Tíminn - 24.10.1976, Síða 35
Sunnudagur 24. október 1976
TÍMINN
35
Magnús Á. Arnason
Höggmyndir
og
málverk
Magnús A. Arnason.
Magnús A. Arnason sýnir
myndir sinar á Kjarvalsstööum
dagana 16.-31. október, en þar
sýnir hann rúmlega 90 málverk
og teikningar, en auk þess eru
á sýningunni átta höggmyndir.
Flestar myndirnar eru oliu-
málverk, en 15 eru kaffi- og
blek-teikningar, geröar á árun-
um 1933 - 1934.
Magnús Á. Arnason er maður
háaldraður, fæddur 28. des-
ember árið 1894 i Narfakoti i
Innri-Njarðvik, og voru foreldr-
ar hans hjónin Arni Pálsson,
bóndi og kennari þar og kona
hans Sigriður Magnúsdóttir.
Magnús A. Árnason settist i
menntaskóla árið 1910, en hvarf
frá námi þar eftir einn vetur og
hóf nám i Teknisk Selskabs
Skole i Kaupmannahöfn (1913 -
1914), en hélt þá til Bandarikj-
anna, þar sem hann hóf mynd-
listar- listnám og siðan nám i
tónlistarskóla. California School
of fine arts i San Francisco (1918
- 1922) og Arrillage Musical
College, San Francisco, og siðan
hefur hann starfað sem listmál-
ari, rithöfundur, tónskáld og
myndhöggvari i Reykjavik.
Kona hans var Barbara Árna-
son, listmálari sem nú er látin.
Myndlist i sex áratugi
Sem áður sagði eru um 100
verk á sýningu Magnúsar Á.
Arnasonar að þessu sinni. Sum-
ar myndanna eru mjög gamlar,
t.d. Hólar i Hjaltadal, sem er
vatnslitamynd frá árinu 1917.
Aðrar eru yngri, en flestar eru
málaðar árin 1974 og 1975, en
þær eru 36 talsins. Höggmynd-
irnar eru gamlar og nýjar, sú
elzta frá árinu 1930.
Sýning þessi gefur þvi allgott
yfirlit yfir myndlistarstörf
Magnúsar A. Arnasonar.
Myndlist Magnúsar Á. Árna-
sonar hefur tekið miklum breyt-
ingum gegnum árin. Sveiflast
úr depilstil impressionismans
yfir i hreinan realisma, sem þó
er ekki með öllu slitinn úr
tengslum við fyrri tið. Við erum
ekki öll sátt við þá þróun er varð
i málverki hans og list, hefðum
talið, að skerfur hans hefði get-
að orðið stærri.
Mjög auðvelt er að rökstyðja
þessa fullyrðingu, sum þeirra
raka eru til að mynda á sýning-
unni að Kjarvalsstöðum, eins
og til að mynda Mansöngur,
móbergsmynd frá 1954 og sitt-
hvað fleira. Þá eru sumar
mynda hans i „depilstil” hrein-
asta afbragð, sem sanna ótvi-
ræða hæfileika i málverki.
Listasafnið á nýrri
braut?
Það vakti athygli mina er ég
skoðaði sýningu Magnúsar A.
Arnasonar, að Listasafn tslands
hafði fest kaup á þrem mynd-
um. Þetta voru litlar myndir og
munu ekki hafa kostað mjög
mikið. Þarna greinir maður ný
viðhorf i söfnunarstarfinu þar.
Yfirleitt hefur Listasafn íslands
virzt sækjast eftir stórum verk-
um á sýningum og þá oft mjög
dýrum. Ekki fer það þó ávallt
saman, og stundum er maður
sammála kaupum safnsins, en
stundum ekki.
Ég tel þetta athyglisverða
þróun. Auðvitað á listasafnið
ekki að sniðganga „minni
verk”. Ef safnið vill verja
ákveðinni fjárhæð til kaupa á
mynd eftir ákveðinn listamann,
á það, þegar svo ber undir að
kaupa fleiri en eina — og gera
góð kaup. Það hefur svo sannar-
lega tekizt að þessu sinni.
Sýning Magnúsar A. Arnason-
ar er ekki yfirlitssýning á verk-
um hans, heldur aðeins venjuleg
sýning myndlistarmanns, sem
hengir upp nýjustu verk sin al-
menningi til fróöleiks og sjálf-
um sér til könnunar á stöðunni.
Eldri myndir eru siðan teknar
með til að varða leiðina, sem er
orðin harla lögn. Mér fellur bet-
ur við eldri myndir listamanns-
ins, en þær nýju, en það er svo
önnur saga, og sem málara met
ég hann að verðleikum meira en
marga aðra.
Jónas Guömundsson
skyttur,
bændur
og búalið,
veiði-
menn
PR 24 A
hand-
TALSTÖÐ
er lausnin
BENCO H.F.
BOLHOLTI 4
|| Reykjavík
lí Sími (91)2-19-45
Árgerð 1977 til afgreiðslu strax
VERÐ FRÁ KR. 1530 ÞÚSUND
Þú færð mikið fyrir peninginn
þegar þú
kaupir Á
F I AT
aaaam
er með
barnalæsingum
á hurðum.
0000131
er sérlega vel
ryðvarinn
frá verksmiðju.
0000131
er með áskrúfuðum
frambrettum, sem
mjög auðvelt er að
skipta um.
0000131
er með
s érbyggðum
stuðara, sem
gengur inn
allt að 6 sm áður
en yfirbyggingin
verður fyrir tjóni.
0000131 Glæsilegar innréttingar og
fallegt mælaborð. Auk þess má nefna stórt
farangursrými, tvöfalt bremsukerfi,
einangraðan topp, færanlegt stýri og sérlega
vel styrkt farþegarými.
nnaai3i
mirafiori
FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson h.f.
Síðumúla 35 Símar 38845 — 38888