Tíminn - 14.09.1975, Side 29
Sunnudagur 14. september 1975.
ItMINN
29
——
Sparíð fé og fyrirhöfn
VIÐ TÖKUM
af ykkur ómakið
UM LEIÐ og þiö pantið gistingu hjá
Hótel Hof i látið þið okkur vita um ósk-
ir ykkar varðandi dvölina í Reykjavík
og við útvegum m.a. bílaleigubíla með
hagkvæmum kjörum, aðgöngumiða í
leikhús eða að sýningum, borð í
veitingahúsum og ýmislegt annað.
Hótelið er lítið og notalegt og því á
starfsfólk okkar auðvelt með að sinna
óskum ykkar — og svo eruð þið mjög
vel sett gagnvart strætisvagnaferðum
(rétt við Hlemm).
Kynnið ykkur okkar hagstæða vetrar-
verð.
Sérstakur afsláttur fyrir hópa og
langdvalargesti.
markaði og þar sem karlar eru
naegilega öruggir um eigin mann-
dóm, til að þeir þurfi ekki að vera
með leikaraskap til að sanna
hann.
Það, sem kom mér mest á óvart
eftir að bók mtn „Hrædd við að
fljiíga” kom út var, hvernig
margir karlmenn virtust lita svo
á, að konur, sem eru færar i starf i
hlytu jafnframt að vera „dómin-
erandi”. Hvað eftir annað hef ég
hittmenn,sem hafa sagt við mig:
„Mér kemur á óvart, hvað þú ert
kvenleg”, „Ég er hissa, hvað þú
hefur mjúka rödd” og „Mér kem-
ur á óvart, að þú ert ekkert ógn-
vekjandi”. Við hverju bjuggust
þeir eiginlega? Valkyrju með
haglabyssu? Slikar athugasemdir
særðu mig — þangað til ég fór
loks að skilja, að þær sýndu ekki
persónuleika minn heldur hug-
myndir þessara manna um kon-
ur, sem komast áfram. Þær
skyldu vera háværar, dóminer-
andi, herskáar. Kannski settu
þessir menn ómeðvitað jöfnunar-
merki milli árangurs kvenna i
starfi og sadisma, hörku og hat-
urs á karlmönnum.
Ég vildi óska, að dóttir min
ælist upp i heimi, þar sem þetta
væri ekki svo lengur. Ég vildi að
hún ætti þess kost að vera dugleg i
starfi og ástrik við elskhuga sina
og vini án þess að finna til tog-
streitu milli dugnaðar og kær-
leika. Allt of oft fela konur dugnað
sinn, eða leggja ekki rækt við
hæfileika sina, til þess að vekja
ekki öfund hjá mönnunum, sem
þær elska. Allt of oft eru konur
svo hræddar við að keppa við
karla, að þær nota aðeins hluta af
hæfileikum sinum og orku.
Hvað gera þær við það, sem
eftir er af orkunni?-Nota hana til
að elska, annast' og uppörva eig-
inmenn (og börn). Ég hef ekkert
á móti þvi að elska, annast eða
uppörva — en ég vildi, að dóttir
min yxi upp i heimi, þar sem
konur fá eins mikið af þessum
gæðum frá karlmönnum eins og
menn frá konum. Bæði kynin
þarfnast þessa, og ekki er
réttmætt, að konurnar séu svo oft
gefendur en sjaldan þiggjendur.
Bæði kynin þarfnast ástar, um-
önnunar og upporvunar og það
virðist óréítmætt, að konunum
einum sé a-ílað að hugga og ann-
ast l)i, i . ?m.\- er vissulega ljóst,
að mi:„v" er á kynjunum, en ég
tel ek:. sú staðreynd, að kon-
an hefui : ;..; feli þar með i sér,
aí/ koiv.: ...; séu færar um að
þvó blej yr tappa banana og
sei ja plár: sár hné.
Fordæmi skortir
Ég skrifa þessa grein um
ófædda dóttur i staðinn fyrir
ófæddan son, af þvi að ég álit, að
vandamál mæðra og dætra séu
miklu flóknari og erfiðari en
vandamál mæðra og sona.
Við byggjum heim, þar sem
konur eiga i hugarstriði vegna
hlutverks sins sem konur — við
lifum á timum, þegar skoðanir
kvenna á sjálfuj sér eru i mótun
— og næstum alltaf bitnar þessi
kvenna á sjálfum sér eru i mótun
— og næstum alltaf bitnar þessi
togstreita á dætrunum. Þær eiga
oft auðveldara með að sýna dætr-
um sinum einlæga ástúð. Konum
er i mun að gera dærtum sinum
hið sama og mæður þeirra gerðu
þeim eða þá að bæta það upp, og
samband móður og dóttur ein-
kennis þvi oft á fölskum vonum og
hiki, sem veldur mikilli óvissu hjá
þeim. Afleiðingin verður sú, að
þær eru hræddari við að vera
yfirgefnar og lata ást einhvers,
hræddari við frama, og hneigðari
til að fórna persónulegum þörfum
fyrir ást karlmanns.
Hve margar okkar eiga mæður.
sem hafa leyst þann vanda að láta
starf og ást fara saman og geta
verið okkur jákvætt fordæmi?
Mjög, mjög fáar? Ég hef talað við
aðrar konur, sem gengur vel i
starfi, og það sem þeim er eink-
um sameiginlegt (burtséð frá þvi
hvers konar vinnu þær gegna) er,
að þeim finnst þær vera að brjóta
nýtt land tilfinningalega, að þær
hafi hvergi fordæmi. Venjulega
hafa mæður þeirra verið heima
og þeim kosti hafna þær þegar i
stað (þar sem þær þekkja svo vel,
hve ófullnægjandi hann er) Þess i
staðreyna þær að likjast feðrum
sinum —sem er út af fyrir sig
gott, þegar um er að ræða starf og
vtri afrek, en tæpast að gagni,
þegar um er að ræða tilfinninga-
legar (og liffræðilegar) hliðar
þess að vera kona.
Vist ertu
Iijúkrunarkona
Þannig sitjum við uppi með
togstreituna. Við eigum okkur
engar fyrirmyndir. Okkur finnst
við alltaf vera brautryðjendur.
Annar helmingur segir. „Vertu
eins og mamma og njóttu
öryggis.” H'inn helmingurinn
segir: „Vertu eins og pabbi og
gerðu eitthvað úti i heiminum.”
En hvorugur hefur rétt fyrir sér.
Þvi við vitum, að mamma var
ekki örugg i raun og veru : :or
að sjálfsögðy énginnijog viö vit-
um. aö ef við revnum að likiast
pablia og skeyta stundum engu
um ij.ilskyldu, heimili og börn,
allt til að komast áfram, áfram
áfram), verður hlutskipti okkar
að lokum vonbrigði og ófullnæg-
ing.
En hvernig er hægt að gera
hvort tveggja? Hvernig er hægt
að gera konum framtiðarinnar
kleift (og ófæddri dóttur minni
þar á meðal) að þroska báða
þessa þætti eðlis sins? Þær verða
að eiga sér fyrirmyndir. Og við
erum þessar fyrirmyndir — hvort
sem við viljum viðurkenna það
eða ekki. Þess vegna veldur það
mér óróa, að svo margar ungar
konur.sem eru gáfaðarog gengur
vel — og svo margar ungar kven-
réttindakonur — eignast ekki
börn. Það eru þær, sem geta sýnt
dætrum sinum fram á, að hægt sé
að gera hvort tveggja. Það eru
þær, sem geta skapað fordæmi.
Þar sem ég hef dregið svo lengi
að eignast barn, er ég i éinstæðri
aðstöðu. ef ég geri það. Þegar
dóttir min fæðist mun hún alast
uppmeð móður,sem eyðira.m.k.
fimm klst. á dag við ritvélina,
sem flytur fyrirlestra við háskóla
og litur á ritstörfin, sem sitt
annað eðli. Eins og öll börn mun
hún hafa truflandi áhrif vegna
þeirrar gleði, sem ég mun hafa af
henni, og þarfar hennar fyrir um-
önnun. En það, sem hún fær út úr
þessu — þegar hún sjálf verður
Framhald á bls. 35. siðu.
Bílavara-
hlutir
Notaðir
varahlutir
í flestar gerðir eldri bíla
m a,: Chevrolet Nova ’66
Willys station ’55
VW rúgbrauð ’66
Opel Rekord ’66
Saab ’66
VW Variant ’66
Öxlar í
aftaníkerrur
til sölu frá
kr. 4 þús.
Það og annað
er ódýrast
lijá okkur.
BJLAPARTASALAN
Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 laugardaga.
xtt j i ri-Li n i i 1:0