Tíminn - 24.10.1976, Side 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 24. október 1976
Þeim tekst að
vera skemmtilegir
textum og siðan er bætt viö
nokkrum islenzkum lögum eftir
hljómsveitarmenn sjálfa, eink-
um Gunnar Þórðarson, og þá
eru þaö yfir höfuö lög, sem eru
einfaldari en gengur og gerist
hjá Gunnari. Þetta leiöir
óumflýjanlega til þess, aö menn
flokki tónlist Lónli Blil Bojs
undir söluvarning fyrst og
fremst.
En eitt hefur Lónli Blú Bojs þó
tilsins ágætis, og þaö er söngur-
inn. Þaö er ekki hægt aö neita
þvi, aö söngur þeirra fjórmenn-
inga er frábær, hvort heldur er
einsöngur eða röddun. Björgvin
og Engilbert eru án efa meðal
okkar albeztu söngvara, og
einkum viröist þó Björgvin vaxa
við hverja raun.
Þá er heldur ekki hægt aö
halda þvi fram, aö hijóöfæra-
leikur á plötum Lónli Blú sé lé-
legur. Hann er að visu heldur
átakalaus, en smekklegur og
fellur vel aö lögunum.
Þessi þriðja plata Lónli Blú
Bojs er þeirra bezta til þessa,
þótt plöturnar séu allar meira
og minna i svipuöum gæöa-
flokki. Þessi plata hefur þaö
hins vegar fram yfir hinar tvær,
Hljómar (1974) og Lónli Blú
Bojs eru skipaðir sömu
mönnum, þótt tónlist þess-
ara tveggja hijómsveita sé
talsvert ólik.
að lögin eru öllu betri, textarnir
heldur betri en fyrr, og söngur-
inn alveg skinandi.
Af innlendum lögum semur
Gunnar þrjú lög á plötunni,
Björgvin eitt og Rúnar eitt. ölí
þessi lög eru einföld og kemur
lag Björgvins nokkuð á óvart,
en bezta lagið af þessum fimm
er þó lag Gunnars „Allir halda
aðra vera sjálfa sig” við ágætan
texta Ölafs Hauks Simonarson-
ar.
Erlendu lögin eru misjafnari
að gæðum, eins og kannski eðli-
legt er, en nokkur þeirra eru þó
likleg til vinsælda fremur en
þau islenzku s.s. „Fagra litla
diskó dis” „Djús i glas” og „La
Kúba Libra”.
Eitt lag hefur enn ekki verið
minnzt á, en það er lagið
„Laugardagskvöld” hið þekkta
lag Lambert og Fröding við
texta Magnúsar Asgeirssonar, I
einkar athyglisverðri útsetn-
ingu Lónli Blú Bojs. Að minum
dómi er þetta bezta verk Lónli
Blú til þessa.
Lónli Blú Bojs héldu i hring-
ferð um landið i sumar og er
platan tileinkuð þessari ferð. I
ferðinni sýndu þeir félagar það
og sönnuðu, að fáir standa þeim
á sporði i skemmtilegheitum,
þótt menn deili um tónlistarleg
gæði hljómsveitarinnar. Við vit-
um eflaust öll, að Lónli Blú Bojs
gætu gert miklu betur, en ef-
laust myndi það koma niður á
skemmtilegheitunum, — og min
reynsla af Lónli Blú Bojs er sú,
að þeir ætli sér fyrst og fremst
að vera skemmtilegir og flytja
skemmtílega tónlist.
Það tekst þeim.
Beztu lög:
Laugardagskvöld
Allir halda aðra vera sjálfa
sig.
G.S.
Lónli Blú Bojs — A ferö
Ýmir 003.
★ ★ ★ +
MARGIR þeir, sem
„pæla” i tónlist, eins og
það er kallað, er gjarnt
að lita á tónlist Lónli
Blú Bojs, sem sölu-
varning fyrst og
fremst, og benda máli
sinu til stuðnings á það,
að þegar liðsmenn
Lónli Blú gefa út sóló-
plötur (það hafa þrir af
þeim gert) þá kveði við
allt annan og betri tón.
Þá benda þeir jafn-
framt á það, að þessir
fjórir tónlistarmenn,
Gunnar, Rúnar, Engil-
bert og Björgvin, hafi
áður skipað hljóm-
sveit, Hljóma (1974) og
tónlist þeirra hafi einn-
ig verið önnur og betri
en Lónli Blú Bojs nú.
Þetta er allt saman rétt og
satt, svo langt sem það nær, að
minum dómi. Lónli Blú Bojs er
hljómsveit, sem byggir sinar
plötur á þvi grundvallarsjónar-
miði, aö plöturnar eigi aö vera
auðseljanlegar. Vinsæl erlend
lög eru flutt með islenzkum
Tommy Bolin — Private Eyes
Columbia — PC 34329/FACO
★ ★ ★ ★
ÞAÐ munu liklega
fáir kannast við nafnið
Tommy Bolin, þótt svo
að maður sá hafi verið i
tveimur heimsfrægum
hljómsveitum og getið
sér þar gott orð sem
gitarleikari.
Bolin þessi hóf feril sinn sem
gitarleikari I hljómsveit, sem
hét Zephyr, en sú hljómsveit
náði aldrei neinum vinsældum.
Hann vakti fyrst athygli á sér,
er hann lék á gitar á sólóplötu
Billy Cobham, Spectrum.
Það orð sem hann ávann sér
þar varð m.a. til þess að hann
tók sæti Joe Walsh i James
Gang, er sú hljómsveit var
endurreist árið 1972. Sem gitar-
leikari James Gang hlaut hann
almenna viðurkenningu, jafnt
meðal aðdáenda og gagnrýn-
enda, og þótti ekkert gefa Walsh
eftir.
Næsta skref hans upp á vib
var talsvert stórt, þvi að nú fór
hann til Bretlands og tók við þvi
erfiða hlutverki, að fylla upp i
skarð það sem Ritchie Black-
more skildi eftir sig i Deep
Purple. Fórst honum það mjög
vel úr hendi, og i stað þess að
herma eftir Blackmore fór hann
sinar eigin leiöir, og þykir sið-
asta plata Deep Purple, Come
And Taste The Band, bera þess
rækileg vitni.
Viðskulum nú ekki hafa þenn-
an formála um Tommy Bolin
öllu lengri, heldur snúa okkur að
þessari nýju plötu hans, Private
Eyes, sem er önnur i rööinni af
sóloplötum hans.
A plötunni eru átta lög, þrjú
eftir Bolin einan, en hin
fimm hefur hann samið i félagi
við aðra. Lögin, sem myndu
flokkast undir þungt rokk, en
önnur undir mildara rokk, eru
ekki mjög gripandi við fyrstu á-
heyrn, en vinna mjög á við frek-
ari hlustun.
- i
Harrison í
mála-
ferlum
GEORGE Harrison, fyrrum
BltHI, stendur nú enn einu
sinni I málaferlum, að þessu
sinni viö hljómplötuútgáfufyr-
irtækið A&M. Eins og kunnugt
er, stofnaði Harrison fyrir
nokkrum árum eigin hljóm-
piötuútgáfufyrirtæki, Dark
Horse, og komst á samníng
hjá A&M um dreifingu á plöt-
um fyrirtækisins, og jafn-
framt, að Dark Horse, starfaði
sem dótturfyrirtæki A&M.
S.l. vetur undirritaði Harri-
son samning við A&M um eig-
in sóloplötu, scm gefa átti út á
vegum Dark Horse s.l. vor. Sú
plata er enn ekki komin út, og
hefur því A&M krafið Harris-
on um skaðabætur begna
þessa, að upphæð rúman
milljarð i fsl. krónum.
Góður gítar-
leikari með
óða plötu
Að sjálfsögðu ber mest á fág-
uðum og góöum gitarleik Bolins
sjálfs i lögunum, en það sem
annars einkennir plötuna mjög,
er geysiskemmtileg notkun
saxafóns, og sums staðar sam-
leikur saxafóns og gitars, sem
gefur plötunni mjög skemmti-
legan blæ.
Um söng á plötunni sér Bolin
sjálfur, og er ekki annað aö
heyra en að honum farist það
vel úr hendi eins og annað sem
hann tekur sér fyrir hendur á
plötunni.
Ekki er hægt að segja annað,
en að Bolin takist mjög vel upp á
þessari plötu sinni, og ef fram-
hald veröur á velgengni hans er
aldrei aö vita nema hann verði
mjög þekktur hér á landi innan
nokkurra ára.
Beztu lög:
Sweet Burgundy
Post Toastee
Someday Will Bring Our Love
Home. SþS