Tíminn - 31.12.1975, Síða 6

Tíminn - 31.12.1975, Síða 6
6 TÍMINN Miövikudagur 31. desember 1975. Gullbrekka i Eyjafiröi. ■ ingólfur Davíðsson: 104 Byggt og búið í gamla daga * w, '4 J Ik Ll Zí±n A U N S 98 'Í8l.>8»> *! S« SS w i§ir m H •>| i* r* i 1* 188 |i »| mmw 1 11« 88 81 »9 88 «* 1 ,j43 g ^ 1 Hafnarstræti á Akureyri 1910. Elzta sjúkrahúsiö á Akureyri ' '4 l■■: * 2Í mí&M Arið 1921 tók Hallgrimur Einarsson ljósmyndari mynd þá af Gullbrekku i Saurbaejar- hreppi i Eyjafirði, sem hér er birt. Þetta hefur verið á tfma- mótum torfs- og timbur- bygginga á staðnum. Fólkið á myndinni: Niels Sigurðsson og Tryggvi Jóhannesson, báðir framan við skemmuþilið, Jóhann Frimannsson með torf- vegginn að baki, Maria Páls- dóttir, Helga Frimannsdóttir, Frimann Jóhannesson og Margrét Árnadóttir fyrir dyr- um, enda lengi ábúendur. Pálmi Friðriksson, Geirþrúður Frimannsdóttir og börn þeirra Auður og Ingólfur. Katrin Helgadóttir, Þórmunda Guð- mundsdóttir, Einar Hallgrims- son (eldri) og Guðný kona Hallgrims myndasmiðs. Nú ergamli bærinn horfinn og búið i steinhúsi á Gullbrekku. Næst litum við á gamalt timbur- hús með hrislu fyrir gafli, reist 1836. Þetta er fyrsta sjúkrahús á Akureyri, gamli spitalinn „Gudmanns Minde”, kennt við Akureyrar- og Kaupmanna- hafnar kaupmann, Frederik C. M. Jöhannesson Gudmann, er gaf Akureyri og nærsveitum sjúkrahúsið fullbúið með rúm- um, 11. nóv. 1873. Gudmann hafði keypt og látið lagfæra húsið i þessu skyni, en það var ibúðarhús Jóns Finsens fjórðungslæknis. Eggert John- sen fjórðungslæknir hafði reist húsið árið 1836. Sjúkrahúsið var rekið þarna til ársloka 1898, en þá var byggt sjúkrahús i Eyrarlandsbrekku, Spitalastig 11. Gamla sjúkrahúsið hefur siðan verið ibúðarhús i einka- eign. (Aðalstræti 14) Hér er svipmynd úr Hafnar- stræti á Akureyri um 1910. Hið gamla og gróna fyrirtæki i miðbænum, Braunsverzlun, i forgrunni. Gatan hefur tekið all- miklum stakkaskiptum siðan — og er orðin misstöð verzlunar ogumsvifa. Innar i bænum, á og i grennd Hoepfnersbryggju var áður mikið athafnasvæði. Verzlunarhús Carls Hoepfners er myndin sýnir, var reist árið 1911. Rétt við húsið rennur Búðarlækur, er kemur úr Búðargili. Yfir hann er göngubrú. Sildarsöltun er enn á Hoepfnersbryggju, þegar myndin er tekin. Vaðlaheiði i baksýn. Eftir kaupmannatimann kom kaupfélagsöldin. Kaupfélagið á Akureyri setti á stofn kjörbúð i gamla Hoepfnershúsinu (sjá mynd tekna 1974). Eins og nöfnin Gudmannsminde, Braun og Hoepfner benda til, voru dönsk áhrif lengi rik á Akur- eyri. Ath. í þættinum nr. 102 14. des. er birt mynd af Helga- stöðum i Eyjafirði, en niður féll að sá bær væri fæðingarstaður skáldsystkinanna Kristinar Sigfúsdóttur og Páls Árdals.v Þeim snyrtilega gamla bæ er vel lýst i bókinni „Aldnir hafa orðið” 1975, bls. 74-75. Carl Hoepfners verzlun á Akureyri.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.