Fréttablaðið - 04.07.2005, Side 66

Fréttablaðið - 04.07.2005, Side 66
„Ég mun fyrst og fremst standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda,“ segir Gísli Tryggva- son um nýtt embætti sitt sem talsmaður neytenda sem hann tók við 1. júlí. Gísli segir starfið í grófum dráttum tvíþætt. „Þetta er annars vegar að bregðast við þegar brotið er á hagsmunum neytenda og hins vegar að vera gagnvirkur og sýna frumkvæði við að leggja til úrbætur,“ segir Gísli, sem starfaði áður sem framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna. Hann bætir við að embættið sé nýtt hér á landi en hafi tíðkast á Norðurlöndum um nokkurt skeið. Um tilkomu nýja embættisins telur Gísli að líklega hafi þrýst- ingur aukist á að eitthvað sér- stakt yrði gert fyrir neytendur eftir að frelsi jókst í viðskipta- lífinu. Meiri þörf sé því á að gæta hags neytenda sérstaklega. Gísli segist mjög spenntur fyrir starfinu. „Ég hef lengi haft áhuga á neytendamálum og kom- ið að þeim með ýmsum hætti,“ segir Gísli en hann var alinn upp að hluta í Danmörku þar sem neytendavitund er að hans mati ríkari en hér á landi. Hann vonar að embætti sitt og tilvist nýrrar neytendastofu verði til þess að efla neytendavitund og bæta hag neytenda. „Ég vona að eftir ákveðinn tíma verði embættið búið að sanna sig og gera sig gildandi og að talsmaður hafi átt þátt í því að byggja upp þekkingargrunn um réttindi neytenda,“ segir Gísli en þannig þekki fólk betur þau rétt- indi sem tryggð eru í lögum. Einnig vill Gísli að brotum gegn hagsmunum neytenda fylgi við- eigandi viðurlög. Gísli segist ekki hafa mikinn tíma fyrir áhugamál enda hafi hann verið í annasömu starfi undanfarið. Hann reyni þó að nýta frístundir sínar með fjöl- skyldu sinni. Hann hefur tölu- verðan áhuga á sagnfræði og stjórnmálum sem er það eina sem hann les um fyrir utan starfstengdan lestur. „Það er lítill tími fyrir fagurbók- menntir,“ segir Gísli sem sér ekki fram á mikið frí á næstunni en telur tímann framundan mjög spennandi. 18 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR MARIE CURIE (1867-1934) lést þennan dag. Nýtt spennandi embætti GÍSLI TRYGGVASON: SKIPAÐUR Í EMBÆTTI TALSMANNS NEYTENDA „Maður tekur aldrei eftir því hvað er búið að gera; bara hvað á eftir að gera.“ Marie Curie var pólsk vísindakona. Hún var leiðandi í rannsóknum á geislavirkni og hlaut tvenn nóbelsverðlaun. timamot@frettabladid.is TALSMAÐUR NEYTENDA Gísli er spenntur fyrir nýja embættinu enda áhugamaður um neytendamál. Þennan dag árið 1826, á þjóð- hátíðardegi Bandaríkjanna bar að dauði tveggja forseta landsins. Þeir John Adams ann- ar forseti Bandaríkjanna og Thomas Jefferson þriðji forset- inn báru beinin þegar fimmtíu ár voru liðin frá því að sjálf- stæðisyfirlýsing Bandaríkjanna tók gildi en þeir voru tveir af höfundum hennar. Þeir höfðu hvor um sig mikil áhrif á þróun og sögu Banda- ríkjanna en Thomas Jefferson var aðalhöfundur sjálfstæðis- yfirlýsingarinnar sem var skrifuð árið 1776. Adams sigraði Jefferson í kosn- ingum árið 1796 en Jefferson varð samt sem áður varaforseti hans. Jefferson og Adams skrif- uðust töluvert á og ræddu póli- tík en litið er á bréfin sem meistaraverk upplýsingarinnar. Samtíma dauði þeirra vina þótti ótrúleg tilviljun sérstaklega þar sem hann bar upp á þjóðhátíð- ardaginn. Síðustu orð John Ad- ams voru: „Thomas Jefferson lifir enn,“ þrátt fyrir að þessi gamli vinur hans hefði látist nokkrum klukkutímum fyrr. 4. JÚLÍ 1826 Jefferson og Adams léstust á 50 ára af- mæli sjálfstæðisyfirlýsingar Banda- ríkjanna. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1685 Halldór Finnbogason er brenndur á báli á Þing- völlum fyrir að snúa Faðir- vorinu upp á andskotann. Þetta var síðasta galdra- brennan hér á landi. 1776 Bandaríkin lýsa yfir sjálf- stæði sínu frá Bretum. 1966 Ráðist er á Bítlana á Fil- ippseyjum eftir að þeir móðguðu Imeldu Marcos. 1968 Bretinn Alec Rose snýr aftur í heimahöfn eftir að hafa siglt skútu einsamall í kringum heiminn á 354 dögum. 1996 Hotmail, ókeypis tölvu- póstþjónusta, hefur göngu sína. 1997 Ómannaða bandaríska geimfarið Pathfinder lendir á Mars eftir sjö mánaða ferðalag. Jefferson og Adams deyja samtímis                !    !  " !    # #  #   $     # %$   # $#&'( )  # &' &*   # #  + ,  &*            ), &- ##   ."/  #       #+ (.   ! "/ 0%   "           # $#  (1   ,# !   / #2 #! $ 3            4!   #   !   ##   + ,      ()  (  %$##3       #(5! #  !   !  #!    #   #+   #        # !#    ! * ( ((( 6   (                       ! " # $ ! %      2 )      $  7, #  8   '(9    )    )         #       3      ! . !  :    (; # #!   $ ((  !  <,     $ :   ;$       0 #% #(2   # # Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, Rakel Sæmundsdóttir hárgreiðslumeistari, Stangarholti 28, Reykjavík, sem lést á heimili sínu að morgni 24. júní sl., verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 6. júlí kl. 13.00. Óskar Hallgrímsson Jóhann Gunnar Óskarsson Sigríður Ásmundsdóttir Kristín Ósk Óskarsdóttir Sævar Fr. Sveinsson Óskar Sveinsson Rakel Sveinsdóttir systkyni, ömmu- og langömmubörn. Áskær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Halldór Sturla Friðriksson Stórkaupmaður, Haðaland 20, sem lést á heimili sínu föstudaginn 24. júní verður jarðsunginn frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 5. júlí kl 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktar- og líknarsjóð Oddfellow. Erna Sveinbjörnsdóttir Friðrik S. Halldórsson Bergljót Friðriksdóttir Elínborg Hallórsdóttir Sveinbjörn Halldórsson Ingibjörg Erna Sigurðardóttir Margrét Halldórsdóttir Jóhann V. Steimann Erna Gunnþórsdóttir og barnabörn www.steinsmidjan.is FÆDDUST fiENNAN DAG Sveinbjörn Beinteinsson skáld og alls- herjargoði 1924. Sigurður Geirdal bæjarstjóri í Kópavogi 1939. AFMÆLI Oddgeir Guðjónsson, fyrrverandi bóndi og fræðimaður, er 95 ára. Páll Theódórsson eðlisfræðingur er 77 ára. Kári Arnórsson, fyrr- verandi skólastjóri, er 74 ára. Hrönn I. Hafliða- dóttir söngkona er 63 ára. Anna Björnsdóttir, leikkona og jóga- kennari, er 51 árs. Hulda Hákon mynd- listarkona er 49 ára. JAR‹ARFARIR 13.00 Guðrún Ólína Gunnarsdóttir, Dvergabakka 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Margrét Jóhannsdóttir, hjúkrun- arheimilinu Sóltúni, áður til heim- ilis á Framnesvegi 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík. ANDLÁT Einar Torfason, frá Haga Hornafirði, er látinn. Tilkynningar um merkisatbur›i, stórafmæli, andlát og jar›arfarir í smáletursdálkinn hér á sí›unni má senda á netfangi› timamot@frettabladid.is. Augl‡singar á a› senda á auglysingar@frettabladid.is e›a hringja í síma 550 5000. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P ÁL L B ER G M AN N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.