Fréttablaðið - 22.11.2005, Page 20
22. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
www.steinsmidjan.is
ANDLÁT
Haukur Henderson, Kleppsvegi
10, Reykjavík, andaðist þriðjudag-
inn 15. nóvember.
Sigfús Steindórsson, fyrrum
bóndi, Steintúni, Lýtingsstaða-
hreppi, til heimilis að Víðigrund 8,
Sauðárkróki, andaðist á Heilbrigð-
isstofnun Sauðárkróks föstudag-
inn 18. nóvember.
Hólmfríður Hanna Magnúsdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur, Tryggva-
götu 26, Selfossi, andaðist á
Sjúkrahúsi Suðurlands laugardag-
inn 19. nóvember.
JARÐARFARIR
13.00 Magnþóra G. Magnús-
dóttir, Furugerði 1, Reykja-
vík, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.00 Ragnhildur Þóroddsdóttir,
Þorragötu 7, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
15.00 Bára Hólm, Hátúni 11,
Eskifirði, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
15.00 Guðbjörg Karlsdóttir, frá
Stekkjarholti, Ölduslóð
26, Hafnarfirði, verður
jarðsungin frá Krossinum,
Hlíðasmára 5-7.
15.00 Vilborg Sigurðardóttir,
Stórholti 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskapellu.
MERKISATBURÐIR
1907 Giftar konur í Reykjavík fá
kosningarétt og kjörgengi til
sveitarstjórna.
1907 Vegalög eru staðfest og
ákveðið að hér á landi skuli
vera vinstri umferð.
1963 John F. Kennedy, forseti
Bandaríkjanna, er myrtur.
1975 Jóhann Karl verður konung-
ur Spánar.
1990 Margaret Thatcher segir af
sér sem forsætisráðherra
Bretlands.
1997 Kristinn Björnsson verður í
öðru sæti á heimsbikarmóti
í svigi í Park City í Utah.
1997 Michael Hutchence,
söngvari INXS, finnst látinn
á hótelherbergi í Sydney.
ARTHUR SULLIVAN (1842-1900) LÉST
ÞENNAN DAG.
„Mér finnst hræðilegt til þess að hugsa
að svo mikið af ljótri og slæmri tónlist
verði geymt á plötum að eilífu.“
ARTHUR SULLIVAN VAR BRESKT
TÓNSKÁLD.
Thorvaldsensfélagið hefur
gefið út jólamerki í rúm-
lega níu áratugi og jólakort
síðastliðin tíu ár.
Myndin sem prýðir
jólamerkið og -kortið í ár
heitir Jól og er eftir Erlu
Sigurðardóttur myndlistar-
mann en allur ágóði af sölu
merkjanna og kortanna fer
til styrktar hinum ýmsu
málefnum sem varða börn.
Thorvaldsensfélagið sem
er 130 ára í ár, mun meðal
annars styrkja Vímulausa
æsku við stuðningsverk-
efni. Verkefnið felst í því að
vinna með börn sem koma
úr vímuefnameðferð til að
auðvelda þeim að lifa heil-
brigðu og eðlilegu lífi.
Jólamerkin er hægt að
fá í flestum pósthúsum
landsins, í Thorvaldsens-
bazarnum, Austurstræti 4,
í ýmsum bókabúðum og hjá
félagskonum. Upplýsingar
og pantanir fást í síma 551
3509 en hægt er að skoða
merkin og kortin á heima-
síðu félagsins, www.thor-
valdsens.is.
Thorvaldsensfélagið í 130 ár
„Við ætlum að fara til Ameríku og halda
þakkargjörðina með fjölskyldu okkar
þar,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir
alþingismaður sem er fertug í dag og
hélt utan ásamt dóttur sinni í gær í nokk-
urra daga frí.
Þórunn hélt upp á sjálft afmælið
um helgina. „Ég hélt boð fyrir vinkon-
ur mínar, nánustu samstarfskonur og
fjölskyldu í hádeginu á laugardag og
það var geysilega gaman. Ég hafði það
nákvæmlega eins og ég vildi hafa það,“
segir Þórunn sem hélt ræðulaust boð.
„Ég veit fátt leiðinlegra en afmælisboð
þar sem ræðuhöldin eru endalaus og fólk
hefur engan tíma til að tala saman og
skemmta sér,“ segir Þórunn en á sjöunda
tug gesta samglöddust Þórunni á þessum
tímamótum.
Þórunn ættleiddi litla stúlku fyrir
tveimur árum og varð hún þriggja ára
í lok sumars. „Það hefur gengið eins og
í sögu,“ segir hún um móðurhlutverkið
og nú fær hún tækifæri á að kynna hana
fyrir ættingjum sínum í Bandaríkjun-
um. Nokkur ár eru liðin síðan Þórunn
heimsótti móðursystur sína og frænd-
systkini vestur um haf. „Síðast þegar ég
fór kostaði dollarinn 105 krónur en er
núna 62,“ segir Þórunn kímin en ætlar
þó ekki að eyða tíma sínum í verslunar-
ferðir.
Þórunn kveðst vera óvön afmælis-
haldi enda hafi hún aldrei haldið upp
á þau með virktum. Hún minnist hins
vegar þrítugsafmælis síns með mikilli
gleði. „Þá var ég að vinna fyrir Rauða
krossinn í Tansaníu og samstarfsfólkinu
þótti við hæfi að baka fyrir mig afmæli-
sköku í tilefni dagsins og hún var í laginu
eins og hvalur. Af einhverjum ástæðum
þótti þeim þetta við hæfi fyrir Íslend-
inginn. Líklega var það nú vegna þess að
ég hef verið að rífa kjaft um hvalveiðar,“
segir Þórunn glettin.
Innt eftir afmælisósk svarar hún:
„Að lífið haldi áfram að batna eins og
það hefur gert hingað til.“
ÞÓRUNN SVEINBJARNARDÓTTIR ALÞINGISMAÐUR: ER FERTUG Í DAG
Hélt ræðulausa veislu
HELDUR ÞAKKARGJÖRÐ Þórunn hélt utan ásamt dóttur sinni til Bandaríkjanna í gær til að halda þakkargjörðina með fjölskyldu sinni þar. HEIÐA HELGADÓTTIR
Á þessum degi árið 1995
var Rosemary West dæmd í
lífstíðarfangelsi fyrir morð á
tíu ungum konum og stúlk-
um. Meðal fórnarlamba
West voru sextán ára dóttir
hennar, átta ára stjúpdóttir
og ófrísk ástkona eigin-
manns hennar. Hin 41 árs
gamla móðir sýndi engin
svipbrigði þegar dómurinn
var kveðinn upp.
Rose West og eiginmað-
ur hennar Fred, sem framdi
síðar sjálfsmorð í fangaklefa
sínum, voru handtekin í
febrúar 1994. Þá var verið
að rannsaka hvarf dóttur
þeirra. Þau voru ákærð
fyrir að myrða tólf stúlk-
ur á tuttugu ára tímabili.
Hjónin beittu fórnarlömb
sín hræðilegu kynferðis-
ofbeldi, myrtu þau síðan
og grófu þau undir húsi
þeirra í Gloucester. Þar
fundust grafin níu lík en
eitt fannst við uppgröft á
fyrra heimili þeirra West-
hjóna. Tvö lík til viðbótar
fundust grafin á nálæg-
um akri. Fred og Ros-
emary héldu því fram að
Fred hefði einn staðið að
morðunum en voru ekki
tekin trúanleg.
ÞETTA GERÐIST > 22. NÓVEMBER 1995
Rosemary West fær lífstíðardóm
ROSEMARY WEST
AFMÆLI
Boris Becker tennis-
stjarna er 38 ára.
Edda Arnljótsdóttir
leikkona er 41 árs.
Ingvar E. Sigurðsson
leikari er 42 ára.
Hörður Áskelsson
tónlistarmaður er
52 ára.
Ásgeir Elíasson
knattspyrnuþjálfari
er 56 ára.
Terry Gilliam leik-
stjóri er sextugur.
FÆDDUST
ÞENNAN DAG
1890 Charles De
Gaulle, forseti Frakk-
lands.
1819 George Eliot,
réttu nafni Mary Ann
Evans, rithöfundur.
Sími 460 1760
johann@isi.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Vilborg Sigurðardóttir
Stórholti 20, Reykjavík, áður Brimhóla-
braut 24, Vestmannaeyjum
lést sunnudaginn 13. nóvember. Útför hennar verður gerð
frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 2 nóvember kl. 15.00.
Gerður Gunnarsdóttir Grétar Br. Kristjánsson
Gylfi Gunnarsson
Gauti Gunnarsson
Sigurður Gunnarsson
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Loftur Ólafsson
tannlæknir, Bergstaðastræti 72,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn 17. nóvember.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn
24. október kl. 15.00.
Hrafnhildur Höskuldsdóttir
Ólafur Loftsson Dagný Hermannsdóttir
Auður Loftsdóttir David Tomis
Birta, Grímur, Ásta og Emma
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
JÓLAMERKI Í 92 ÁR Jólakort og -merki Thorvaldsensfélagsins prýðir myndin
Jól eftir Erlu Sigurðardóttur myndlistarmann.