Fréttablaðið - 22.11.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sími: 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember 2005 — 316. tölublað — 5. árgangur
RAGNHEIÐUR GUÐFINNA GUÐNADÓTTIR
Hver er versti sjónvarps-
maður landsins?
Capone stendur fyrir Gullkindinni
FÓLK 38
Hátíska í 101
Það var ekta tískustemn-
ing á Hótel Borg þegar
Ásta Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Kr. Ingvars-
dóttir og Ragna
Fróða sýndu afurðir
sínar fyrir fullu húsi.
FÓLK 28
KOLBRÚN ÝR GUNNARSDÓTTIR
Heldur konum í formi
með hreyfingu og útrás
heilsa • jólin • koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
Grín eða alvara?
Nú er svo komið að þátttaka pólitíkusa
í gríninu öllu saman er orðin svo
mikil að allt er komið í einn graut og
stundum er erfitt að greina hvað eru
fréttir og hvað er skop, segir Valgerður
Bjarnadóttir.
Í DAG 16
SLYS „Ég held ég hafi aldrei misst
meðvitund. Lögreglumennirnir töl-
uðu við mig þar sem ég lá í götunni
eftir áreksturinn. Ég gerði mér ekki
grein fyrir hversu alvarlega ég var
slösuð en ég vissi að yfir mér var
þungt farg. Lögreglumennirnir
sögðu mér síðan að þeir þyrftu að
lyfta bílnum ofan af mér,“ segir
Særún Sveinsdóttir Williams, sem
missti báða fætur, rétt fyrir ofan
hné, í hörmulegu bílslysi í Omaha
í Nebraskaríki í Bandaríkjunum.
Slysið varð á fjölfarinni hraðbraut
snemma morguns fyrir réttri viku.
Slysið varð með þeim hætti að
Særún ók pallbíl, sem hlaðinn var
pokum með haustlaufum, á leið til
vinnu. Hún varð þess skyndilega vör
að pokar höfðu fallið af palli bíls-
ins, þannig að hún afréð að stöðva
hann og kippa pokunum aftur upp á
pallinn. Þegar hún var rétt um það
bil að ljúka verkinu varð hún fyrir
bíl sem kom aðvífandi. Svo ein-
kennilega vildi til að bílstjóri þess
bíls, Kenneth Cooks, er samstarfs-
maður Særúnar hjá flutningafyrir-
tækinu Deffenbaugh.
Cooks steig út til þess að reyna
að aðstoða Særúnu og vísa annarri
umferð frá henni, þar sem Særún lá
á götunni, þegar kona keyrði á kyrr-
stæðan bíl Cooks, með þeim afleið-
ingum að bíllinn rakst á Cooks sem
varð til þess að hann kastaðist um
tuttugu metra og hlaut alvarlega
höfuðáverka. Bíll Cooks endaði svo
á Særúnu þar sem hún lá á götunni.
Særún telur að það hafi verið þá
sem hún missti fæturna. Bílstjóri
þriðja bílsins slapp ómeiddur.
„Ég hef það sæmilegt miðað við
aðstæður,“ segir Særún en hún átti
að fara í skurðaðgerð í gær, eina
af mörgum sem eru fyrirhugaðar.
Síðan tekur við endurhæfing sem
mun vara næstu mánuði.
Særún er einstæð fimm barna
móðir og eru þrjú barnanna búsett
hjá henni. Hún hefur verið búsett í
Omaha frá árinu 1993. - saj
SÆRÚN SVEINSDÓTTIR WILLIAMS Særún
fór í eina af mörgum aðgerðum í gær en
hún missti báða fætur rétt fyrir ofan hné.
Missti báða fæturna
í hörmulegu bílslysi
Særún Sveinsdóttir Williams stórslasaðist í þriggja bíla árekstri á
fjölfarinni hraðbraut í Omaha í Bandaríkjunum. Hún telur sig hafa misst
fæturna þegar bíll vinnufélaga hennar lenti á henni.
YFIRLEITT BJART VEÐUR um
austanvert landið og þurrt. Skúrir og
slydduél annars staðar. Hiti 2-8 stig,
mildast syðst.
Örn kemur sterkari til baka
Örn Arnarson þarf að
öllum líkindum að fara
í hjartaþræðingu. Hann
ætlar sér að koma
sterkari til baka þegar
hann hefur æfingar að
nýju.
SKOÐANAKÖNNUN Geir H. Haarde,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
er sá stjórmálamaður sem mests
trausts nýtur meðal almenn-
ings samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Alls sögðust 22,4
prósent treysta honum best. „Geir
er afskaplega traustur stjórn-
málamaður og sýnir það í störfum
sínum. Því koma þessar niðurstöð-
ur lítið á óvart,“ segir Arnbjörg
Sveinsdóttir, formaður þingflokks
Sjálfstæðisflokksins.
Í öðru sæti yfir þá sem mests
trausts njóta er Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri-grænna.
„Steingrímur hefur oftast nær
komið mjög vel út úr könnunum
sem þessari. Hann nýtur trausts
og hefur gott persónulegt fylgi,“
segir Katrín Jakobsdóttir, vara-
formaður Vinstri-grænna.
Á hæla Steingríms kemur
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar. „Mér
þykir mjög vænt um það traust
sem mér er sýnt og það er merki-
legt að ég hljóti litlu minna traust
en ráðherra sem setið hefur í rík-
isstjórn í meira en tíu ár,“ segir
Ingibjörg um þessar niðurstöður
en 18,6 prósent aðspurðra telja að
henni megi best treysta. Ingibjörg
situr einnig í öðru sæti á lista yfir
þá stjórmálamenn sem minnst
traust er lagt á og nefndu þá 18,5
prósent nafn hennar.
Halldór Ásgrímsson, formað-
ur Framsóknarflokks, er í fjórða
sæti þeirra sem almenningur
treystir en trónir á sama tíma á
toppnum yfir þá sem minnst er
treyst. „Ég held að Halldór sé í
bullandi sókn eins og reyndar
Framsóknarflokkurinn,“ segir
Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins.
- saj/ sjá síðu 6
Íslendingar treysta Geir Haarde best stjórnmálamanna samkvæmt könnun:
Minnst traust til Halldórs BRETLAND Þriðjungur Breta telur
að konur sem verða fyrir nauðgun
geti sjálfum sér um kennt að nokk-
ru eða öllu leyti ef þær hafa daðrað
við árásarmann sinn. Þetta kemur
fram í nýrri könnun Amnesty Inter-
national sem eitt þúsund manns
tóku þátt í. Fjórðungur álítur að
þær konur sem eru ölvaðar eða
klæddar í flegnum fatnaði beri
hluta ábyrgðarinnar.
Yfirsaksóknari nauðgunarmála
í landinu segir í samtali við BBC
að niðurstöðurnar séu sérstakt
áhyggjuefni þar sem kviðdómur
dæmir í slíkum málum. Viðhorfin
sem könnunin endurspeglar rata
því vafalaust inn í réttarsalinn. ■
Bresk skoðanakönnun:
Nauðganir sök
fórnarlamba
ÞÝSKALAND, AP Gerhard Schröder,
fráfarandi kanslari Þýskalands,
tilkynnti í gær að hann hygð-
ist segja af sér þingmennsku og
hætta beinum stjórnmálafskipt-
um, að því er samflokksmenn hans
í þýska Jafnaðarmannaflokkn-
um greindu frá. Angela Merkel,
formaður Kristilega demókrata-
flokksins, verður kjörin eftirmað-
ur Schröders á Sambandsþinginu
í dag og samsteypustjórn flokka
þeirra beggja svarin í embætti.
Schröder stýrði þýsku ríkis-
stjórninni í sjö ár, samsteypu-
stjórn jafnaðarmanna og græn-
ingja. Merkel verður fyrsta konan
og fyrsti Austur-Þjóðverjinn sem
sest í kanslarastólinn.
- aa / sjá síðu 14
Umskipti í Þýskalandi:
Schröder frá og
Merkel kjörin
SCHRÖDER OG MERKEL Schröder hættir á
þingi þegar Merkel tekur við sem kanslari.
MYND/AP
Hélt ræðulausa afmælisveislu
Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingis-
kona er fertug í dag. Hún verður í
Bandaríkjunum á afmælisdaginn.
TÍMAMÓT 20
VINNUMARKAÐUR Að minnsta kosti
7.300 útlendingar starfa hér á landi,
samkvæmt áætlun sem Vinnumála-
stofnun hefur gert. Inni í þessari
tölu eru ekki borgarar hinna Norð-
urlandanna og EES-ríkjanna. Þetta
eru áætlaðar tölur, ekki er vitað
nákvæmlega hversu margir eru
starfandi hér.
Ef tölur yfir veitt atvinnuleyfi
eru skoðaðar kemur í ljós að Pólverj-
ar hafa fengið flest atvinnuleyfi,
eða 2.031, og Kínverjar hafa fengið
næstflest eða 510. Litháar hafa fengi
tæplega 300 atvinnuleyfi, Filippsey-
ingar, Serbar og Svartfellingar, Sló-
vakar og Lettar hafa einnig fengið
mörg atvinnuleyfi. - ghs
Erlendir starfsmenn á Íslandi:
Á áttunda
þúsund
BEÐIÐ EFTIR STRÆTÓ Í LJÓSADÝRÐINNI Ljósadýrðin í miðbæ Reykjavíkur eykur örugglega á biðlund þessara manna sem horfa hér í átt að
strætisvagni í von um að það sé vagninn sem taki þá heim. Þeir sem ekki vilja þreyta biðlundina þeyta hins vegar hjá á sjálfrennireiðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK