Fréttablaðið - 10.11.2005, Side 75

Fréttablaðið - 10.11.2005, Side 75
28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR 75 Jón Ásgeir Jóhannesson / Danska lagið Fáir ef einhverjir hafa yfir jafn náttúrulegum poppstjörnuhæfileik- um og Jón Ásgeir. Ef hann hefði ekki orðið forstjóri Baugs væri hann sennilega einhver ástsælasta poppstjarna þjóðarinnar. Hann er hreinlega fæddur í hlutverkið og hárgreiðsla hans jafnt sem val á fötum gefur til kynna að þar fari gamalgróinn poppari frekar en for- stjóri stórfyrirtækis. Það vafðist ekki fyrir honum að velja sér lag því það kom strax eftir að Magasin De Nord féll í hendur Baugs. Dans- ka lagið með Bítlavinafélaginu var efst á lista. Jón Ásgeir hefur komið sér svo vel fyrir í London að sjálfur George Martin útsetti lagið og það var tekið upp í Abbey Road hljóð- verinu. Illugi Gunnarsson / Án þín Illugi Gunnarsson hefur ekki verið samur eftir að Davíð Oddsson hvarf úr örmum hans. Þegar hinn óþekkti plötuútgefandi reyndi að fá Illuga til liðs við sig var hann tregur til og ákvað að sofa á tilboðinu. Eftir að hafa legið undir feldi í nokkra daga gaf hann vilyrði sitt. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að Illugi er mikill hæfileikamaður hvað tónlist varðar og lagið sem hann flytur er svo sannarlega við hæfi. Án þín með Trúbrot hefur aldrei hljómað jafn sannfærandi og í flutningi Illuga. Allt er svo eymdarlegt án þín hér án þín ei sólin lengur skín hér aleinn ég arka niður að sjó því er þú fórst þá eitthvað í mér dó Og i hans vindu‘er sukkersage og heste-, grise-, og peperkager. Og har du penge saa kan du faa men har du ingen saa kan du gaa. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.