Tíminn - 09.12.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 09.12.1975, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 9. desember 1975. TÍMINN 3 Baldur heldur á miðin einhvern næstu daga Að sögn Péturs Sigurðssonar, forstjóra Landhelgisgæzlunnar, munu allir yfirmenn á varðskip- inu Árvakri fara yfir á Baldur, en Árvakri verður nú lagt um sinn, a.m.k. fram yfir jól. Pétur Sigurðsson kvaðst hins vegar bú- ast við þvi', að Arvakur héldi til gæzlustarfa eftir jólin, og nefndi, að ýmsar lagfæringar þyrfti að gera um borð í Árvakri áður en hann héldi til starfa á ný. á gerðir Landhelgisgæzlunnar. — En okkur þykir betra að hafa þá fyrir aftan okkur en fyrir framan, sagði Pétur. Skuttogarinn og varðskipið Baldur er smiðaður i Póllandi og er 740 tonn. Mesti ganghraði skipsins er 17 milur. Skipherra á Baldri er Höskuldur Skarphéðins- son. Greint hefur verið frá þvi i fréttum, að freigáturnar brezku hafa yfireinhvers konar vopni að ráða, sem sé til þess hannað að skera klippurnar aftan úr varð- skipunum. Pétur Sigurðsson vildi sem minnst gera úr þessu vopni Bretanna i gær, þegar Timinn hafði tal af honum, og sagði, að freigáturnar hefðu haft sams Fátt óttast brezkir togaraskiptstjórar meira en klippur varðskipanna. Það fer samt ekki mikið fyrir þessu skæða vopni, eins og glöggt sést á þessari mynd, en hún cr tekin um borð i varðskipinu Árvakri i gær. Tímamyndir: Gunnar — Árvakur í höfn fram yfir jól Gsal-Reykjavik — i dag mun nýtt varðskip verða afhent Land- helgisgæziunni, en það er skut- togarinn Baldur, sem á sínum tima var keyptur til landsins fyrir Hafrannsóknastofnunina. Áform- að er að hið nýja varðskip haldi þegar i þessari viku til gæzlu- starfa, og verður byssu nú komið fyrir á skipinu, og væntanlega fær það lika sinar kiippur, Skuttog- arinn Baldur hefur siðustu mán- uði verið i Póilandi, þar sem ýms- ar lagfæringar hafa verið gerðar á skipinu með tilliti til þess hlut- verks, sem þvi er nú ætlað. konar tæki i siðasta þorskastriði, og það hefði aldrei haft nein áhrif 69 hringum stolið 2 millj. verðmæti gébé—Rvik — A sunnudagsmorg- un var brotizt inn I skartgripa- verzlunina að Skólavörðustig 21 Á i Reykjavik. Náði þjófurinn eða þjófarnir hringjum úr verzlunar- glugganum og er álitið, að verð- mæti þeirra geti verið hartnær 2 milljónir króna, en hver hringur kostaði frá tiu til fimmtiu þúsund krónur. Þjófarnir eru ófundnir. Samkvæmt upplýsingum frá Hellert Jóhannessyni rannsókn- arlögreglumanni, var það vegfar- andi, sem leið átti um Skóla- vörðustiginn á sunnudagsmorg- un, sem tilkynnti um þjófnaðinn. Við rannsókn kom i ljós, að fyrst hafði verið reynt að skera rúðuna með glerskera, en þegar það hafði mistekist, var brotið gat á hana og gat þá þjófurinn auðveld- lega teygt sig inn og náð tveim kössum af hringjum, en i öðrum voru 40 kvenhringir, en 28 karl- mannshringir i hinum. Auk þess var einn stakur hringur tekinn en annað var látið ósnert. Flest- ir hringanna voru með dýrum steinum. Hellert sagði, að rannsókn málsins væri i fullum gangi, og að ibúar i nágrenninu hefðu ekki orðið varir við neitt. Biður rann- sóknarlögreglan alla þá, sem ein- hverjar upplýsingar geta veitt til að varpa ljósi á málið, aö láta sig vita. Nýjar vísnagátur eftir Ármann Dalmannsson Hjá útgáfufélaginu URÐ s.f. eru komnar út nýjar visnagátur eftir Armann Dalmannsson á Akureyri. Sams konar bók kom út fyrir jólin á siðastliðnu ári og hlaut hún miklar vinsældir. Nú hefur Armann samið fleiri gátur og verða verðlaun veitt fyrir réttar ráðningar. I þessu hefti eru jafnframt ráðningar á gátunum, sem birtust i fyrsta hefti, svo og myndagáta. FYRSTI FUNDUR MEÐ SÁTTA- SEMJARA í NÆSTU VIKU BHReykjavik. — Fyrsti samn- ingafundur ASl og atvinnurek- enda um kjaramál var haidinn sl. iaugardag. Var þar ákveðið aö visa deilunni strax til sáttasemj- ara, en samkvæmt vinnulöggjöf- inni hefði deilan farið til sátta- semjara 15. desember, eða þegar helmingur uppsagnartima samn- inganna væriliöinn. Töldu aðilar, að heppiiegast myndi reynast að vinna tíma með þessu móti. Ólafur Hannibalsson hjá ASl sagði Timanum i gærkvöldi, að fyrsti fundurinn með sáttasemj- ara væri enn ekki ákveðinn, en búizt væri við að hann yrði á mið- vikudag eða fimmtudag. en einnig væri reiknað með viðræð- um við rfkisstjórnina áður en langt liöi. Ólafur kvað ekki um að ræða nein viðbrögð atvinnurekenda við samþykkt þeirri, sem kjaramála- ráðstefna Alþýðusambandsins gerði i byrjun mánaðarins og birtist hér í Timanum, en á henni myndi samninganefnd ASI grundvalla kröfur sfnar. Stórtjón ó Neskaupstað BH-Reykjavik. — Stórviðri af norðaustri gekk yfir Neskaupstað aðfaranótt sunnudagsins og urðu ntiklar skemmdir á mannvirkj- urn. Samkvæmt frásögn fréttarit- ara Timans, Benedikt Guttorms- sonar, urðu engin ineiðsl á fólki, en járnplötur fuku af húsþökum og rúður brotnuðu, auk þess sem sjórinn skemmdi uppfyllingu Hafnarbrautarinnar á 300-400 metra kafla. Verst var veðrið milli klukkan þrjú og fimm um nóttina, og var þá stórhættulegt að vera á ferli vegna þakplatna, sem fuku um allt. Af Harðfiskverkuninni fauk allt þakið, þótt ekki færi það allt i einu. Þrátt fyrir hættuna af báru- járninu reyndu menn eftir megni að hemja það, sem við varð ráðið og bera farg á plötur, sem komið varð i skjól. Gekk veðrið á með éljum um nóttina. Benedikt Guttormsson kvað erfitt að geta sér til um tjónið af stórviðrinu, það væri að heita mætti ókannað enn, en telja mætti fullvfst, að þaö væri mikið, bæði á húsum og innbúum. Bátar voru allir i innri höfninni og væsti-ekki um þá þar, en veður var þvi verra sem utar dró. Tvö hús i smiðum úti á bökkunum urðu fyrir mikl- um skemmdum. Benedikt kvað sunnudaginn hafa verið annasaman hjá ibúum kaupstaðarins, en undir kvöldið hefði þó verið búið að koma þak- plötum fyrir að nýju, svo og rúðum I gluggum. 40 milljónir til nómsmanna erlendis gébé Rvik — tslenzkir námsmenn erlendis geta nú andað léttar, þar sem sýnt þykir, að þeir fái salt i jólagrautinn I ár. Eins og kunnugt er, hefur mikið veriö látið af þrengingum námsmanna erlcnd- is, vegna þess að haustlánin brugðust, og hefur verið talið, að fjöldi þeirra neyddist til að hætta nánii vegna fjárskorts. Vilhjálm- ur Hjálmarsson menntamálaráð- herra sagði i gær, að mennta- málaráðuneytið hefði samið, i samráði við fjármálaráðuneytiö, við Seðlabanka tslands um skyndilán til Lánasjóðs íslenzkra námsmanna að upphæð kr. fjöru- tiu milljónir króna. — Lánið skal notað til að flýta afgreiðslu haustlána til náms- manna erlendis, sagði Vilhjálm- ur. Það skal endurgreiðast i janú- ar með hluta af eitt hundrað milljón króna greiðslu af fjárveit- ingu 1976, en þá upphæð hafði áður verið heitið að inna af hendi til LÍN i janúar. Keypti hassið í Kaupmannahöfn gébé—Rvik — Eins og kunnugt er af fréttum, var maður nokkur handtekinn á Keflavikur-flugvelli s.l. föstudag, er tollverðir fundu tvö kiló af hassi i farangri hans. Samkvæmt upplýsingum frá As- geiri Friðjónssyni dómara ffkni- efnadómstólsins, hefur maðurinn veriðúrskurðaður I allt að þrjátiu daga gæzluvarðhald. Yfirhcyrsl- um er ekki lokið, en maðurinn ‘segist hafa keypt hassið i Kaup- inannahöfn. Einn stýrimanna Arvakurs, sýnir hér ljósmyndara Timans, hvar klippurnar skáru á vörpu brezka togarans, Port Vale og ekki ber á öðru en að þetta hafi verið hin finasta „klipping". Aðalfundur LÍÚ hefst í dag AÐALFUNDUR Landssambands tsl. útvegsmanna hefst i Reykjavik i dag kl. 2 að Hótel Esju. Aðalfundurinn hefst með setningarræðu Kristjáns Ragn- arssonar, formanns LIÚ. Gert er ráð fyrir að um 100 fulltrúar útvegsmannafélaga á landinu sitji fundinn. Stefnt er að þvi, að fundinum ljúki á fimmtu- dag. Siðdegis i aag mun Sigfús Scopka ræða um ástand fiski- stofnanna. Niðurstaða af krufningunni væntanleg í dag Gsal-Reykjavik — Að sögn Guðmundar Kristjánssonar, fulltrúa bæjarfógetans í Keflavik, er að vænta I dag niðurstöðu af krufningu stúlkunnar, sem Iézt eftir minniháttar átök i Keflavík i fyrri viku. Piltinum. sem úr- skurðaður var i gæzlgvarðhald vegna þessa máls, vgr sleppt siðdegis s.l. föstudags, enda hafði þá ekkert komið fram I málinu, sem benti til þess að átökin milli hans og stúlkunnar hefðu orðið þess valdandi að stúlkan lézt skömmu sföar, að sögn Guðmundar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.