Fréttablaðið - 10.11.2005, Page 2
2 10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR
������
�����������
������������
�������������������
�������������������
���������������������
����������������
��������������������
� �����������������������������������
�������������������������
���������������
����������
METSÖLULISTI
EYMUNDSSON
barnabækur / 9. nóv
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
20042003200220012000199919981997199619951994199319921991
4.819
4.400 4.458 4.588
4.731
4.853
4.645
4.167
3.942 3.702
4.559
5.012 5.357 5.430
7.275
6.403 6.233 6.320
6.408
6.429 6.044
5.333
4.878
4.362
5.036
5.529 5.430
5.012
1,06%
1,22%
0,55%
0,66%
0,61%
Á FÖSTU VERÐLAGI MIÐAÐ VIÐ VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS
HLUTFALL AF VERGRI LANDSFRAMLEIÐSLU
Á VERÐLAGI HVERS ÁRS
GREIÐSLUR RÍKISINS VEGNA BARNABÓTA 1991 - 2004
SPURNING DAGSINS
Steingrímur, ertu ekki enn
á barnsaldri á mælikvarða
framsóknarmanna?
„Nei, samkvæmt þeim mælikvarða og
öllum öðrum er ég á besta aldri.“
Steingrímur Ólafsson, upplýsingafulltrúi
forsætisráðuneytisins, varð fertugur í gær.
STJÓRNMÁL Barnabætur hafa lækk-
að um helming sem hlutfall af lands-
framleiðslu frá árinu 1991. Þær hafa
einnig lækkað í krónum talið á föstu
verðlagi ársins 2004, úr tæpum 7,3
milljörðum króna í liðlega 5,4 millj-
arða. Þetta kemur fram í skriflegu
svari fjármálaráðherra við fyrir-
spurn Ögmundar Jónassonar, þing-
manns vinstri grænna.
Ögmundur spurði um framlag
ríkissjóðs til barnabóta og barna-
bótaauka frá árinu 1991. Hann
segir að upplýsingarnar séu slá-
andi. „Þetta eru sláandi tölur ekki
síst í ljósi yfirlýsinga sem stjórnar-
flokkarnir, einkum Framsóknar-
flokkurinn, hafa gefið fyrir hverjar
kosningar í stjórnarsamstarfi sínu
um að stórauka framlag til barna-
bóta. Þegar þessar tölur eru skoð-
aðar kemur hins vegar í ljós að frá
því að þessir flokkar hófu samstarf
hafa barnabætur dregist saman
á föstu verðlagi. Þetta á við hvort
sem litið er til krónutölunnar eða
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu.“
Landsframleiðslan hefur aukist
mjög frá árinu 1991. Það ár námu
barnabæturnar 1,22 prósentum
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu. Þetta hlutfall var komið
niður í 0,6 prósent árið 2004. Sam-
kvæmt opinberum göngum hefur
frjósemi kvenna og fæðingartíðni
ekki breyst mikið á umræddu tíma-
bili og heldur aukist á allra síðustu
árum.
„Hvort sem litið er á krónu töluna
á föstu verðlagi eða sem hlutfall af
landsframleiðslu hafa þessir flokk-
ar fallið á því prófi að standa við
gefin fyrirheit fyrir kosningar,“
segir Ögmundur Jónasson.
Í frumvarpi til fjárlaga kemur
fram að ráðgert er að verja alls 5,6
milljörðum króna á þessu ári en
6,8 milljörðum króna á því næsta í
barnabætur. johannh@frettabladid.is
Barnabætur lækka
um tvo milljarða
Fram kemur í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Ögmundar Jónassonar,
þingmanns vinstri grænna, að opinber útgjöld til barnabóta hafi lækkað frá
árinu 1991. Ögmundur segir stjórnina ekki hafa staðið við gefin fyrirheit.
MENNTAMÁL Alls var 119 einstakl-
ingum vísað frá framhaldsskólum
í haust, en 306 voru á biðlistum.
Eftir leiðréttingar, meðal annars
á tvíbókunum, reyndust 115 nem-
endur hafa fengið skólavist en
119 nemendum var vísað frá.
Þetta kom fram í svari mennta-
málaráðherra við fyrirspurn
Björgvins G. Sigurðssonar, þing-
manns Samfylkingarinnar.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir sagði að flestir þeirra sem
vísað var frá hefðu sótt um skóla-
vist eftir hlé á námi. Aðrir hefðu
verið að skipta um skóla. Hún
upplýsti einnig að alls hefðu um
3.400 nemendur hafið nám eftir
hlé og fengið skólavist að frátöld-
um þeim 119 sem vísað var frá.
Björgvin G. Sigurðsson sagði
að eitthvað hlyti að vera að
menntakerfi sem vísaði frá nem-
endum sem vildu hefja nám eftir
að hafa gert hlé á því. Hann full-
yrti að ef framhaldsskólastigið
væri rekið af sveitarfélögunum
væri ástandið ekki með umrædd-
um hætti.
Menntamálaráðherra sagði
að aðeins 0,6 prósentum heildar-
fjölda nemenda hefði verið vísað
frá skóla.
Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri
grænum, sagði töluna grunsam-
lega háa. Allir ættu að fá vist. - jh
Liðlega 300 framhaldsskólanemar voru á biðlistum eftir skólavist í haust:
119 nemendum var vísað frá
ATVINNUMÁL Skrifað verður í dag
undir samninga um rekstur pappa-
brettaverksmiðju í Mývatnssveit,
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins.
Ríkisstjórnin hafði heimilað
Nýsköpunarsjóði að kaupa hlutafé
í félaginu Grænum lausnum sem
reka mun verksmiðjuna. Starf-
semin mun verða í húsnæði Kísil-
iðjunnar í Mývatnssveit sem lagði
niður starfsemi sína fyrir rúmu
ári síðan. Þá var 46 starfsmönn-
um sagt upp en hluti þeirra fékk
fljótlega aftur vinnu.
Verksmiðjan mun framleiða
vörubretti úr endurunnum papp-
ír. - jse
Atvinnumál á Norðausturlandi:
Ný verksmiðja
í Mývatnssveit
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Menntamálaráðherra segir að hlutfall nema,
sem vísað var frá skólum, hafi aðeins verið
0,6 prósent af heildinni.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
FANGAR Hafin er rannsókn á því
innan raða bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA hver kunni að hafa
lekið upplýsingum til fjölmiðla um
að hún reki leynifangelsi erlendis.
Á fréttavef breska útvarpsins BBC
er þetta haft eftir ónafngreindum
embættismönnum í Washington.
Dagblaðið The Washington
Post greindi frá því í síðustu viku
að það hefði heimildir fyrir því
að CIA ræki slík fangelsi meðal
annars í ónefndum Austur-Evr-
ópulöndum. Fulltrúar CIA og
Bandaríkjastjórnar hafa hvorki
viljað staðfesta né hrekja ásakan-
irnar. Að sögn fréttaritara BBC
vestra hefur þessi þögn ráða-
manna ýtt undir vangaveltur um
hin meintu leynifangelsi. ■
CIA-fangamálið:
Rannsókn sögð
hafin á leka
LOS ANGELES, AP Heldur hefur hall-
að undan fæti hjá Arnold Schwarz-
enegger, ríkisstjóra Kaliforníu,
en í fyrradag felldu íbúar ríkis-
ins allar fjórar tillögur hans um
úrbætur í ríkisrekstri í sérstakri
atkvæðagreiðslu.
Tillögur ríkisstjórans fólu í
sér að ríkisútgjöld yrðu dregin
verulega saman, sýslumörkum
breytt, ráðningarfyrirkomulag
kennara yrði með öðrum hætti og
að verkalýðsfélögum yrði bannað
að nota félagsgjöld í pólitískum
tilgangi.
Schwarzenegger ávarpaði
stuðningsmenn sína að lokinni
atkvæðagreiðslunni og sagði
engan bilbug á sér að finna. ■
Schwarzenegger í öldudal:
Vinsældirnar
hafa hrapað
JÁTAR SIG EKKI SIGRAÐAN Ríkisstjórinn
viðurkenndi þó að honum hefði ekki tekist
nægilega vel að sannfæra Kaliforníubúa
um ágæti tillagna sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
CONDOLEEZZA RICE neitar að tjá sig um
ásakanirnar.
SVÍÞJÓÐ, AP Prestur í sænskum
hvítasunnusöfnuði varði fyrir
Hæstarétti Svíþjóðar í gær full-
yrðingar sínar um að samkyn-
hneigð væri „sem krabbameins-
æxli á þjóðarlíkamanum“.
Presturinn, Åke Green, flutti
stólræðu fyrir tveimur árum þar
sem hann lét þessi ummæli falla,
en fyrir þau var hann kærður
fyrir brot á lögum sem banna
hatursáróður. Árið 2003 var þeim
breytt þannig að þau næðu líka
yfir slíkan áróður gegn samkyn-
hneigðum. Málið þykir reyna á
mörk tjáningarfrelsis í Svíþjóð.
Green var dæmdur sekur í
héraðsdómi en áfrýjunardómstóll
hnekkti þeim dómi. Ríkissaksókn-
ari áfrýjaði málinu þá til Hæsta-
réttar. Bein útsending var frá
réttarhaldinu í gær, sem er mjög
óvenjulegt í Svíþjóð.
Green sagði í vitnisburði sínum
að í stólræðunni hefði hann viljað
vara homma við því að lífsstíll
þeirra myndi leiða til „eilífs skiln-
aðar“ við Guð. „Sofi tveir karl-
menn hvor hjá öðrum, eða geri
tvær konur það, er það ónáttúra,
rétt eins og barnagirnd,“ tjáði
hann réttinum.
Málið hefur vakið alþjóðlega
athygli. Talsmenn trúarsamtaka
segja sakfellingu jafngilda ógn
við tjáningar- og trúfrelsi. Aðrir
segja að sýkna myndi opna allar
gáttir fyrir svæsnari árásum gegn
gyðingum, múslimum og homm-
um af hálfu hægriöfgamanna. - aa
Sænskur prestur fyrir rétti fyrir hommahatursræðu:
Reynir á mörk tjáningarfrelsis
ÅKE GREEN Fjölmiðlafólk sækir að prestinum fyrir utan Hæstarétt í Stokkhólmi í gær.
Borðanum kom stuðningsfólk hans upp. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skaut aðstoðarskólastjórann
Nemandi í Campbell-skólanum í
Jacksboro í Tennessee skaut aðstoðar-
skólastjóra skólans til bana í fyrradag.
Nemandinn, sem er fimmtán ára
drengur, hafði verið kallaður inn á skrif-
stofu skólastjóra vegna orðróms um að
hann gengi um vopnaður. Drengurinn
brást ókvæða við ásökununum og dró
upp skammbyssu. Auk þess að myrða
aðstoðarskólastjórann særði hann
annan starfsmann skólans lífshættulega.
BANDARÍKIN