Fréttablaðið - 24.08.2005, Side 42
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 2005 MARKAÐURINN16
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
„Ég byrjaði árið 1968 að fram-
leiða karamellur í kjallaranum
heima hjá mér. Það var nú bara
hugsað sem smá aukavinna til að
drýgja tekjurnar, en vatt síðan
upp á sig. Ég fór svo að framleiða
Hraun og Æðibita, sem allir
þekkja og lifa enn góðu lífi,“
segir Helgi Vilhjálmsson, eigandi
sælgætisgerðarinnar Góu.
Það er óhætt að segja að Góa
hafi vart litið um öxl síðan Helgi
byrjaði í karamellunum. Fyrir-
tækið flutti nýlega í
sex þúsund fer-
metra hús-
næði við
Garðahraun,
á mótum
Garðabæjar og
Hafnarfjarðar, og
ekkert lát virðist vera á vel-
gengninni. „Í dag er sælgætið frá
okkur inni á öllum heimilum,
nema þeirra sem er illa við mig,“
segir Helgi hlæjandi.
Helgi segir miklu muna að
vera í eigin húsnæði. Í upphafi
hafi Góa hrökklast úr einu leigu-
húsnæðinu í annað: „Við keypt-
um svo loksins hús í Hafnarfirð-
inum og vorum þar í tuttugu ár
þangað til við fluttum hingað í
Garðahraunið. Það er algerlega
nauðsynlegt að vera í
eigin húsnæði.“
Góa keypti
árið 1992 ak-
ureyrsku sæl-
g æ t i s v e r k -
smiðjuna Lindu
og stuttu síðar
lakkrísgerðina Drift: „Með
samrunanum hófst nýtt ævintýri.
Þegar við keyptum Lindu var
þetta eiginlega spurning um tvö
lítil fyrirtæki sem þurftu að kom-
ast á sama gólf. Með kaupunum á
Drift varð gamla húsnæðið ekki
nægilega stórt og því fluttum við
hingað í Garðahraunið.“
Hjá Góu vinna í dag um fjöru-
tíu manns. Helgi segist þó eiga
erfitt með að henda reiður á
fjöldanum enda telji hann allt
með puttunum: „Ég er ekki með
nægilega marga putta til að telja
allt fólkið sem vinnur hérna. Því
virðist þó alltaf fjölga er nær
dregur mánaðamótum og útborg-
unardegi.“
ATVINNULEYSIÐ KEPPINAUTUR
Helgi er forstjóri af gamla skól-
anum, í vinnunni klæðist hann
verkamannagalla í stað jakkafata,
hins hefðbundna forstjóraklæðn-
aðar: „Ég gæti svo sem alveg far-
ið út í búð og keypt mér tíu Boss-
jakkaföt. Ég myndi bara aldrei
klæðast þeim, þau yrðu sennilega
orðinn allt of lítil á mig þegar mér
loksins dytti í hug að fara í þau.“
Það er greinilegt að Helga er
mikið í mun að vera bara einn af
hópnum: „Ég hef aldrei verið
hrifinn af titlum og slíku prjáli.
Þeir hafa aldrei og munu aldrei
gefa manni neitt. Ég vil frekar
vera kallaður Helgi í Góu en for-
stjóri eða eitthvað slíkt.“
Á Íslandi eru í dag sex þúsund
manns án atvinnu. Helgi hefur
sterkar skoðanir á því, eins og
svo mörgu öðru: „Það fer hrein-
lega um mann að fletta dagblöð-
unum og sjá allar atvinnuauglýs-
ingarnar, svo eru þúsundir
manna atvinnulausar. Þetta
stenst ekki skoðun“
Hann segir að skuldinni megi
að miklu leyti skella á verkalýðs-
félögin, sem fái allt of mikla
meðgjöf frá ríkinu: „Í síðustu
kjarasamningum varð mest
hækkun á atvinnuleysisbótunum.
Það er svo komið að aðalkeppi-
nautur okkar atvinnurekenda um
starfsfólk er atvinnuleysið.“
Helgi heldur áfram: „Ég sé
ekkert að því að öryrkjar og
annað fólk sem á við vanda að
stríða fái bætur en þegar fólk í
blóma lífsins vill heldur stimpla
sig inn einu sinni í mánuði, og fá
fyrir það fín laun, finnst mér nóg
komið. Ég er með eina 89 ára í
vinnu hjá mér, líklega elsta
starfsmann í heimi, og ekki
kvartar hún. Hún skilar sínu og
vel það, rífur meira að segja
kjaft.“
„HEFÐI KEYPT MÉR KADILJÁK“
Helgi vill ekki gefa upp nákvæm-
ar tölur úr rekstri Góu, segist
hreinlega ekki vera með þess
konar hluti á hreinu: „Ég hef
aldrei spáð í tölur, til þess eru
endurskoðendur. Ætli veltan sé
ekki einn til tveir milljarðar, ég
er bara ekki með síðustu tölur á
takteinum.“
Hann segir það þó vilja
brenna við að menn forgangsraði
vitlaust: „Það vill oft gleymast að
það er það sem eftir stendur sem
skiptir máli, hvað afgangurinn er
góður eftir öll þessi ár.“
Framtíðin er björt að mati
Helga. Hann segir gríðarlegar
breytingar hafa orðið á þjóð-
félaginu frá því hann ólst upp og
flest til batnaðar: „Þegar ég var
ungur fengu nokkrir útvaldir lán,
nú getur ungt fólk fengið
splunkunýjan bíl fyrir sextán
þúsund krónur á mánuði. Hefði
þetta verið hægt þegar ég var
ungur hefði ég líklega unnið tíu
tíma í næturvinnu og keypt mér
Kadilják í stað þess að vera sí-
fellt að púkka upp á einhverjar
druslur.“
Sælgætisgerðin Góa
Stofnuð 1968 af Helga Vilhjálmssyni
Fjöldi starfsmanna: Um fjörutíu
Höfustöðvar: Garðahrauni 2, Garðabæ
Gæti keypt mér tíu Boss-jakkaföt
Helgi Vilhjálmsson er eigandi sælgætisgerðarinnar Góu auk þess að fara með
umboð fyrir Kentucky Fried Chicken á Íslandi. Helgi hefur rekið Góu frá árinu
1968 og farið frá því að framleiða karamellur í kjallaranum heima hjá sér í að
reka sex þúsund fermetra sælgætisverksmiðju. Jón Skaftason ræddi við Helga
yfir rjúkandi kaffibolla og Æðibitum.
ÞORVALDUR I. BIRGISSON hefur verið
ráðinn sölustjóri á fyrirtækjasviði Sjóvá
en Þorvaldur hóf
störf hjá félaginu í
maí síðastliðinn.
Hann starfaði áður
sem rekstrarstjóri
neytendasviðs hjá
Skeljungi en þar á
undan hjá Ruko AS í
Danmörku. Þorvaldur lauk mastersprófi
(M.Sc) frá Viðskiptaháskólanum í Kaup-
mannahöfn (CBS) árið 2002.
HELGI VILHJÁLMSSON Í GÓU Helgi segir Ísland hálfgerða Paradísareyju, fólk hafi allt til alls og geti jafnvel keypt sér nýjan bíl fyrir sextán
þúsund krónur á mánuði: „Hefði þetta verið hægt þegar ég var ungur hefði ég líklega unnið tíu tíma í næturvinnu og keypt mér Kadilják í
stað þess að vera sífellt að púkka upp á einhverjar druslur.“
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA
„Ég er ekki með nægilega marga putta til að telja allt
fólkið sem vinnur hérna. Því virðist þó alltaf fjölga er
nær dregur mánaðamótum og útborgunardegi.“