Tíminn - 24.10.1976, Qupperneq 33

Tíminn - 24.10.1976, Qupperneq 33
Sunnudagur 24. október 1976 TÍMINN 33 „Segöu hinum mikla elskhuga, aö kattarmaturinn hans sé tilbú- inn.” „Nú veröur þú hissa þegar þú sérö hvaö mamma er búin aö tilreiöa handa þér.” DENNI DÆMALAUSI þreytt, og hún fór að hugsa um það, að i raun og veru væri of mikið á sig lagt að skoða þetta. Árni fór þá að athuga likkistuna og sá niðri i henni einkennilega steina, sem hann vildi athuga nánar. Hann klifraði þvi ofan i kistuna og fór að skoða þá. Berit fylgdist með bróður sinum og gætti einskis annars. Þau gleymdu sér bæði við þetta og veittu þvi enga athygli, að Sýrlending- urinn læddist hljóðlega með ljósið út i inn- ganginn. En allt i einu varð koldimmt. Sýr- lendingumn hafði slökkt á ljóskerinu. Systkinin héldu fyrst að hann hefði slökkt óvart og kölluðu til hans, að hann skyldi flýta sér að kveikja. Enginn svaraði. Grafarþögn rikti i kringum þau. Þá urðu systkinin dauðhrædd, sog þó eink- um Árni. Hann hafði á leiðinni inn veitt athygli opum og göngum, sem lágu i ýmsar áttir. Hann hafði þá hugsað með sjálfum sér, að næstum ómögulegt væri fyrir ókunnugan að rata leiðina út, án leiðsögu- manns. Nú voru þau sjálf komin i þennan vanda. Árni sá það strax, að hver sem ástæðan væri, þá hefði Sýrlendingur- inn yfirgefið þau viljandi og slökkt ljósið, og liklega ætlaði hann ekki að bjarga þeim fyrst um sinn. Árni þreifaði i flýti i vasa sinn. Jú, guði sé lof. Hann var með eld- spýtur á sér. Hann opn- aði stokkinn og taldi. Þær voru aðeins fimm. Með þessum fimm eld- spýtum gæti hann kannski fundið sjálfan útganginn úr þessu graf- hýsi, en hvað tæki svo við? Árni óttaðist mest margs konar hliðar- ganga, sem hann hafði komið auga á á leiðinni inn. Hann settist niður á kistugaflinn, og Berit þrýsti sér að honum, Hann fann, að hún skalf. ,,Ó Árni! Árni! Ég er svo hrædd. Hvað eigum viðað gera?” stundi hún upp. Ámi reyndi að hug- hreysta hana, en það gekk illa. Hann var lika dauðhræddur. Þarna var þögn og myrkur. Eintómt myrk- ur og þögn. Þau vom lif- andi grafin undir 5 milljónum tonna af grjóti. 7. Timinn þokaðist áfram. Þau Árni og Berit gátu varla gert sér grein fyrir þvi, hve lengi þau höfðu setið i kol- svörtu myrkrinu, en það hlaut að vera hræðilega langur timi. Það var um kl. 5 siðdegis, sem þau höfðu lagt af stað inn i pýramidann, og um klukkutima seinna hafði Sýrlendingurinn svikið þau og slökkt ljósið. Vom liðnir siðan sex klukkutimar? Eða tiu? Þau gátu alls ekki gert sér grein fyrir þvi. Einu sinni hafði Ámi fómað einni af þessum fimm dýrmætu eldspýtum og litið á klukkuna. Þá var hún niu. Siðan fannst þeim báðum hafa liðið hræðilega langur timi. Hvað skyldi vera áliðið næturinnar? Hræðslan, sem fyrst hafði gripið Árna i þessu niðdimma grafhýsi, hafði horfið smátt og smátt. Nú voru hugsanir hans skýrar og rólegar, og hann sá, að bak við þetta tiltæki Sýrlend- ingsins gæti ekki legið annað en að kúga út úr þeim fé. Hann myndi koma hér bráðlega aftur, þegar hann héldi, að þau væru orðin nógu beygð, til að láta af hendi allt, sem þau hefðu meðferðis, til að sleppa út úr þessari myrkrastofu. Nú var um að gera að vera rólegur og ákveðinn. Árni hafði nú kynnzt svo mikið geðslagi þessara Afriku- þjóða, að hann vissi það, að hættulegast af öllu var að sýna á sér nokkur merki hræðslu eða ótta. Ef til vill er það kjarkur og geðró hvitra manna, sem bezt hefur dugað þeim til að ná valdi yfir þessum fjölmennu þjóð- um hitabeltislandanna. Nú reið þeim systkinum mest á að sýna kjark og óttaleysi. Árni talaði um þetta við Berit og sá hún strax, að hann hafði á réttu að standa. Hún þurrkaði af sér tárin, og i sameiningu gerðu þau nokkurs konar hernað- aráætlun. Þeim kom saman um það, að kæmi Sýrlend- ingurinn aftur og talaði til þeirra, þá skyldu þau ekki svara honum fyrst

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.