Fréttablaðið - 24.08.2005, Page 2
2 24. ágúst 2005 MIÐVIKUDAGUR
Strangar reglur í gildi um fjársafnanir:
Lögreglan kannar
lögmæti söfnunar
LÖGREGLA Lögreglan kannar hvort
heimild sé fyrir söfnun til styrkt-
ar bágstöddum börnum á Íslandi.
Mjög strangar reglur eru í
gildi um safnanir samkvæmt lög-
um um opinberar fjársafnanir.
Til að mynda ber þeim sem
standa að söfnun að tilkynna lög-
reglunni um söfnunina áður en
hún hefst.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Reykjavík, sem
fékk málið inn á borð til sín í
gær, liggur ekki ljóst fyrir hvort
leyfi er fyrir umræddri söfnun.
Lögreglan segir að einn for-
svarsmanna söfnunarinnar hafi
sagst hafa sent lögreglunni bréf.
Hins vegar hafi það verið sent á
lögreglumann sem sé hættur
störfum. Forsvarsmaðurinn
hefur verið boðaðir á fund lög-
reglunnar í dag.
Í lögum um fjársafnanir segir
að leggja eigi söfnunarfé inn á
banka- eða gíróreikning sem
stofnaður sé sérstaklega fyrir
söfnun. Að sögn lögreglu er ekki
vitað hvort þessu hafi verið fylgt
eftir né hvort reikningshaldið
hafi verið endurskoðað af lög-
giltum endurskoðanda líkt og lög
kveði á um.
Söfnun sem lögreglan er nú að
kanna hefur farið fram með
þeim hætti að hringt er í fólk og
það beðið um að styrkja tiltekið
málefni. Ef fólk hefur samþykkt
að gera það sendir félagið sem
stendur að baki söfnuninni gíró-
seðil heim að upphæð 1.500
krónur heim til fólksins. - th
Verktakar segjast hafa
tryggt sér flri›jung
Verktakar sem hafa falast eftir hesthúsum í Gla›heimum segjast hafa tryggt
sér allt a› flri›jung fleirra. Stjórn hestamannafélagsins Gusts telur tilbo›i› a›-
för a› félaginu. Bæjarstjórinn segir deiliskipulagi svæ›isins ekki ver›a breytt.
SKIPULAGSMÁL „Áhuginn fór fram
úr björtustu vonum,“ segir Guð-
bjartur Ingibergsson verktaki,
sem er í forsvari fyrir hóp sem
gert hefur tilboð í hesthúsin í
Glaðheimum á Gustssvæðinu í
Kópavogi. Að sögn hans hafa tíu
prósent eigendanna nú þegar
skrifað undir, álíka margir séu að
því komnir að skrifa undir og ver-
ið sé að ræða við um fimmtán pró-
sent til viðbótar sem vilji ganga til
samninga.
Glaðheimar eru gegnt Smára-
lindinni í Kópavogi og hafa verið
þar síðan 1968. Kópavogur hefur
verið að byggjast í kringum svæð-
ið síðustu áratugi og margir verk-
takar hafa áhuga á svæðinu undir
nýja byggð.
Guðbjartur segir engar fram-
kvæmdir munu hefjast á næst-
unni. Allir sem skrifi undir fái
húsin til afnota endurgjaldslaust í
tvö ár.
Mikil andstaða kom fram við
tilboðið á fundi félagsmanna á
mánudagskvöldið.
„Við teljum þetta vera aðför að
starfandi íþróttafélagi í Kópa-
vogi,“ segir Þóra Ásgeirsdóttir,
formaður hestamannafélagsins
Gusts. „Slíkt er alvarlegt mál. Ég
veit ekki um neinn sem hefur
skrifað undir bindandi kauptil-
boð.“
Guðbjartur segir ekki spurn-
ingu hvort byggt verði heldur
hvenær. Hann fullyrðir að flestir
hestamenn geri sér grein fyrir því
að þetta sé ekki framtíðarsvæði
þeirra. Því mótmælir Þóra alfarið.
„Ég spyr á móti: Við hvaða hesta-
menn er hann að tala?“ Hún segir
um 200 félagsmenn hafa mætt á
fundinn og enginn þeirra hafi
virst þessarar skoðunar.
Gunnar I. Birgisson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, segir það koma á
óvart ef svo margir hafi skrifað
undir. Kópavogsbær á landið en
leigir hestamannafélaginu Gusti
það, og á félagið forkaupsrétt á
hesthúsum félagsmanna á lóðun-
um. Gunnar ítrekar að bærinn hafi
leigt Gusti þetta svæði fram til árs-
ins 2038. „Þessir verktakar geta
ekki byggt eitt né neitt nema Kópa-
vogsbær breyti deiliskipulaginu og
við ætlum okkur ekki að gera það.“
Að sögn Guðbjarts mun stjórn
Gusts fá að sjá þá samninga sem
gerðir hafa verið á næstu dögum
vegna forkaupsréttarins.
grs@frettabladid.is
Mannekla á frístundaheimilum:
Lág laun stór
hluti vandans
SKÓLAR „Það er auðvitað mjög
slæmt ef þessi staða kemur ítrek-
að upp á haustin,“ segir Elín
Thorarensen, framkvæmdastjóri
Heimilis og skóla. Mörg hundruð
börn bíða þess að fá pláss á frí-
stundaheimilum Reykjavíkur-
borgar vegna manneklu.
„Ég tel stóran hluta af vandan-
um koma til vegna þess að launin
eru mjög lág,“ segir Elín. „Fólk
staldrar þess vegna stutt við í
starfi og hleypur af stað um leið
og annað býðst.“
Elín telur að hægt væri að auð-
velda mannaráðningar með því að
leitast við að byggja upp faglegra
starf í frístundaheimilunum, til
dæmis með því að ráða meira af
fagmenntuðu fólki. - ht
Sindraberg gjaldþrota:
Sextán sagt
upp störfum
GJALDÞROT Sushi-sjávarréttaverk-
smiðjan Sindraberg á Ísafirði er
gjaldþrota og hefur skiptastjóri
verið ráðinn yfir þrotabúinu.
„Þetta er ekki fyrsta fyrirtækið
sem við sjáum á eftir. Þetta var
góður vinnustaður og fólkinu líkaði
störfin vel,“ segir Helgi Ólafsson,
varaformaður Verkalýðsfélags
Vestfirðinga.
Sextán starfsmenn fengu upp-
sagnarbréf í fyrrardag. „Fólkið er
enn miður sín en ég vona að atvinna
bjóðist á næstunni. Hátt gengi krón-
unnar samfara stóriðjufram-
kvæmdum réði úrslitum. Þessi ál-
stefna fer að verða okkur Vestfirð-
ingum dýr,“ segir Helgi. - jh
SPURNING DAGSINS
Eiríkur, hyggist fli› tala
dönsku á sunnudögum?
„Hér eru töluð fjölmörg tungumál, ekki
síst á sunnudögum þegar starfsmenn
Kárahnjúkavirkjunar koma í bæinn.“
Ný göngugata á Egilsstöðum á að heita Strikið,
líkt og þekktasta göngugata Kaupmannahafnar.
Eiríkur Björn Björgvinsson er bæjarstjóri á Fljóts-
dalshéraði.
ÚR ÖRYGGISMYNDAVÉLUM HEIMAVISTAR
Vegna úrskurðar Persónuverndar verða
sextán eftirlitsmyndavélar teknar niður af
göngum heimavistarinnar.
Hnífstunga við Hverfisgötu:
Lést eftir
líkamsárás
ANDLÁT Maðurinn sem var stung-
inn til bana í húsi við Hverfisgötu
í Reykjavík á laugardagsmorgun
hét Bragi Halldórsson. Hann var
fæddur árið 1985 og var ókvæntur
og barnlaus. Hann var til heimilis
að Vesturgötu 50a. Foreldrar hans
eru Birna Björgvinsdóttir og
Halldór Bragason. - hb
Skólameistari ósáttur:
Íhugar mál gegn
Persónuvernd
PERSÓNUVERND „Herbergin eru af-
drep þar sem nemendur njóta
sinnar persónuverndar. Með þess-
um myndavélum erum við að
verja hagsmuni nemenda, for-
eldra og skólans,“ segir Jón Hjart-
arson, skólameistari Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra á Sauð-
árkróki. Hann íhugar að fara í mál
við Persónuvernd vegna úrskurð-
ar um að fjöldi eftirlitsmyndavéla
á göngum heimavistar skólans
brjóti gegn meðalhófsreglu. Hann
segir þó ekki ljóst hvort leitað
verði til dómstóla eða umboðs-
manns Alþingis. Fyrst verði rætt
við fulltrúa menntamálaráðuneyt-
isins. - ss
MANNRÉTTINDI Yfirgnæfandi líkur
eru á því að Aron Pálmi Ágústsson
sé í þann veginn að fá frelsi. Nafn
hans er nú á lista sem löggjafar-
þing Texas hefur tekið saman yfir
fanga sem það mun leggja til við
ríkisstjóra Texas á næstu dögum
að verði látnir lausir.
Jafnvel er búist við að Aron
Pálmi verði kominn til landsins
eftir viku til tíu daga.
Afgreiðsla málsins hefur tafist
nokkuð vegna sumarleyfa og þá
hefur ríkisstjórinn Rick Perry
verið á kosningaferðalagi.
Einar S. Einarsson, formaður
stuðningshóps Arons, segir að mál
hans hefði að öllum líkindum
gleymst hefði því ekki verið fylgt
eftir. „Núna eru þrír mánuðir
síðan við hófum þessa baráttu.
Málið hefur verið rekið með mildi
og miskunn að leiðarljósi.“ Að
sögn Einars er það fyrst og fremst
formsatriði að ríkisstjórinn mæti
á skrifstofuna og staðfesti lista
þingsins. „Það myndi heyra til
mikilla undantekninga ef hann
gerði það ekki,“ segir Einar. „Nú
má segja að niðurtalningin sé
hafin.“ - grs
Manndráp og líkamsárás:
Hinir grunu›u
yfirheyr›ir
LÖGREGLUMÁL Yfirheyrslur stóðu í
gær yfir 23 ára gömlum manni sem
grunaður er um hafa orðið manni að
bana á Hverfisgötu fyrir helgi og
yfir 17 ára gömlum dreng sem
talinn er hafa stungið annan í bakið
á Menningarnótt í Reykjavík. Yfir-
heyrslurnar fóru fram í fangelsinu
á Litla-Hrauni þar sem þeir sitja
báðir í gæsluvarðhaldi.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn sagðist í
gærkvöldi ekki hafa rætt við lög-
reglumennina sem sáu um yfir-
heyrslurnar og gat því ekki svarað
því hvort mennirnir hafi játað.
- óká / - grs
Skógareldarnir:
Slökkvistarf
gengur betur
LISSABON, AP Betur gengur nú að
ráða niðurlögum skógareldanna í
Portúgal, sem hafa geisað þar að
undanförnu.
Lækkandi hitastig og aukin úr-
koma hefur gert slökkviliðsmönn-
um kleift að halda tuttugu eldum í
skefjum af þeim þrjátíu sem loga í
portúgölskum skógum. Hins vegar
var heitt og þurrt í landinu í gær og
því var búist við að bálið yxi á nýjan
leik.
Portúgalska ríkisstjórnin hefur
farið fram á aðstoð frá Evrópusam-
bandinu en nokkur Evrópulönd hafa
þegar lánað landsmönnum slökkvi-
liðsflugvélar.
Yfir 140.000 hektarar hafa orðið
eldinum að bráð þrátt fyrir hetju-
lega baráttu 2.360 brunavarða. ■
SÆKJA VATN Flugmenn björgunarvéla
sækja vatn til að slökkva skógareldinn.
M
YN
D
/A
P
HÓPREIÐ Í GLAÐHEIMUM Hér sést hópur félagsmanna í hestamannafélaginu Gusti ríða
framhjá hesthúsum í Glaðheimum
Nafn Arons Pálma er á lista yfir fanga sem verða hugsanlega látnir lausir:
Gæti losna› innan tíu daga
NIÐURTALNINGIN ER HAFIN Aron Pálmi
losnar að öllum líkindum á næstu dögum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
O
H
N
W
ES
SL
ER
M
YN
D
/B
JA
R
N
LE
IF
U
R
B
JA
R
N
LE
IF
SS
O
N