Fréttablaðið - 04.07.2005, Page 12
Aldrei hefur verið jafn gott að komast í hús
og eftir göngu gærdagsins. Veðrið var hund-
leiðinlegt; rok og rigning, og svo sem óðs
manns æði að vera á göngu við svona að-
stæður. Sannast sagna leist okkur ekkert á
blikuna þegar við vöknuðum í gærmorgun en
auðvitað létum við okkur hafa það að ganga
af stað. Dagleiðin var líka óvenju stutt miðað
við undanfarna daga, aðeins 22 kílómetrar(!),
sem við gengum á rúmum fjórum tímum.
Það má segja að veðurofsinn hafi gert það
að verkum að við gengum hraðar en ella en í
verstu kviðunum þurftum við að stoppa og
halda okkur fast í göngustafina og passa
hreinlega að fjúka ekki inn á veginn.
Fjöldi bíla kom á móti okkur, flestir líklega á
heimleið eftir humarhátíðna á Höfn í Horna-
firði. Margir flautuðu og veifuðu til okkar en
sumir stoppuðu og spurðu hvort ekki væri
í lagi að halda áfram. Héldu hinir sömu að
við værum björgunarsveitarmenn og að er-
indi okkar á veginum væri að segja fólki að
snúa við vegna veðurs.
Eftir svona dag er gengið snemma til náða
en þó ekki fyrr en góð máltíð er afstaðin
og búið að spila og syngja nokkra Bubba
slagara. Hann er kóngurinn og fylgir okkur
á göngunni með ódauðlegum lögum sín-
um.
Í dag verður gengið frá Hrollaugsstöðum
langleiðina á Höfn og er spottinn um það
bil 30 kílómetrar. Er vonandi að veðrið
verði ögn skárra en í gær.
Kær kveðja,
Bjarki, Guðbrandur og Tómas.
12 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Eru› fli› í björgunarsveitinni?
HALTUR LEIÐIR BLINDAN: PÓSTKORT FRÁ BJARKA OG GUÐBRANDI
nær og fjær
„Halldór ber fullt
traust til Ríkisendur-
sko›unar og fletta álit,
sem greitt er fyrir af
stjórnarandstö›unni,
breytir engu flar um.“
STEINGRÍMUR ÓLAFSSON
BLAÐAFULLTRÚI FORSÆTISRÁÐUNEYT-
ISINS Í FRÉTTABLAÐINU.
„fietta er uppsafna›ur
áhugi. Ma›ur fylgist
me› fréttunum og sér
börnin svelta og fer
náttúrlega bara a›
gráta eins og anna›
fólk.“
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
Í MORGUNBLAÐINU.
OR‹RÉTT„ “
Fyrir flesta er sumarfríið
hvíld frá amstri hvers-
dagsins en fyrir Jarþrúði
Þórhallsdóttur, sem á ein-
hverfa dóttur, getur álag
og umstang aukist í frí-
inu. Hún hvetur kvenna-
hreyfinguna til að berjast
fyrir bættum hag for-
eldra fatlaðra og lang-
veikra barna.
„Þegar kom að sumarfríi fór allt
upp í loft,“ segir Jarþrúður Þór-
hallsdóttir, móðir Gunndísar sem er
einhverf, þegar hún rifjar upp árin
sem Gunndís bjó enn í foreldrahús-
um. Hún er nú orðin 22 ára og flutt
að heiman.
„Það er heilmikil vinna að púsla
öllu saman og fólk þarf bæði að hafa
mikla þekkingu á kerfinu og enda-
lausa orku. Það þarf að skipuleggja
hverja stund fyrir sum börn því þau
þola ekki lausung.“
Sumardvöl fyrir einhverf börn
hefur verið rekin í gegnum árin en
fólk hefur aldrei haft vissu fyrir
hvort hún verði starfrækt aftur.
„Sumardvölin hefur aldrei verið á
föstum fjárlögum og því aldrei neitt
í hendi,“ segir Jarþrúður.“Árlega
þurftum við að fara í ráðuneytið og
athuga hvort peningum yrði veitt til
starfseminnar.“
Sumardvölin varði aðeins í til-
tekinn tíma sumars og bæði fyrir og
eftir þurfti að brúa bil. Jarþrúður
tók sér þá frí úr vinnu og segir slíkt
yfirleitt koma í hlut mæðranna, sem
margar hverjar hverfa jafnvel al-
gjörlega af vinnumarkaði. „Þess
vegna er þetta jafnréttisbarátta og
ég vildi gjarnan sjá kvennahreyf-
inguna taka málið upp á sína arma.
En þetta er ekki bara jafnréttisbar-
átta kynjanna heldur snýst þetta
líka um annars konar jafnrétti.
Nefnilega jafna möguleika fjöl-
skyldu sem er með fatlað barn á
framfæri og ekki síður jafna mögu-
leika barnanna sjálfra til tilbreyt-
ingar og þátttöku í samfélaginu.“
Jarþrúður kveðst þekkja marga
foreldra sem lent hafa í miklum
erfiðleikum með börn sín en segist
sjálf hafa verið heppin og alltaf hafi
greiðst úr flækjum. Engu síður hafi
ástandið reynt á. „Það er erfitt að
vera aldrei öruggur og vita ekki
hvort barnið fái að njóta sumarsins
á viðeigandi stað eða ekki.“
bergsteinn@frettabladid.is
JARÞRÚÐUR ÞÓRHALLSDÓTTIR Það er erfitt að vera aldrei öruggur og vita ekki hvort
barnið fái að njóta sumarsins á viðeigandi stað eða ekki.
fietta sn‡st um
jafnrétti
Fyrirtækið Skessuhorn ehf, sem
gefur út héraðsfréttablaðið Skessu-
horn á Vesturlandi og vefmiðilinn
skessuhorn.is, hefur fest kaup á
hestavefnum 847.is.
847.is hefur verið til í fimm ár en
sjálfur Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra opnaði vefinn með til-
heyrandi pompi og prakt á sínum
tíma. Á vefnum er fjallað um allt
sem lýtur að hestum og hesta-
mennsku og er hann í flokki vinsæl-
ustu vefja landsins á sínu sviði.
Daníel Ben Þorgeirsson
stofnaði vefinn og ritstýrir
honum áfram. Guðbjörg Ólafs-
dóttir og Magnús Magnússon
eru eigendur Skessuhorns.
Nafn sitt dregur vefurinn af
aðaleinkunn stóðhestsins Dyns
frá Hvammi sem var hæst
dæmdi stóðhestur Íslands í
röðum klárhesta um árabil og
hljómar talan sem sinfónía í
eyrum hestamanna.
-bþs
Skessuhorni vex ásmegin:
Kaupir hestavefinn 847.is