Fréttablaðið - 10.11.2005, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
10. nóvember 2005 — 304. tölublað — 5. árgangur
�����
���������
���������
������������ �����
�����������������
��������������������������� ����������������
Nýtt
kortatím
abil
í BTTÓMAS R. EINARSSON
Gamlar buxur og
bleikar skyrtur
• tíska • heimili • heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Það var lagið
Hvaða lag myndi
Jón Ásgeir syngja
ef hann gæfi út
Karókí-plötu?
FÓLK 54-55
JÓHANN JÓHANNSSON
Fílharmoníusveitin í Prag
kom að góðum notum
Ný íslensk mynd frumsýnd um jólin
FÓLK 66
VEÐRIÐ Í DAG
Elskar mat og
ferðalög
Áslaug Snorradóttir notar
mikið af ferskum krydd-
jurtum í matargerð
og sleppir öllu
salti.
MATUR 52
VÍÐAST RIGNING EÐA skúrir í
dag. Dregur úr vætu syðra þegar líður á
daginn. Rigning eða slydda norðan-
lands í kvöld. Hiti 3-6 stig í dag en
kólnar nokkuð í kvöld. VEÐUR 38
Leikhús í álögum
„Fjárveitingarvaldið virðist ekki gera
sér fulla grein fyrir því, að blómleg
menning borgar sig, þótt hún þurfi
meðgjöf,“ segir Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 30
63%
39%
Innkaupastjórar
heimilanna kjósa
Fréttablaðið!
*Lestur á fimmtudegi samkvæmt
fjölmiðlakönnun Gallup í september 2005.
LESTUR MEÐAL KVENNA 20-40 ÁRA
Grindavík borgar ekki krónu
Knattspyrnudeild Grindavíkur ber
engan kostnað af komu Jóhanns Þór-
hallsonar til félagsins eða veru hans
hjá því næstu ár. Laun hans eru greidd
af útgerðarfyrirtækinu Stakkavör.
ÍÞRÓTTIR 78
HJÁLMAR JÓNSSON DÓMKIRKJUPRESTUR
Hann segir velferðarkerfið öryggisnet sem
ekki geti komið í stað náungakærleiks.
DAUÐSFÖLL „Þetta er harmleikur.
Við hljótum að hugsa til ýmissa
sem eru einir. Þessi einmana-
leiki er löngu kominn til sögunn-
ar þegar þetta gerist,“ segir séra
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest-
ur. Um síðustu helgi fundust tvær
konur látnar á heimilum sínum í
Reykjavík.
Önnur þeirra hafði verið látin í
allt að þrjár vikur og hin í að min-
nsta kosti tíu daga áður en þær
fundust. Þær voru 78 ára og 61 árs
og bjuggu báðar einar í fjölbýlis-
húsum. Í báðum tilvikum var það
nálykt sem vakti undrun og eftir-
grennslan. Hjálmar telur að nú sé
hægt að spyrja sig hvort viðhorf
fólks til náunga síns hafi breyst.
„Þá þurfum við líka að vera á verði
gagnvart því,“ segir Hjálmar.
Aðstandandi eldri konunnar
segir að þegar fólk er orðið full-
orðið og veikt þá eigi ekki að hlus-
ta á það þó að það vilji ekki að haft
sé eftirlit með því. Konan hafði
ekki viljað eiga samskipti við fjö-
skyldu sína um árabil.
„Ég held að það hljóti allir að
finna til ábyrgðar sinnar þegar
fréttir berast af svona atburðum.
Það hljóta allir að finna til óþæg-
inda innra með sér. Það er ekki
eðlilegur maður sem ekki tekur
það nærri sér þegar svona gerist,“
segir séra Hjálmar. Hann segir að
hversu vel sem hægt sé að útbúa
velferðarkerfið þá taki það aldrei
alfarið við hlutverki náungakær-
leiksins. „Við eigum að gæta bræ-
ðra okkar.“
Lögregluyfirvöld treysta sér
ekki til þess að leggja mat á hvort
um aukningu af tilfellum sem
þessum sé að ræða, jafnvel þótt
stutt sé síðan samskonar atvik
komst í hámæli.
Í lok september var meðal ann-
ars greint frá máli Franz Stavars-
sonar en hann lá örendur í íbúð
sinni í tvær vikur áður en hann
fannst. - saj
Tvær konur fundust látnar
Tvær eldri konur fundust látnar á heimilum sínum í Reykjavík um síðustu helgi. Önnur hafði verið látin í
tíu daga en hin í þrjár vikur. Dómkirkjuprestur segir að það hljóti allir að finna til ábyrgðar sinnar þegar
svona gerist. Hann spyr hvort viðhorf til náungans hafi breyst og segir að allir hljóti að finna til.ábyrgðar.
BRETLAND Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, varð fyrir miklu
áfalli í gær þegar neðri deild
breska þingsins felldi frumvarp
ríkisstjórnarinnar um varnir gegn
hryðjuverkum. Þetta er í fyrsta
sinn sem stjórnarfrumvarp er fellt
í forsætisráðherratíð hans en þó er
ekki talið að hann þurfi að segja af
sér vegna málsins.
Í frumvarpinu var gert ráð fyrir
að lögregla gæti haldið grunuðum
hermdarverkamönnum í allt að
níutíu daga án þess að birta þeim
ákæru. Við það gátu 49 þingmenn
Verkamannaflokksins ekki fellt
sig við og því greiddu 322 þing-
menn atkvæði gegn frumvarpinu
en 291 studdi það.
Ekki er talið að Blair verði
knúinn til afsagnar vegna
ósigursins í gær en staða hans
hefur þó veikst mikið. Michael
Howard, leiðtogi íhaldsmanna,
sagði að Blair væri hollast að
segja af sér. Blair var að vonum
ósáttur við lyktir málsins en sagði
að betra væri að „breyta rétt og
tapa heldur en að gera það sem
rangt er og sigra.“ - shg
Hryðjuverkafrumvarpið fellt:
Blair hvattur
til afsagnar
VÖRÐUR VIÐ WESTMINSTER Ströng öryggisgæsla var að venju við breska þingið í gærkvöld þegar atkvæðagreiðslan um hryðjuverkafrum-
varpið fór fram. Þrátt fyrir málamiðlanir stjórnarinnar voru of margir þingmenn Verkamannaflokksins því andsnúnir og því fór sem fór.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLA Kona vopnuð byssu
reyndi að ræna leigubílstjóra við
Grensásveg skömmu fyrir klukk-
an átta í gærkvöld. Leigubílstjór-
inn náði að yfirbuga konuna, sem
hann telur vera rúmlega þrítuga,
og hélt henni þar til lögreglan
kom og handtók hana.
„Ég tók konuna upp í bílinn
fyrir utan Nordica hótel,“ segir
leigubílstjórinn. „Hún bað mig
að keyra sig að sólbaðsstofu við
Grensásveg og þegar við komum
þangað bað hún mig að leggja
bílnum á bílaplaninu. Þá spyr hún
hvort ég eigi einhverja skipti-
mynt. Ég játaði því. Þá spurði hún
hvort hún mætti ekki gera mér
einhvern kynferðislegan greiða í
skiptum fyrir peninga. Ég harð-
neitaði því.“
Leigubílstjórinn segir að eftir
að hann hafi neitað hafi hún
skyndilega breytt um tón og sagt
að þetta væri vopnað rán.
„Hún hafði aðra höndina allan
tímann í vasanum og skyndilega
sá ég glytta í byssu. Ósjálfrátt tók
ég í höndina á henni og náði af
henni byssunni. Ég hringdi strax
í lögregluna en hélt konunni í bíln-
um. Eftir tuttugu mínútur komu
nokkrir lögreglubílar og sérsveit-
armenn. Í kallkerfi var konan
beðin um að stíga út og leggjast
á jörðina. Því næst var hún hand-
tekin.“
Leigubílstjórinn segist hafa
orðið reiður því á meðan hann
hafi beðið eftir lögreglunni hafi
þau rætt saman. Hún hafði verið
gráti næst, sagst eiga son og þau
ættu mjög erfitt.
„Ég lofaði henni að það yrðu
engin læti. Ég var með lögregluna
í símanum allan tímann þannig
að hún vissi hvað fór okkar á
milli.“ - th
Sérsveitin kölluð út þegar kona reyndi að ræna leigubílstjóra við Grensásveg:
Beindi byssu að bílstjóranum