Fréttablaðið - 10.07.2005, Side 42

Fréttablaðið - 10.07.2005, Side 42
Það er fallegur sumardagur ífótboltaborginni Manchest-er á Englandi. Ingi Þór Jóns- son er í sólskinsskapi eins og aðr- ir á breskri grundu vegna ný- sagðra frétta um val Lundúna sem Ólympíuborgar árið 2012, en sjálfur stóð Ingi Þór á sundpöllum Ólympíuleikanna fyrir Íslands hönd í Borg englanna árið 1984. „Ég hef löngum verið á eftir í ýmsu og eins var með sundið; ég var síðastur af öllum til að læra sund,“ segir hann með kátínu í röddinni. „Það situr enn þá í mér þegar sundkennarinn tilkynnti að loksins væri ég orðinn syndur. Strax daginn eftir skráði ég mig á sundæfingu og stefndi einbeittur að því að verða sundmeistari, sem ég varð fyrst 1973 sem Unglinga- meistari Íslands í 50 metra flugsundi,“ segir Ingi Þór, sem setti sitt fyrsta Íslandsmet í 100 metra skriðsundi árið 1980 og átti eftir það öll Íslandsmet í skrið-, flug-, bak- og fjórsundi, eða allt til ársins 1984 að hann lagði sund- skýluna á hilluna. „Ég vissi að ég væri hommi en gat ekki komið úr skápnum því í íþróttum er ríkjandi hommafóbía. Þess vegna varð ég að velja ann- aðhvort að hætta eða halda áfram, seinni kosturinn var útilokaður enda leið ég sálarkvalir,“ segir Ingi Þór sem þá var 21 árs gamall. „Ég hætti alltof snemma og var í rauninni rétt að byrja. Mín biðu skólastyrkir í Bandaríkjunum, en ég afþakkaði þá alla. Ég hafði hins vegar alltaf átt draum um keppni á Ólympíuleikunum, um leið og ég átti í ægilegri baráttu með sjálfan mig og fann knýjandi þörf til að komast burt frá sundinu, öllum og öllu eftir að heim kom á ný,“ seg- ir Ingi Þór, sem er einn af fyrstu Ólympíuförum heims til að viður- kenna samkynhneigð sína. „Stundum kemur í mig eftirsjá, en þetta ætluðu örlögin mér. Í dag er ég 43 ára og syndi á tímum ekki svo langt frá mínu allra besta um tvítugt. Sennilega kæmist ég enn í úrslitin heima,“ segir hann og skellir upp úr. Ástin, lífið og dauðinn Frjáls eins og fuglinn réðst Ingi Þór til starfa sem flugþjónn hjá Flugleiðum, þar starfaði hann til 1988, þá hann flutti til Lundúna og hóf nám í leiklist. „Á ferðalögum mínum sem flugþjónn fann ég smátt og smátt hvað ég vildi gera. Ég vissi að heima myndi ég ekki finna mig en fann mér samastað í Lundúnum. Eitt kvöldið fór ég á bar og hitti Michael Moore, það var ást við fyrstu sýn. Ég var 24 ára og kom opinberlega út úr skápnum. Upp- lifði mikinn skilning fjölskyld- unnar en var í bjánaskap hræddur við að bregðast almenningi sem íþróttamaður, þótt ég viti nú að kynhneigð manns kemur engum við,“ segir Ingi Þór alvarlegur í bragði. „Um það leyti sem við Michael kynntumst var eyðniumræðan orðin áberandi í fjölmiðlum. Michael var virtur lögfræðingur og neitaði að horfast í augu við vandamálið en ég lagði saman tvo og tvo. Eftir fjögurra mánaða hvatningu fékkst hann til að fara í blóðprufu og þá kom í ljós að hann var eyðnismitaður. Á þessum árum þýddi það óumflýjanlegan dauða. Michael var lengi mjög veikur og alls tók hann þrjú og hálft ár að deyja. Síðustu tvö árin var hann kominn í hjólastól, orð- inn blindur og aðeins 29 kíló. Ég tók mér frí frá störfum síðustu þrjú árin til að annast hann sem neitaði alfarið að gefast upp. Hann sleppti ekki takinu á lífinu fyrr en ég bað hann að fara, því ég gæti ekki meira,“ segir Ingi Þór dapur í röddinni, en Michael lést árið 1997. „Við Michael værum enn sam- an í dag, hefði lífið sigrað dauð- ann, en ekkert er við því að gera. Stundum er sagt að tíminn lækni öll sár, en það er vitleysa. Tíminn læknar engin sár. Maður lærir að lifa með þeim líkamlegu og and- legu kvölum sem lífið býður manni; gerir það besta úr breytt- um aðstæðum. Söknuðurinn getur gert út af við mig, jafnvel eftir öll þessi ár. Ég trúi á eina, sanna ást og miða enn allt og alla við hann, sem er vitaskuld óréttlátt. En ég ber ekki síður sjálfan mig saman við það hvernig mér leið með Michael, því hver maður hefur rétt á því að láta sér líða sem best, þótt maður verði stundum að breyta aðeins sjálfum sér til að hleypa öðrum að,“ segir Ingi Þór af visku þess sem átt hefur og misst. Í neti skúrksins Eftir fráfall Michaels varð tóm- leikinn hlutskipti Inga Þórs. Hann ákvað að flýja á náðir annríkis og keypti yfirgefinn veitingastað í Sheperd Bush-hverfinu í Vestur- Lundúnum, sem hann gerði upp 22 10. júlí 2005 SUNNUDAGUR Leynivopni› frá Íslandi Skagama›urinn Ingi fiór Jónsson er me› fallegri Íslendingum. Ári› 1984 stó› hann uppi sem mesti sundgarpur Íslands og flreytti sundkapp á Ólympíuleikunum í Los Angeles. Um flær mundir vildu ófáar dætur lands fanga hjarta hans en einmitt flá sté hann ni›ur af ver›launapöllunum til a› horfast í augu vi› hug sinn til karla. Sí›an flá hafa örlögin spunni› sinn flókna flrá›, en aftur er Ingi fiór or›inn sundstjarna og nú me› æ›ri tilgang en nokkru sinni. fiórdís Lilja Gunnarsdóttir átti stund me› Inga fiór í Manchester. SUNDGARPUR MEÐ KÖLLUN Ingi Þór Jónsson hefur átt flókið líf og í því hafa skipst á skin og skúrir. Um tvítugt var hann einn frækn- asti sundkappi Íslands og nú tveimur áratugum síðar vinnur hann enn til gullverðlauna. Hann segir sundið hafa verið sinn háskóla og beinir kröftum sínum víða, ekki síst í þágu ýmissa minnihlutahópa. SEGULL Á GULLIÐ Ingi Þór stingur sér varla til sunds nema að uppskera gullverð- laun fyrir sprettinn, en hér er hann á Evr- ópuleikum samkynhneigðra í München í fyrra, þar sem hann vann til sex gullverð- launa. Með honum á myndinni er Trevor Burchick, formaður klúbbsins í Manchester. Á hægri myndinni er Ingi Þór ásamt verðlaunahöfum frá Manchester á opna spænska meistaramótinu í Barcelona. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T R EV O R B U RC H IC K Ég vissi að ég væri hommi en gat ekki komið úr skápnum því í íþróttum er ríkj- andi hommafóbía. Þess vegna varð ég að velja annaðhvort að hætta eða halda áfram, seinni kosturinn var útilokaður enda leið ég sálarkvalir.“ ,,

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.