja þrettándi á
ráslínu. Heimsmeistarinn Mich-
ael Schumacher var þriðji en
hann var tæplega hring á eftir
Alonso.
Þetta var fimmti sigur Alonso á
þessu ári en það gerði dagsverk
hans auðveldara að Kimi
Räikkönen þurfti að hefja leik
svona aftarlega. Ástæðan fyrir
því er sú að vél hans bilaði á föstu-
dag og þurfti að setja nýja. Sam-
kvæmt reglum eiga menn að fær-
ast tíu sætum aftar á ráslínu en
hann hefði byrjað þriðji ef þetta
hefði ekki komið fyrir.
„Atvikið sem varð á föstudag-
inn skemmdi þessa keppni algjör-
lega fyrir mér. Mikil vonbrigði að
lenda í því. En það þýðir annars
ekkert annað en að líta á björtu
hliðarnar, þetta hefði getað reynst
mér enn dýrkeyptara.“ sagði
Räikkönen. Hann og Alonso voru
algjörlega í sérflokki í Frakklandi
í gær. „Tíu síðustu hringirnir voru
rosalega lengi að líða, ég var bara
að bíða eftir því að komast yfir
línuna og fagna sigrinum með
liðsfélögum mínum.“ sagði Alonso
eftir að hann kom í mark.
Williams-liðið var vonbrigði
mótsins þar sem Mark Webber
endaði tólfti og Nick Heidfeld
fjórtándi. Renault-liðið vann
þarna sigur á heimavelli í fyrsta
sinn í 22 ár og hefur nú 18 stiga
forystu í keppni bílasmiða.
Formúlu 1 kappaksturinn í Frakklandi í gær:
Alonso fær›i Renault sigur
STAÐA ÖKUMANNA
Fernando Alonso, Renault 69
Kimi Räikkönen, McLaren 45
Michael Schumacher, Ferrari 40
Jarno Trulli, Toyota 31
Rubens Barrichello, Ferrari 29
STAÐA BÍLASMIÐA
Renault 89
McLaren 71
Ferrari 69
Toyota 53
BMV Williams 47
FIMMTI SIGURINN Fernando Alonso var
kátur á verðlaunapallinum í gær.