Tíminn - 24.10.1976, Page 35

Tíminn - 24.10.1976, Page 35
Sunnudagur 24. október 1976 TÍMINN 35 Magnús Á. Arnason Höggmyndir og málverk Magnús A. Arnason. Magnús A. Arnason sýnir myndir sinar á Kjarvalsstööum dagana 16.-31. október, en þar sýnir hann rúmlega 90 málverk og teikningar, en auk þess eru á sýningunni átta höggmyndir. Flestar myndirnar eru oliu- málverk, en 15 eru kaffi- og blek-teikningar, geröar á árun- um 1933 - 1934. Magnús Á. Arnason er maður háaldraður, fæddur 28. des- ember árið 1894 i Narfakoti i Innri-Njarðvik, og voru foreldr- ar hans hjónin Arni Pálsson, bóndi og kennari þar og kona hans Sigriður Magnúsdóttir. Magnús A. Árnason settist i menntaskóla árið 1910, en hvarf frá námi þar eftir einn vetur og hóf nám i Teknisk Selskabs Skole i Kaupmannahöfn (1913 - 1914), en hélt þá til Bandarikj- anna, þar sem hann hóf mynd- listar- listnám og siðan nám i tónlistarskóla. California School of fine arts i San Francisco (1918 - 1922) og Arrillage Musical College, San Francisco, og siðan hefur hann starfað sem listmál- ari, rithöfundur, tónskáld og myndhöggvari i Reykjavik. Kona hans var Barbara Árna- son, listmálari sem nú er látin. Myndlist i sex áratugi Sem áður sagði eru um 100 verk á sýningu Magnúsar Á. Arnasonar að þessu sinni. Sum- ar myndanna eru mjög gamlar, t.d. Hólar i Hjaltadal, sem er vatnslitamynd frá árinu 1917. Aðrar eru yngri, en flestar eru málaðar árin 1974 og 1975, en þær eru 36 talsins. Höggmynd- irnar eru gamlar og nýjar, sú elzta frá árinu 1930. Sýning þessi gefur þvi allgott yfirlit yfir myndlistarstörf Magnúsar A. Arnasonar. Myndlist Magnúsar Á. Árna- sonar hefur tekið miklum breyt- ingum gegnum árin. Sveiflast úr depilstil impressionismans yfir i hreinan realisma, sem þó er ekki með öllu slitinn úr tengslum við fyrri tið. Við erum ekki öll sátt við þá þróun er varð i málverki hans og list, hefðum talið, að skerfur hans hefði get- að orðið stærri. Mjög auðvelt er að rökstyðja þessa fullyrðingu, sum þeirra raka eru til að mynda á sýning- unni að Kjarvalsstöðum, eins og til að mynda Mansöngur, móbergsmynd frá 1954 og sitt- hvað fleira. Þá eru sumar mynda hans i „depilstil” hrein- asta afbragð, sem sanna ótvi- ræða hæfileika i málverki. Listasafnið á nýrri braut? Það vakti athygli mina er ég skoðaði sýningu Magnúsar A. Arnasonar, að Listasafn tslands hafði fest kaup á þrem mynd- um. Þetta voru litlar myndir og munu ekki hafa kostað mjög mikið. Þarna greinir maður ný viðhorf i söfnunarstarfinu þar. Yfirleitt hefur Listasafn íslands virzt sækjast eftir stórum verk- um á sýningum og þá oft mjög dýrum. Ekki fer það þó ávallt saman, og stundum er maður sammála kaupum safnsins, en stundum ekki. Ég tel þetta athyglisverða þróun. Auðvitað á listasafnið ekki að sniðganga „minni verk”. Ef safnið vill verja ákveðinni fjárhæð til kaupa á mynd eftir ákveðinn listamann, á það, þegar svo ber undir að kaupa fleiri en eina — og gera góð kaup. Það hefur svo sannar- lega tekizt að þessu sinni. Sýning Magnúsar A. Arnason- ar er ekki yfirlitssýning á verk- um hans, heldur aðeins venjuleg sýning myndlistarmanns, sem hengir upp nýjustu verk sin al- menningi til fróöleiks og sjálf- um sér til könnunar á stöðunni. Eldri myndir eru siðan teknar með til að varða leiðina, sem er orðin harla lögn. Mér fellur bet- ur við eldri myndir listamanns- ins, en þær nýju, en það er svo önnur saga, og sem málara met ég hann að verðleikum meira en marga aðra. Jónas Guömundsson skyttur, bændur og búalið, veiði- menn PR 24 A hand- TALSTÖÐ er lausnin BENCO H.F. BOLHOLTI 4 || Reykjavík lí Sími (91)2-19-45 Árgerð 1977 til afgreiðslu strax VERÐ FRÁ KR. 1530 ÞÚSUND Þú færð mikið fyrir peninginn þegar þú kaupir Á F I AT aaaam er með barnalæsingum á hurðum. 0000131 er sérlega vel ryðvarinn frá verksmiðju. 0000131 er með áskrúfuðum frambrettum, sem mjög auðvelt er að skipta um. 0000131 er með s érbyggðum stuðara, sem gengur inn allt að 6 sm áður en yfirbyggingin verður fyrir tjóni. 0000131 Glæsilegar innréttingar og fallegt mælaborð. Auk þess má nefna stórt farangursrými, tvöfalt bremsukerfi, einangraðan topp, færanlegt stýri og sérlega vel styrkt farþegarými. nnaai3i mirafiori FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson h.f. Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.