Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 41

Fréttablaðið - 24.08.2005, Síða 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 15 S K O Ð U N Vísitala neysluverðs í september hækkar um 0,9 prósent ef spá greiningardeildar KB banka gengur eftir. Spáin gerir ráð fyrir að 12 mánaða verðbólgan verði 4,2 prósent og fer verðbólg- an því aftur upp fyrir efri þol- mörk peningamálastefnunnar, en síðast var verðbólgan fyrir ofan þolmörkin í apríl síðastliðnum. Í maí tóku gildi breytingar á út- reikningi fasteignaliðarins í vísi- tölu neysluverðs sem leiddi til verulegrar lækkunar á verðbólg- unni en verðbólgan er nú rúm- lega 0,8 prósent lægri af þeim sökum. Rætur verðbólgunnar er nær eingöngu að reka til hækk- unar á fasteignaverði en vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur aðeins hækkað um 0,1 prósent á síðastliðnum 12 mánuðum. Sam- kvæmt samræmdri vísitölu neysluverð er verðbólga á evr- ópska efnahagssvæðinu lægst á Íslandi, en eigið húsnæði er ekki inni í vísitölu húsnæðis. Í Hálffimm fréttum KB banka segir að samkvæmt útreikning- um Fasteignamats ríkisins hafi fasteignaverð haldið áfram að hækka í mánuðinum og fast- eignaverð verði eftir sem áður helsti drifkraftur verðbólgunnar í september. Samkvæmt útreikn- ingum greiningardeildar KB banka mun hækkun fasteigna- verðs leiða til um 0,25 prósenta hækkunar á vísitölu neysluverðs. Í Hálffimm fréttum KB banka segir að venju muni útsölulok hafa mikil áhrif á vísitöluna í næstu mælingu en gert sé ráð fyrir því að útsölulok munu hafa um 0,4 til 0,45 prósenta áhrif á vísitöluna til hækkunnar. Elds- neytisverð hafi hækkað mikið í mánuðinum og hafi verðið á 95 oktana bensíni hækkað um 2,7 krónur og verð á dísilolíu hafi hækkað um 3,2 krónur. Hækkan- ir á eldsneytisverði muni því leiða til um 0,1 prósenta hækkun- ar á vísitölu neysluverðs. Í Morgunkornum greiningar- deildar Íslandsbanka segir að mikil hækkun íbúðaverðs valdi því að afar hagstætt sé að byggja íbúðir um þessar mundir og hvetji það til aukins framboðs á markaðinum. Íbúðaverð á höfuð- borgarsvæðinu hafi hækkað um tæp 40 prósent í júlí miðað við sama tíma í fyrra samkvæmt vísitölu íbúðaverðs hjá Fast- eignamati ríkisins. Bygginga- kostnaður hafi hins vegar aukist um aðeins 3,7 prósent á sama tímabili samkvæmt bygginga- vísitölu Hagstofunnar. „Hagur byggingaraðila hefur því vænkast umtalsvert á stuttum tíma og leiðir til vaxandi fram- boðs á markaðinum,“ segir í Morgunkornum. Fasteignaverð áfram helsti drifkraftur verðbólgunnar Færeyskur banki S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Í Morgunkornum greiningardeildar Íslandsbanka segir að mikil hækkun íbúðaverðs valdi því að afar hagstætt sé að byggja íbúðir um þessar mundir og hvetji það til aukins framboðs á markaðinum. Ég er að hugsa um að stofna eignarhaldsfélag í Færeyjum. Allir stóru fjárfestarnir hér á landi horfa til Bretlands og Norðurlandanna og nenna ekk- ert að hugsa um möguleikana í Færeyjum. Þar er núna einstakt tækifæri fyrir okkur sem vitum allt um hvað gerðist á Íslandi síðustu árina að fara í tíma- ferðalag. Færeyjar 2005 eru Ís- land 1995 eða jafnvel enn fyrr. Ég veit að Færeyingarnir eru stressaðir yfir því að útlending- ar komi og kaupi allt í Færeyjum þegar þeir byrja að einkavæða. Þess vegna er sennilega skyn- samlegt að reyna að finna Fær- eying sem hefur náð árangri er- lendis og getur komið til baka forframaður og auðugur. Nær- tækast er náttúrlega að setja sig í samband við Jákúp í Rúm- fatalagernum. Hann hefur ekki farið hátt, en er geysilega öflug- ur. Búinn að reka þessar versl- anir með glæsibrag undanfarin ár og á eflaust seðlabúnt undir Rúmfatalagerskoddanum sínum. Ég sé alveg fyrir mér að við mætum í sameiginlegu eignar- haldsfélagi, sem gæti til dæmis heitið Dalíla, og kaupum eitt stykki banka í Færeyjum. Síðan gerum við bara eins og Bjögg- arnir. Setjum smá stuð í atvinnu- lífið í Færeyjum og dobblum verðið á bankanum. Þetta hefur reynst vel hér á landi. Björgólfs- feðgar hafa gert það rosalega gott á þessu og um leið hafa margir aðrir grætt. Af því að mér er annt um að vera ósýnilegur myndi ég svo senda Jákúp í öll viðtölin og opinberar athafnir þegar bank- inn styrkti menningarstarfsemi og þvíumlíkt í Færeyjum. Þegar bankinn er kominn í höfn, þá förum við að makka með Þorsteini Má um sjávar- útveginn, hagræðum hressilega eða seljum pakkann einhverjum ástríðuútgerðarkallinum í Fær- eyjum með skuldsettum kaup- um. Bankinn mun auðvitað græða á öllu saman og fara að huga að útrás. Svo myndum við kaupa það sem eftir verður í Danmörku eftir kaup Íslendinga þar í landi. Ég held ég selji Jákúpi hugmyndina með því að það verði ekkert tiltökumál að kaupa móðurfyrirtæki Rúm- fatalagersins, Jysk sengetøjs- lager, af Lars Larsen, þegar maður á færeyskan banka. Spákaupmaðurinn á horninu Fr ét ta bl að ið /J oh an na T G

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.