Tíminn - 24.10.1976, Page 26

Tíminn - 24.10.1976, Page 26
26 TÍMINN Sunnudagur 24. október 1976 KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDA- HORNIÐ Umsjónarmadur Hallddr , Voldimarsson einvörðungu fyrir þá sök að þaö skiptir svo litlu máli i upphafi. Svo sem verða vill þróast sambönd Mille við aðrar mann- verur áfram, án þess hún fái að verulegu leyti ráðið þvi hverja stefnu þau taka. 1 upphafi hafði hún gengið til sambúðar við sambýlismann sinn i þeim til- gangi að hjálpa honum til að vinna bug á þunglyndi, einrænu og óvanalega miklum skorti á sjálfstrausti. Þegar frá líður getur hún þó ekki tekið þeim kröfum, sem hann gerir til hennar, og þvi stendur hún um siðir frammi fyrir þvi, að hjálpin hefur að nokkru haft þveröfug áhrif við það sem ætlunin var. Svo er einnig um önnur sam- bönd, þvi þótt^ hún laðist að mannverum, kemur alltaf eitt- hvað það i ljós sem hrindir henni frá aftur. Það verður ekki annað um kvikmynd þessa sagt en að hún er æði forvitnileg og ánægjulegt til þess að hugsa, að Danir skuli farnir að huga að alvarlegri mál- efnum. Það er raunar ekki að fullu sanngjarnt að segja að þeir hafi alls ekki gert það hingað til, þvi við höfum jú þegar séð eina alvarlega mynd frá þeim, þar sem er myndin Per. Þess verður ekki langt að biða að við fáum að sjá „Violer er blaa”, þvi forstjóri Stjörnubiós gaf þær upplýsingar fyrir helgi að hún yrði tekin til sýninga i nóvembermánuði. Væntanleq í Stiörnubíó: Alvarlegt grín um kynferðis- legar venjur og siðfræði Stjörnubfó mun innan tiðar taka til sýninga kvikmyndina „Violer er blaa”, sem er dönsk að uppruna og hefur vakið tölu- verða athygli þar sem hún hefur farið um lönd. Við höfum á liðnum árum séð bregða fyrir á hvita tjaldinu ótölulegum sýnishornum af kvikmyndaframleiðslu Dana, þannig að sýningar danskrar myndar er i sjálfu sér ekki í frá- sögur færandi. Hins vegar vekur þessi mynd athygli fyrir það að i henni kveður nokkuö við annan tón en i þeim „löndum” hennar sem yfirleitt berast okkur. Hér er ekki um að ræða grin- mynd af þvi tagi sem algengast er í dönskum kvikmyndum, hvorki Dirch Passer húmor né rúmstokksgrin. Hér er raunar ekki um grin að ræða, nema að takmörkuðu leyti, þvi alvaran situr i fyrirrúmi, og jafnvel ekki laust við að i verki þessu gæti nokkuð áhrifa af suma þvi sem nágrannar Dana, Sviar, hafa verið að fást við undanfarin ár. „Violer er blaa” fjallar um einkalif ungrar konu, frétta- manns sjónvarps, og tengsl hennar við aðrar mannverur. Unga konar, Mille, þráir að finna einhvern grundvöll i vin- áttuböndum við aðra, starfi eða ástarlifi, og fjallar myndin að miklu leyti um tilraunir hennar til þess. Mille hefur einkum samgang við fáar mannverur, það er sambýlismann sinn, sem er taugaflak og brýtur oft með af- brýðiskenndum kröfugerðum niður það sem henni hefur tekizt að byggja upp, vinkonu eina, Susanne, sem starfar i nudd- stofu og notar fleira en hend- urnar við starf sitt, auk ann- arra, sem koma minna við sögu. Mille reynir að nota starf sitt til að ná tengslum við umhverfi sitt, meðal annars með þvi að fara að nokkru út fyrir þann ramma sem henni er settur. Hún reynir að leita uppi það fólk, sem miðar lif sitt við eigin langanir og skoðanir, án tillits til þess sem umheimurínn kveö- ur, og reynir að finna hjá þvi stefnumörkun sem hún sjálf gæri tileinkað sér og byggt lif sitt á. Mille reynir einnig að ná tengslum við aðrar mannverur með kynferðislegu móti, bæði karlmennog konur. Hún stofnar til sambanda, sem hvert á fætur öðru vekja með henni vonir um að hún hafi nú fundið það sem leitað var að, en ávallt fylgja vonbrigðin i kjölfarið, þvi að lífsmat og stefna fólksins reyn- ist ekki sú, sem i fyrstu var gefið i skyn. Það sem einna helzt virðist veita fullnægju inn i lif hennar er samband við aðra vinkonu, kynferðislegt, sem þó virðist sársauka og vonbrigðalaust nær KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.