Fréttablaðið - 04.07.2005, Qupperneq 14
Háskólinn á Akureyri var settur
í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn
í Akureyrarkirkju laugardaginn
5. september 1987. Kennsla
hófst á mánudeginum en nem-
endur voru 47 talsins, í tveimur
deildum; 13 í hjúkrunarfræðum
og 34 í iðnrekstrarfræðum.
Starfsmenn skólans voru fjórir.
Í fyrra lögðu tæplega 1600 nem-
endur stund á nám við skólann, í
sex deildum, og starfslið
skólans taldi um 200 manns.
Þorsteinn Gunnarsson, rekt-
or Háskólans á Akureyri, segir
að skólinn hafi verið rekinn án
halla allt frá stofnun til ársins
2002. Árið 2002 var reksturinn
neikvæður um 36 milljónir
króna og um 100 milljónir króna
árið 2003 og í fyrra. Um síðustu
áramót nam uppsafnaður
rekstrarhalli skólans 235 millj-
ónum króna eða ríflega 30 pró-
sentum af framlögum ríkisins
til skólans samkvæmt fjár-
lögum ársins í ár.
Vatnaskil
Vöxtur Háskólans á Akureyri,
hvað varðar fjölda nemenda,
hefur verið hraður allt frá því
hann hóf göngu sína en árið 2001
jókst nemendafjöldinn verulega
eða um 37 prósent frá árinu á
undan; nemendum fjölgaði úr
677 árið 2000 í 924 árið 2001.
Árið 2002 fjölgaði nemendum
um 148 og árið 2003 var aftur
mikil fjölgun en það ár nam
aukningin 35 prósentum; nem-
endum fjölgaði úr 1072 í 1438. Í
fyrra var nemendafjöldinn
kominn í 1586.
Aukin aðsókn að skólanum og
vaxandi velgengni á síðustu
árum hefur um leið verið vandi
hans því undanfarin ár hafa
fjárveitingar ekki verið í sam-
ræmi við nemendafjöldann. Þor-
steinn Gunnarsson, rektor há-
skólans, segir að hækkun fjár-
veitinga hafi undanfarin ár
komið ári of seint, miðað við
vaxandi nemendafjölda, og það
sé rót vandans.
„Þrátt fyrir að við gerðum
okkur grein fyrir því að halli
yrði á rekstri skólans frá og með
árinu 2002, gripum við ekki til
verulegra fjöldatakmarkana til
að hemja útgjöld skólans.
Ástæðan var sú að samkvæmt
kennslusamningi við mennta-
málaráðuneytið frá árinu 2001
var eitt af höfuðmarkmiðum
skólans að fjölga nemendum.
Þetta tvennt stangaðist því á;
annars vegar að halda rekstri
skólans innan fjárveitinga og
hins vegar að fjölga nemendum
verulega. Aukning í nemenda-
fjölda fór hins vegar fram úr
því sem við og ráðuneytið gerð-
um ráð fyrir og afleiðingin varð
rekstrarhalli,“ segir Þorsteinn.
Mennta- eða byggðamál
Niðurstöður könnunar sem Ingi
Rúnar Eðvarðsson vann fyrir
Rannsóknarstofnun Háskólans á
Akureyri árið 2000 benda til að
Síðumúla 13, 108 Rkv.
Sími 568-2870
ÚTSALA ÚTSALA
50 – 80 % afsláttur
Meiri verðlækkun
Dæmi um verð: Áður Núna
Hettupeysa 6.500.- 2.900.-
Jakkapeysa 6.100.- 2.900.-
Peysu sett 8.600.- 3.900.-
Peysa m/v-háls 6.900.- 2.900.-
Vafinn toppur 2.500.- 1.200.-
Siffonbolur m/perlum 6.600.- 2.200.-
Röndóttur bolur 3.300.- 2.000.-
Stutterma skyrta 3.300.- 1.500.-
Síð skyrta 6.200.- 2.900.-
Teinóttur jakki 6.200.- 1.900.-
Kjóll m/blúndu 7.100.- 2.900.-
Pils 3.500.- 1.500.-
Dömubuxur 5.200.- 2.900.-
Gallabuxur 6.000.- 2.900.-
Kvartbuxur 5.700.- 1.900.-
Úrval af fatnaði á kr. 500 og 999.-
Og margt margt fleira
Opið 10:00 – 18:00
www.friendtex.is
Samtökin '78 hafa í áratugi barist
fyrir jöfnum rétti samkynhneigðra
á Íslandi.
Skipta samtökin máli fyrir samkyn-
hneigða á Íslandi? Ég segi að þau
skipti miklu máli. Í grunninn erum við
hagsmunasamtök fyrir lagalegum úr-
bótum og sýnileika. Þar að auki
rekum við þjónustumiðstöð og bóka-
safn á Laugavegi 3.
Hefur staða samkynhneigðra batn-
að undanfarið? Staðan hefur gjör-
breyst undanfarin ár, viðhorf al-
mennings og öll löggjöf og slíkt. Við
lifum samt ekki í fullkomnum heimi.
Hvað er á döfinni hjá samtökun-
um? Halda áfram á sömu braut. Við
vonum að við fáum að sjá lagafrum-
varp á næsta þingi þar sem sam-
búðarmálin verða jöfnuð. Eins vantar
mikið upp á fræðslumál í skólakerf-
inu og atvinnulífinu.
HRAFNKELL TJÖRVI STEFÁNSSON
framkvæmdastjóri Samtakanna '78
Vantar enn
upp á fræ›slu
SKIPTA SAMTÖKIN '78 MÁLI?
SPURT & SVARAÐ
14 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR
Gula spjaldinu beitt af hörku
Menntamálaráðuneytið hefur undanfarin ár
ekki viljað veita skólastjórnendum formlegar
áminningar fari skólarnir fram úr fjárheimild-
um, eins og ráðuneytinu ber skylda til sam-
kvæmt reglugerð um framkvæmd fjárlaga.
Ráðuneytið hefur reynt að fara mýkri leiðir til
að halda skólunum innan fjárveitinga en að
mati Ríkisendurskoðunar verður ráðuneytið
að láta af því og beita gula spjaldinu af
hörku. Ráðningarsamninga forstöðumanna
skólanna á ekki að endurnýja fyrr en ráðu-
neytið hefur lokið skoðun á fjármálastjórn
þeirra, segir Ríkisendurskoðun.
Hvað var hallinn mikill?
Árið 2002 var 36 milljóna króna halli á rekstri
skólans og árið 2003 voru settar fjöldatak-
markanir í öllum deildum háskólans. Sama ár
var námskeiðum fækkað og
samkennsla á námskeiðum
milli deilda aukin.
Hvernig á að spara?
Í haust verða ekki teknir inn
nýir nemendur í upplýsinga-
tæknideild. Deildinni hefur
fylgt hár fastur kostnaður en
fáir nemendur. Takist
skólanum að lækka kostnað
og fjölga nemendum er stefnt
á að opna fyrir innritun í deild-
ina á ný.
Rekstur auðlindadeildar verður
endurskoðaður og námsbrautum hugsanlega
fækkað en þær eru nú fimm.
Rekstur félagsvísinda- og lagadeildar verður
einnig endurskoðaður með að leiðarljósi að
fækka námskeiðum, án þess að leggja niður
námsbrautir.
Einnig verður farið yfir stjórnsýslu og almenna
þjónustu skólans og reynt að ná þar fram
sparnaði.
Jafnvægi ná› me› a›haldi
FBL-GREINING: REKSTUR HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
fréttir og fró›leikur
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI TEKINN VIÐ ÖLVUNARAKSTUR Í REYKJAVÍK
Heimild: Ársskýrsla lögreglustjórans í Reykjavík
Nemendum Háskólans á Akureyri hefur fjölga› ört en fjárveitingar til skólans ekki vaxi› a› sama skapi.
Uppsafna›ur fjárhagsvandi skólans er 235 milljónir króna og hafa menntamálará›uneyti› og skólayfir-
völd sæst á a› leysa fjárhagsvandann me› auknum fjárveitingum og sparna›i í rekstri skólans.
KRISTJÁN J. KRISTJÁNSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
Í velgengninni liggur vandinn
BORGIR Rannsókna- og nýsköpunarhús Háskólans á Akureyri var tekið í notkun í október í fyrra.
REKTOR Þorsteinn Gunnarsson segir að samkvæmt drögum að samkomulagi á milli
skólans og menntamálaráðuneytisins um lausn á fjárhagsvanda skólans muni nemendum
fjölga hægar en undanfarin ár.
1999 928
2000 1.406
2004 737