Fréttablaðið - 04.07.2005, Blaðsíða 18
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Á sumrin þykir okkur gaman að
planta sumarblómum í fallega
blómapotta úr leir. Slíkir blóma-
pottar eiga það
til að verða fórn-
arlömb íslenskr-
ar veðráttu. Ef
sprungur eru
komnar í leirinn
en potturinn er
ekki brotinn má
vefja ryðfríum
vír utan um
hann svo hann
hangi saman.
Þetta getur
meira að segja
verið dálítið
flott. Sérstak-
lega ef maður er
hrifinn af hlut-
um sem líta út
fyrir að vera gamlir og vel not-
aðir.
Sé potturinn brotinn má líma
hann saman og gefa honum nýtt
líf. Þá er best að byrja á að þur-
rka alla mold af brotunum og
tryggið að brúnirnar séu hrein-
ar og þurrar.
Notið vatnshelt
lím og fylgið
leiðbeiningunum
á umbúðunum.
Athugið að límið
verður að henta
fyrir leir. Berið
lím á brúnirnar
og þrýstið brot-
unum vel saman.
Vefjið svo garni
utan um pottinn
til að halda hon-
um saman með-
an límið er að
þorna. Best er að
láta tuskur eða
dagblöð milli
blómapottsins og garnsins til að
jafna þrýstinginn. Leyfið líminu
síðan að þorna vel áður en mold
og blóm eru sett í pottinn. ■
]
Hjónin Helga og Erlingur hafa skapað skemmtilegan ævintýraheim í garðinum.
Málning
Erfitt getur verið að raða myndum og skrauti á langa og stóra veggi án þess að
það verði eins og krækiber á veggnum. Þá getur verið sniðugt að mála fleti í
mismunandi litum á veginn og skipta þannig upp rýminu.[
Blómapottur sem hefur brotnað og ver-
ið límdur saman getur verið skemmti-
legt skraut í garðinn.
Brotnir blómapottar
fá uppreisn æru
Það þarf ekki að henda brotnum blómapottum. Pottar sem hafa
brotnað og verið límdir saman geta verið mikil garða prýði. Blómstrandi skrauteplatré er gott
myndefni.
Fegursta
garðmyndin
GARÐYRKJUFÉLAG ÍSLANDS
HVETUR FÓLK TIL AÐ BEINA
MYNDAVÉLUM AÐ GRÓÐRI OG
GARÐAMENNINGU.
Þema ljósmyndakeppni Garðyrkju-
félagsins er „gróður til gagns og
gleði“ og félagið efnir til hennar í
tilefni af 120 ára afmæli sínu í ár.
Keppnin hófst nú um mánaða-
mótin og stendur til 15. septem-
ber. Þátttaka er öllum opin og
veittar verða þrjár viðurkenningar
fyrir bestu myndirnar að mati
dómnefndar sem skipuð er tveim-
ur fulltrúum félagsins og einum
atvinnuljósmyndara. Á heimasíðu
félagsins www.gardurinn.is er að
finna upplýsingar um keppnina og
ljósmyndir sem berast verða birtar
þar reglulega.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Í garði einum í Kópavoginum
er heilt samfélag af skemmti-
legum tréfígúrum og kirkja í
miðju þess.
Ef ekið er niður Vogatunguna í
Kópavoginum mætir manni
óvenjulegur garður. Þar er enginn
heitur pottur og pallur hvergi sjá-
anlegur. Aftur á móti er grasflötin
full af tréfígúrum og lítilli kirkju
sem er upplýst þegar rökkva tek-
ur.
Eigendur garðsins eru hjónin
Helga Ísleifsdóttir og Erlingur
Ólafsson, sem jafnframt smíða og
hanna allt í garðinum sjálf.
„Maðurinn minn sagar þetta
allt niður fyrir mig og ég mála
þetta,“ segir Helga, sem hefur
mikla ánægju af verkinu. „Mikil
hreyfing er á hlutunum í garðin-
um þar sem við erum sífellt að
bæta við og taka annað út,“ segir
Helga. Fígúrurnar sem eru í garð-
inum núna unnu þau hjón allar í
fyrra. „Þarna völdum við að hafa
fólk sem er að slá og raka, en mað-
urinn minn er fæddur og uppalinn
í sveit,“ segir Helga.
Ævintýrið byrjaði þegar þau
hjón fluttu í Kópavoginn fyrir
sextán árum, en áður bjuggu þau
á Hvolsvelli. „Garðurinn var í
mikilli órækt þegar við tókum við
honum og höfum við verið að
betrumbæta hann síðan. Okkur
langaði að gera eitthvað sniðugt
og byrjuðum fyrst á bæ og
kirkju,“ segir Helga. „Nú er
bóndabær í smíðum, en við höfum
selt alla þá sem hafa verið þar
fyrir,“ segir Helga. Hún segir
gesti og gangandi sýna garðinum
mikinn áhuga og hópur leikskóla-
barna koma á hverju ári að skoða
hann. „Mesta furða er bara hvað
þetta er látið í friði,“ segir Helga.
Hún segist enga fígúru vera í sér-
stöku uppáhaldi nema kannski
fýlupúkann. „Þegar ekki rignir
fer fýlupúkinn út líka, en hann má
ekki blotna,“ segir Helga. ■
Fýlupúkinn settur út í sólina
Myndarlegur burstabær sem Erlingur smíðaði og Helga málaði.
Golfáhugamenn athugið
Nú er rétti tímin til að setja niður púttholu í garðinn
Upplagt í sumarbústaðinn eða garðinn heima
Tilboð 1
1 stk stöng með áföstu númeri og bolla kr 4.900
Tilboð 2
1 stk stöng með flaggi og bolla kr 7.900
Leigjum út holuskera
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI