Tíminn - 24.10.1976, Síða 7

Tíminn - 24.10.1976, Síða 7
Sunnudagur 24. október 1976 TtMINN 7 MEGINHLUTI islenzku þjóöar- innar vill aö hér á landi viöhald- ist lýöræöislegt stjórnarform. Undir þessu stjórnarformi hefur þjóöin unniö'sina stærstu sigra. Þjóöfélagiö hefur umbreytzt úr örbirgö i velferöarþjóöfélag á tiltöl ulega örstuttum tfma. Þetta á sér staö þrátt fyrir þaö, aö flestir aörir en viö, telja ís- land, vegna haröbýlis, óbyggi- legt land. Sennilega hefur engin þjóö i veröldinni, meiri þörf fyrir lýö- ræði og persónufrelsi en is- lenzka þjóöin. Þaö gerir skap- gerðokkar,saga og uppruni.En hvernig er það, eru menn ekki farnir að taka þetta sem of sjálfsagðan hlut, aö lýöræöi og frelsi fylgi okkur á hverju sem gengur og hvernig sem viö bú- um að þvf? Hefur sagan i öllum löndum heims ekki sýnt, aö lýö- ræði og frelsi hefur aldrei áunn- izt einni eöa neinni þjóö eða við- haldizt, án baráttu viö niöurrifs- öfl pólitfskra ofstækismanna eöa æfintýramanna, sem ekk- ert er heilagt annaö en þeirra eigið ,,ég”? Til þess að lýöræðið i landi okkar viðhaldist og þróist f eöli- legum takt viö tfmann, megum viö ekki láta pólitisk sundrung- aröfl og tætingslið fæla okkur frá öflugu starfi f stjórnmála- flokkunum. Það er grundvallar- atriöi til verndar og eflingar lýöræöinu f landinu. Viss öfl f þjóðfélaginu hafa um langan tfma unnið aö þvi aö sannfæra almenning um aö stjórnmál séu leiðinleg og ó- merkileg og stjórnmálamenn ó- heiðarlegir og hugsi ekki um nema sina eigin hagsmuni og flokka sinna. Segja má aö svona fullyrðingar séu ekki svara- verðar. Til þess eru þær of öfga- fullar. Auðvitað eru menn sem fást við pólitik misjafnir að gæöum. Hvaöa stétt eða starfs- hópar eru það ekki? Af minum kynnum af alþingismönnum um langt árabil tel ég þá að flestu leyti betur gerða en aöra starfs- hópa þjóðfélagsins. Þetta er aö ýmsu leyti mjög eölilegt. Al- þingismenn eru valdir af þjóö- inni sjálfri, og við skulum ætla að hún sé ekki að kjósa sér til forsvars sorann úr þjóöfélaginu. Auk þess er ljóst, aö hin marg- breytilegu viðfangsefni þing- manna og náið samband viö fólkiö i landinu, lif þess og starf hljóta að hafa áhrif á þá til góðs. En hvers vegna er þá rótaö upp öllu þessu moldviðri i sambandi við stjórnmálamenn? Sjálfsagt eru ástæöur margar. Sam- Þráinn Valdimarsson, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins: „H/N NÝJA 8TÉTT vv keppnin er hörð um fylgið. Mig langar að benda á eina ástæöu sem ég tel aö eigi drjúgan þátt i þeim miskunnarlausu sleggju- dómum, sem oft eru viðhaföir um stjórnmálamenn almennt og stjórnmálasamtök. I öllum stjórnmálaflokkum hafa verið einstaklingar og jafnvel hópar manna, sem vegna skaplyndis eöa ofmetnaö- ar og tillitsleysis til allra ann- arra en sjálfra sin, hafa viljað troðast fram fyrir aöra I áhrifa- stööur i flokkum sinum. Þessir ,,ég menn” hljóta sjaldan þann skjótfengna frama, sem þeir telja sig eiga kröfu á. Þeir fyll- ast öfgafullri reiöi á lýðræöis- legri stjórnmálastarfsemi. Þeim finnst hún tefja fyrir þeim skjótfengna frama, sem þeir höfðu ætlað sér. Þessi reiöi bitn- ar ekki siztá þeim aðilum, sem i forystusveit standa hverju sinni og þar er engin miskunn sýnd. Þessir vonsviknu hópar i öll- um flokkum vinna ótrúlega oft saman, beint og óbeint, aö niðurrifsstarfsemi sinni og oft, aö minnsta kosti um stundar- sakir, með allmiklum árangri. En þegar þessir aöilar eiga svo aö fara aö starfa saman, undir sama merki, endurtekur sagan sig og bræöravigin hefjast á ný. Þaö merkilega við menn af þessu tagi er þaö aö svo gjörsneyddir eru þeir sjálfs- gagnrýni, aö þeir telja sig hina einu sönnu lýðræöisunnendur, sem vilji bæta og fegra stjórn- málastarfiö i landinu. Ég held jafnvel, að þarna finnist menn, sem trúa þvi i einlægni aö þeir séu aö vinna þarft verk, enda þótt starf þeirra sé að stærstum hluta fólgið I neikvæöu þrasi um aukaatriði, og að hinu leytinu mannskemmandi rógi og mann- orðsniði, oftast um þá sem sizt skyldi. Menn, sem vegna mann- kosta og almannatrausts sam- herja sinna hafa á lýöræðisleg- an hátt valizt til hinna æöstu trúnaöarstarfa i flokkunum. Málefnaleg gagnrýni er hverjum manni nauðsynleg. Stjórnmálaflokkar og forsvars- menn þeirra hafa aldrei þurft aö liða fyrir það, eftir þvi sem ég þekki, að þeir fengju ekki eöli- legt aðhald frá hinum margvis- legu félagssamtökum innan flokkanna. Er ekki einnig nokkuö ljóst fyrir öllum, sem eitthvað hafa fylgzt með islenzkri pólitik, aö hin harða samkeppni stjórn- málaflokkanna, oft i tvisýnni baráttu i kjördæmunum, um fylgi kjósenda, leiðir af sér, að hver og einn leitar eftir snögg- um bletti, sem hægt er aö nota á andstæðing sinn eöa andstöðu- flokk? Engin starfsemi i landinu er undir annarri eins smásjá og stjórnmálastarfsemi. Engir einstaklingar hafa veriö og eru undir eins haröri gagnrýni og stjórnmálamenn. Viö þessu er ekkertnema gott að segja, meö- an menn gæta velsæmis i gagn- rýni sinni, en þaö er nauösyn- legt ekkert siöur þeim, sem gagnrýna en þeim sem fyrir henni veröa. En hvernig stöndum viö i dag, hvaö þetta snertir? Er þaö nokkur ósanngirni aö segja að við séum komnir langt af réttri leið? Eru ekki dæmin ljóslifandi fyrir okkur? 1 staö heilbrigörar málefnalegrar gagnrýni, bööl- ast menn áfram með allskyns ó- rökstuddum sleggjudómum, lymskulegum rógi, hvar sem þvi er við komiö, dylgjum um „tengsl” stjórnmálamanna við glæpaverk og yfirhylmingu þeirra viö slika iðju. Þaö sem hlýtur aö vekja hvaö mesta furðu þeirra sem um þessi mál hugsa er, að harðast er sótt að þeim stjórnmála- mönnum, sem þekktastir eru fyrir festu og heiöarleika i störf- um sinum. Nægir I þessu sam- bandi að minna á aöförina aö dómsmálaráðherranum. Hvaö vakir fyrir þeim sem þessa iöju stunda? Hvaö getur hún gott af sér leitt? Er hún likleg til þess að ýta undir aö stjórnmálamenn eða aörir leggi sig fram um heiðarleik og samvizkusemi i 'störfum? Eöa er henni ætlaö aö fæla þá menn frá pólitisku starfi, sem hafa andúö á óheiö- arleik og lágkúru? Er ekki kominn timi til þess aö almenningur risi upp gegn þessum ósóma? Sýni I verki aö hann er andvigur óvönduöum skrifum hinnar „nýju stéttar”, sem meö sjálfbirgingshætti hefur sett sig á dómarabekk og dæmir nú i hverju málinu á fæt- ur ööru, áöur en rannsóknar- dómarar hafa aflað sér lág- marksmálsgagna og jafnvel áður en nokkur rannsókn hefur farið fram. Þessi „nýja stétt” I islenzkri blaöamennsku og stjórnmála- starfsemi hefur þvi miöur fram aö þessu getaö leyft sér flest, án þess aö viö þeim sé blakað, eöa þeir þurfi að standa reiknings- skap gjöröa sinna. Þaö er ekki langt siöan, aö saklaus maður var I flestum fjölmiölum út- hrópaður sem banamaöur sonar sins. Ég hefi ekki heyrt, aö nokkur fjölmiöill hafi beðizt af- sökunará þessu framferöi, sem þó hefur skilið eftir djúp sár er seint munu gróa. Það eru þessir piltar, sem þyrftu aö fá aukið aöhald frá almenningsálitinu, enda þótt þeir sjálfir telji sig vendi i þágu réttlætisins. Aö minum dómi er þarna um aö ræöa óvandaða sakamenn. Menn, sem vilja aö dómsstörfin séu flutt út á götuna, þar sem æran er rænd af mönnum eftir geöþótta þeirra orðhvötustu. Ég minntist á þaö i upphafi þessara oröa, að okkur Islend- ingum væri sennilega meira virði en nokkrum öörum að njóta lýðræðis og frelsis. Frelsis til frjálsrar hugsunar, sköpunar og starfs. Ekki til niðurrifs og afskræmingar á flestu sem gert er og gert hefur verið. Það er eitthvað meira en litiö að i upp- eldi þess fóiks, sem telur sig helzt geta öðlazt pólitiskán frama með þvi aö afskræma alla hluti. Ef svo er komið hjá okkur er stutt i þaö, að lýöræö- inu sé hætt og þar meö þvi frelsi sem við njótum. öfgaöflin i þjóöfélaginu munu fagna þvi aö þessi darraöadans haldizt sem lengst. Þetta virkar fyrir þau eins og sjálfmalandi kvörn. Er ekki nauðsynlegt að al- menningur hætti aö láta sér nægja að vera mataður i póli- tik? Heldur taki virkan þátt i pólitisku starfi stjórnmála- flokkanna og kynni sér þannig af eigin reynd störf þeirra og markmið. Þráinn Valdimarsson. BILA- PARTA- SALAN auglýsir Nýkomnir varahlutir í: Buick Volvo Duett Singer Vogue Peugeot404 Fiat 125 Willys VW 1600 BILAPARTASALAN Höfðatúni 10. Simi 1-13-97. Sendum um allt land. I MIDPUNKTI © VIÐSKIPTANNA Vetrarverö i sólar- hring rneð morgunveröi: Eins manns kr. 2.500 2ja manna kr. 4.200 Vetrarverð í viku -meö morgunverði: Eins manns kr. 13.500 2ja manna kr. 22.600 HÓTEL HOF Electrolux Eö Z 325 & Z 305 ryksugurnar eru traust og góð heimilishjálp Vijrumarkaðurinn lif. Armúia 1A — Slmi 8-16-60 / Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræöingar óskast á hinar ýmsu legudeildir Borgarspitalans. Nánari uppiýsingar á skrifstofu forstööukonu i sima 81200. 0 í Reykjavik 21. okt. ’76 k w S T'v Tíminn er . peningar J Auglýsitf . iTimanum \ > * ^ Borgarspitalinn. 0

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.