Fréttablaðið - 10.11.2005, Síða 56

Fréttablaðið - 10.11.2005, Síða 56
Umsjón: nánar á visir.is MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.691 Fjöldi viðskipta: 248 Velta: 1.227 milljónir Tölur miðast við kl. 15:43 +0,34% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... Stjórn Fiskeldis Eyjafjarðar hf. hefur nýtt sér heimild til hækkunar á hlutafé félagsins og er skráð hlutafé nú kr. 301.208.256. Hlutafé var áður kr. 169.608.244. Eimskip, dótturfélag Avion Group, hefur fest kaup á stórflutningaskipi sem ber nafnið Laxfoss. Skipið er sérhæft flutningaskip til flutninga með fóðurvörur og aðra stórflutninga og verður í flutn- ingum milli Íslands og Evrópu. Logan Kruger hefur tekið við stöðu forstjóra Century Aluminium sem á Norðurál í Hvalfirði. Craig A. Davis, fráfarandi forstjóri, verður áfram stjórnarformaður þess. Kruger er menntaður námaverkfræðingur sem hefur áratuga reynslu af rekstri málmfyrirtækja. 10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR Actavis 43,40 +0,00% ... Bakkavör 44,80 +0,50% ... FL Group 14,10 +0,70% ... Flaga 3,90 +1,80% ... HB Grandi 9,30 +0,00% ... Íslandsbanki 15,30 +0,70% ... Jarðboranir 22,10 -0,90% ... KB banki 595,00 +0,30% ... Kögun 55,50 +1,80% ... Landsbankinn 22,80 +0,00% ... Marel 64,00 +1,60% ... SÍF 4,38 +0,90% ... Straumur-Burðarás 14,10 +0,70% ... Össur 97,50 -1,50% Kögun +1,84% Flaga +1,83% Marel +1,59% Össur -1,52% Jarðboranir -0,90% Dagsbrún -0,82% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Kögun hefur fest kaup á 67 prósentum hlutafjár í norska hug- búnaðarfyrirtækinu Hands ASA, sem er skráð í norsku kauphöll- inni, og leggur fram yfirtökutil- boð til annarra hluthafa. Heildar- kaupverðið er 1,6 milljarðar króna. Hands sérhæfir sig í viðskipta- lausnum og er með um 35-40 pró- senta markaðshlutdeild á sviði Microsoft Business Solutions lausna. Gangi yfirtakan eftir þá hefur Kögun ráðandi stöðu á norska markaðnum. Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar, segir að kaupin eigi sér nokkurn aðdraganda en Kögun hóf að þreifa fyrir sér í maí. Þá hafi ekki verið áhugi hjá stærstu hluthöfunum. Hands hef- ur stækkað nokkuð síðan með kaupum á tveimur félögum. „Við fáum því í raun þrjú fyrirtæki í einum pakka. Biðin borgaði sig.“ Velta Hands, sem rekur skrif- stofur í Osló, Björgvin, Stafangri og Sandefjord, er áætluð um 1,3 milljarðar króna á þessu ári en því er spáð að hún aukist um hálf- an milljarð króna á næsta ári. Stjórnendur Kögunar telja að markaðurinn sé mjög dreifður og vilja vera meðal þeirra fyrstu að steypa saman fyrirtækjum undir hjálminn sinn. „Við erum búnir að marka þá stefnu að sækja út á við og verða stærstir í hverju landi í viðskiptahugbúnaðarlausnum, sérstaklega frá Microsoft. Við sjá- um fram á mikla samþjöppun í greininni á næstu árum. Þessi fyr- irtæki sem selja viðskiptahugbún- aðarlausnir eru yfirleitt mjög smá og dreifð,“ segir Gunnlaugur. „Það eru nokkur fyrirtæki sem eru byrjuð að því sama t.d. danska fyrirtækið Columbus IT og tvö bandarísk fyrirtæki. Við erum klárlega fjórði aðilinn á markaði með Microsoft-viðskiptahugbún- að á heimsvísu.“ Meðal seljenda eru Telenor og þekktir einstaklingar. Stærstu hluthafarnir gerðu Kögun móttil- boð í gær sem félagið samþykkti. Kögun greiðir um 23 prósenta yfirverð fyrir bréfin. Opin kerfi, dótturfélag Kögun- ar, rekur fyrirtæki í Svíþjóð og Danmörku sem selja vélbúnað og þjónustu. Gunnlaugur segir að Kögun horfi ekki sérstaklega til samlegðar við þau fyrirtæki. Kögun á vel fyrir þessum kaupum, enda liggur það með tvo milljarða í handbæru fé að sögn Gunnlaugs. eggert@frettabladid.is KÖGUN KAUPIR HANDS Í NOREGI Gunnlaugur M. Sigmundsson, forstjóri Kögunar, segir að fyrirtækið verði í hópi þeirra fjögurra stærstu á sviði Microsoft-viðskiptahugbúnaðarlausna á heimsvísu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kögun sækir inn í Noreg Kögun tryggir sér meirihluta í stærsta fyrirtæki Noregs á svi›i vi›skiptahug- búna›arlausna. Ver›ur eitt af fjórum stærstu fyrirtækjum heims á svi›i Microsoft-hugbúna›arlausna. KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ] Dóra Axelsdóttir, sérfræðingur hjá eignastýringu og verðbréfa- þjónustu Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON), segir að viðskiptavinir sem ávaxti viðbót- arlífeyrissparnað sinn hjá SPRON borgi einungis kostnað sem falli til vegna fjárfestinga í verðbréf- um og verðbréfasjóðum. Annar kostnaður falli ekki á þá, eins og umsýslugjöld vegna fjárfestinga- stefnu. Þessu sé ólíkt farið hjá við- skiptabönkunum þar sem bæði eru tekin umsýslugjöld og gjöld vegna fjárfestinga. Dóra segir að samanburður á forsíðu Markaðarins í gær, þar sem umsýslukostnaður viðskipta- bankanna af viðbótarlífeyris- sparnaði var birtur, hafi af þess- um sökum verið villandi. Í tölum KB banka, Landsbankans og Ís- landsbanka hafi ekki verið tekið tillit til kostnaðar vegna kaupa á verðbréfum og í verðbréfasjóð- um. Því hafi samanburðurinn verið SPRON óhagstæður. Tómas N. Möller hjá Lands- bankanum, Hafliði Kristjánsson hjá KB banka og Kristjana Sigurð- ardóttir hjá Íslandsbanka stað- festa öll að í tölum á forsíðu Mark- aðarins í gær hafi ekki verið tekið tillit til kostnaðar sem fellur til vegna fjárfestinganna sjálfra. Þau gefi hann ekki upp eins og SPRON. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins getur kostnaður vegna viðskipta með verðbréf og kaupa í verðbréfasjóða numið einu til tveim prósentum. Á endan- um skipti samt raunávöxtun mestu máli fyrir viðskiptavinina. Hún fæst eftir að búið er að taka tillit til kostnaðar og verðbólgu. Því sé brýnt fyrir stjórnendur þessara sjóða að halda kostnaði í lágmarki. – bg Engin ums‡slugjöld hjá SPRON UMSÝSLUGJÖLD VEGNA VIÐBÓTARLÍFEYRIS- SPARNAÐAR* Alm. lífeyrissjóðurinn (Íslandsbanki) 0,18% KB banki 0,3-0,6% Landsbanki 0,39% SPRON 0% Við þessi gjöld viðskiptavina bætist kostnaður sem fellur til við einstakar fjárfestingar. 56-57 (36-37) Viðskipti 9.11.2005 16:24 Page 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.