Fréttablaðið - 04.07.2005, Síða 72

Fréttablaðið - 04.07.2005, Síða 72
24 4. júlí 2005 MÁNUDAGUR Þá sjaldan maður fer eitthvað út úr Sódómu þá áttar maður sig á því hversu ó g u r l e g a gott það er að gleyma streitunni, skilja hana hreinlega eftir heima og fá smá vind í hárið og roða í kinnarnar. Mývatnssveitin er dá- samlegur staður til að eyða sum- ardögum burtu frá amstri hvers- dagsins. Þegar ég er í sveitinni þá slekk ég á símanum, þessum höf- uð streituvaldi nútímamannsins. Ekki eins og ég sé óínáanlegur án hans, allir þeir sem vilja geta náð í mig. Kannski ekki einn tveir og bíngó, en til eru leiðir. Einhverra hluta vegna líður mér alltaf eins og ég sé nakinn, að minnsta kosti svolítið neyðarlegur þegar ég er ekki með símann á mér þegar ég er í Reykjavík, eins og það séu hundrað manns sem þurfi að ná í mig þá og þegar og segja mér frá einhverju sem breytir lífi mínu. Ég nefnilega held ekki að svo sé í raun og veru. Eins og núna; eng- inn sími ákveiktur í þrjá heila daga, svo kveiki ég á honum til að geta látið mömmu vita af mér á leiðinni suður og svona og viti menn: Þrjú talhólfsskilaboð, tvö sms og ekkert meir. Var eitthvað af þessu algjört möst, eitthvað sem ég naga mig í handabökin yfir að hafa misst af? Ónei, síður en svo. Fyllerís- talhólfsskilaboð frá einum vini mínum, ein frá vinnunni og svo frá mömmu. Sms-in voru; annað frá vinkonu kærustunnar: “Hvað eruð þið að bralla?”, og hitt auð- vitað frá mömmu: “Allt í góðu elskurnar?”. Næst þegar ég fer í sveitina hugsa ég að ég skilji símann hreinlega eftir. Það er nefnilega að snúast við hvort er meira kúl; sá sem á flottasta símann eða sá sem á engann. STUÐ MILLI STRÍÐA ODDUR ÁSTRÁÐSSON FÓR Í SVEITINA OG SLÖKKTI Á SÍMANUM Blessuð sértu sveitin mín M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Vélmennahund- ar!?! Hvað dettur þeim í hug næst?? ...kjams.... kjams.... Hæ, pabbi. Uu, Solla, hvað ertu eigin- lega í mörgum peysum? Sex. Ertu í sex peysum í einu? Jább. Það var annað- hvort það eða að hengja þær upp. Unglingapróf Hvað veldur þér mestum áhyggjum í sambandi við að eldast? A) Minni líkamleg geta. B) Að verða atvinnulaus. Fannstu sólvörnina? Já, ég er með hana hér. Bingó! C) Að þú munir líta svona illa út í sundfötum. Ojj! Er til eitthvað leiðinlegra en tölt? Pondus! Allar hestaíþróttir eru leiðinleg- ar! Frekar myndi ég horfa á neglur vaxa! Og mótorsport! Sérðu þetta fyrir þér? Einhver auli að keyra upp og niður einhverja drulluhóla! Ekki gleyma traktor- togi.....ókrýn dur sigurveg- ari í leiðinda- íþróttum! Skautar eru líka sífellt í sjónvarpinu. Og samkvæm- isdansar! Hjálp! Listhlaup, langhlaup, kraft- ganga....allt saman óyfir- stíganlega leiðinlegt! Sannleikurinn er bara sá að allar íþróttir sem innihalda ekki rangstöðu sökka eins og kröftug ryksuga! Og málið er dautt!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.