Fréttablaðið - 10.11.2005, Side 46
[ ]
Göran Kristófer ætlar að
hjálpa Íslendingum að hlaða
batteríin og kenna þeim að
slaka á.
Göran Kristófer er yfirþjálfari
á Nordica Spa. Hann er ættaður
frá Serbíu en hefur verið búsett-
ur hérlendis síðan 1989 og unnið
þarft starf að heilsuræktarmálum
Íslendinga. Nú hefur hann brydd-
að upp á nýjung í heilsuræktar-
málum sem hefur þegar vakið
mikla athygli og áhuga.
„Ég hef staðið fyrir námskeiðum
um heilsurækt, hvernig á að verða
sterkari, heilbrigðari og orkumeiri
og koma sér upp hollari lífshátt-
um,“ segir Göran þegar hann er
spurður um hvað hvatti hann til
nýjunga. „Fólk hefur sýnt þess-
um námskeiðum mikinn áhuga og
þess vegna langaði mig til að prófa
að útfæra hugmyndina aðeins og
standa fyrir lífrænni heilsuhelgi.
Hugmyndin er að fara með fólk á
föstudagseftirmiðdegi á hótel til-
tölulega skammt fyrir utan bæinn
þar sem verður ekkert sjónvarp,
bannað að svara í síma, eingöngu
lífrænt ræktaður matur á boðstól-
um en mjög góður samt og svo
fyrirlestrar og fjölbreytt líkams-
þjálfun, hugleiðsla, jóga og göngu-
ferðir.“ Með Göran verða tveir
aðrir kennarar en í hópnum eiga
ekki að vera fleiri en 15 manns.
Göran lofar því að fólk finni mun
á sér eftir einn sólarhring. „Ég hef
haft þessa hugmynd í langan tíma
en ekki látið verða af því að fram-
kvæma hana fyrr en núna. Og ekki
seinna vænna þar sem hraðinn í
samfélaginu verður alltaf meiri og
meiri og Íslendingar alltaf stress-
aðri og stressaðri.“ Fyrsta nám-
skeiðið hefst 17. nóvember og það
næsta fyrstu helgina í desember.
Hægt er að fá upplýsingar í síma
847 2411. Fólk kemur heim aftur á
sunnudegi en Göran sleppir ekki
hendinni af námskeiðsförum alveg
strax. „Allir fá með sér fjögurra
vikna matar og æfingaáætlun. Ég
vona að fólk nái að hlaða batter-
íin og slaka á.“ Og það er hægt að
hugsa sér margt vitlausara í miðju
jólastressinu en lífræna heilsu-
helgi utan við bæinn. ■
Lífræn heilsuhelgi
fyrir utan bæinn
Tvö ný krabbameinsfélög taka
til starfa á Vesturlandi.
Tvö krabbameinsfélög hafa tekið til
starfa á ný eftir langt hlé. Krabba-
meinsfélag Snæfellsness var stofnað
í lok september og er formaður þess
Sigríður Herdís Pálsdóttir. Krabba-
meinsfélag starfaði á Snæfellsnesi
frá árinu 1969 í rúman áratug og
hefur starfsemin nú verið tekin upp
að nýju. Starfssvæði félagsins er
allt Snæfellsnes. Um miðjan október
var svo stofnað Krabbameinsfélag
Breiðfirðinga og er formaður þess
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.
Starfssvæði félagsins er Dalasýsla
og Reykhólahreppur.
Sunnan við þessi félög eru virk
krabbameinsfélög í Borgarnesi og á
Akranesi og norðan við þau er ann-
ars vegar félag í Vesturbyggð og á
Tálknafirði og hins vegar Krabba-
meinsfélagið Sigurvon, sem nær yfir
norðanverða Vestfirði og Strandir.
Krabba-
meinsfélög
á Vesturlandi
Göran langar að hjálpa Íslendingum að losa um streitu og hlaða batteríin.
Frí heimsending • Pöntunarsími: 554-6999
www.jumbo.is
100% hreinn fyrir þig
smoothie ávaxtadrykkur
úr pressuðum ávöxtum
arka • Sími 899 2363
Gefið konunni góða gjöf sem hressir og gleður hana.
Áhrifarík andlitsmeðferð sem gefur geislandi útlit.
Árangur strax ! Betri en bótox !
Afsláttur á 5-10 tíma kortum í nóv.
G J A F A B R É F
Snyrtisetrið Húðfegrunarstofa
s. 533 3100 Domus Medica, inngangur frá Snorrabraut
JÓLIN KOMA !Snyrtisetrið ehf.
Við mælum
blóðfitu
Pantaðu tíma
í Lágmúla í síma 533 2308
Smáratorgi í síma 564 5600
ÁRLEGA ER BOÐIÐ UPP Á FLENSU-
SPRAUTUR SEM HJÁLPA LÍKAMANUM
VIÐ AÐ VINNA GEGN FLENSUSÝK-
INGUM SEM BERAST Í HANN. NÝ
RANNSÓKN BENDIR HINS VEGAR TIL
AÐ STRESSVALDANDI ATBURÐIR GETI
HAFT ÁHRIF Á VIRKNI BÆÐI ÓNÆM-
ISKERFIS LÍKAMANS OG FLENSU-
SPRAUTUNNAR.
Rannsakendur í Birmingham-háskóla í
Englandi komust að þeirri niðurstöðu
að stressvaldandi atburðir í lífi fólks
hefðu áhrif á viðbrögð ónæmiskerfis-
ins við flensusprautu.
180 einstaklingar eldri en 65 ára tóku
þátt í rannsókninni. Blóðsýni var tekið
bæði fyrir og eftir sprautuna og var
magn náttúrulegs mótefnis líkamans
mælt. Hærra magn af náttúrulegu
mótefni líkamans gerir hann hæfari til
að berjast við sýkingar og sjúkdóma.
Meðal þess sem kemur fram í rann-
sókninni er að hamingjusamlega gift
fólk hafði mun meira magn mótefnis
í líkamanum en þeir sem voru minna
ánægðir í hjónabandi. Þeir sem
höfðu orðið fyrir ástvinamissi ári fyrir
bólusetningu höfðu voru veikari fyrir
flensu en þeir sem höfðu ekki gengið
í gegnum slíkt áfall. Rannsóknin
sýnir að fráskildir, ekklar, einstæðir
og aðrir sem hafa misst ástvini eru
líklegri til að fá flensu og því sérstak-
lega mikilvægt fyrir þennan hóp að
fá flensusprautu.
John Moore-Gillion, forseti bresku
lungnasamtakanna, segir marga þætti
hafa áhrif á ónæmiskerfið og að rann-
sóknin sýni að hugarástand sé einn
þessara þátta og að nauðsynlegt sé að
skilja hvernig hugur og líkami hafa
áhrif á hvort annað þegar kemur að
heilsu og sjúkdómum.
rannsókn }
Stress eykur
líkur á flensu
er mikilvægur fyrir heilsuna. Það er um að gera að fara
snemma í rúmið að minnsta kosti nokkur kvöld í viku því
langvarandi svefnleysi getur komið niður á heilsunni.
Svefn