Fréttablaðið - 22.11.2005, Síða 52
22. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR28
Hönnuðirnir Ragna Fróða, Ásta
Guðmundsdóttir og Guðbjörg
Kr. Ingvarsdóttir efndu til glæsi-
legrar tískusýningar á Hótel
Borg síðasta sunnudag. Þangað
mætti ógrynni af prúðbúnum
konum sem gerðu sér glaðan
dag yfir fallegri hönnun. Ásta
Guðmundsdóttir byrjaði sýn-
inguna og voru svartar og hvít-
ar prjónaflíkur mest áberandi
í ýmsum myndum. Síðar ævin-
týralegar peysur, stuttir kjólar
og prjónagammósíur sem girtar
voru ofan í prjónastígvél. Næst
sýndu dansarar skartgripi Guð-
bjargar í Aurum. Þeir voru stór-
ir og áberandi og nutu sín vel á
svartklæddum dönsurunum sem
liðuðust um sviðið í þokkafullum
hreyfingum. Ragna Fróða endaði
tískusýninguna en hún sýndi það
nýjasta úr sinni smiðju. Kjólar
voru áberandi ásamt vel sniðn-
um skyrtum, síðum pilsum og
buxum. Fyrirsæturnar vöktu
athygli en hjá Rögnu sýndu ekki
hefðbundnar fyrirsætur heldur
venjulegar konur á öllum aldri.
...notalegt að heimsækja Súfistann á
fimmtudagskvöldum og hlusta á höfunda
jólabókaflóðsins lesa upp úr verkum
sínum. Mikilvægt að mæta stundvíslega
því færri komast yfirleitt að en vilja.
...að menn og konur ættu að taka
aðventuna hátíðlega og njóta þess
að vera til. Byrja snemma að skreyta
hjá sér, baka, hlusta á jólalög og njóta
þessa dásamlega tíma. Aðventan
á nefnilega að vera dekurtími, ekki
stress og leiðindi.
...að menn ættu að leggja
við hlustir því í
jólatörninni leynast
fullt af áhugaverð-
um geisladiskum.
Diskur Brynhildar
Guðjónsdóttur, Grr..,
er skyldueign fyrir
þá sem kunna að
meta rumbutakt og
rómantík.
...skemmtilegt að
fara á útgáfutón-
leika í Fríkirkjunni.
Það er svo ógurlega
hátíðlegt. Ellen Kristj-
ánsdóttir og bróðir
hennar KK verða með
útgáfutónleika þann
8. desember. Þau
munu spila lög af nýju
jólaplötunni sinn, Jólin
eru að koma.
...gott að bera á sig gloss til að vernda var-
irnar gegn frosti. Svo er það svo voðalega
fallegt.
Fólkinu finnst...
Hátíska í 101
FÖÐURLEGUR RITHÖFUNDUR Hallgrímur
Helgason fylgdist spenntur með ásamt
dóttur sinni Margréti Maríu.
DOLFALLIN Dýrleif Ýr Örlygsdóttir stílisti
fylgdist spennt með.
ÁHUGASAMAR María Gréta Einarsdóttir
mætti með tengdamóður sinni, Brynju
Nordquist.
FÖNGULEGUR HÓPUR
ÞRJÁR GÓÐAR Það var klappað mikið fyrir þeim Ástu Guðmundsdóttur, Guðbjörgu Kr.
Ingvarsdóttur og Rögnu Fróðadóttur í lok sýningarinnar.
GEGNSÆTT OG FALLEGT Fyrirsætan klæðist fatnaði frá Ástu Guðmundsdóttur.
KLIPPT OG SKORIÐ Nadía Banine úr Innlit
útlit fylgist vel með tískunni en hún er sjálf
mjög myndarleg í höndunum og býr til
fallega hluti þegar hún gefur sér tíma.
Úrslit Skrekks, hæfileikakeppni
grunnskóla Reykjavíkur og ÍTR,
fara fram í Borgarleikhúsinu
í kvöld. Í ár tóku 27 grunnskól-
ar þátt í Skrekk og var liðunum
skipt niður á þrjú keppniskvöld.
Sex skólar standa eftir sem
keppa í kvöld. Það eru Austur-
bæjarskóli, Árbæjarskóli, Álfta-
mýrarskóli, Hagaskóli, Hlíða-
skóli og Réttarholtsskóli. „Þetta
hefur gengið mjög vel hjá okkur
í ár og þátttakendum fjölgar með
hverju ári,“ segir Már Guðlaugs-
son. „Krakkarnir eru að fóta sig
á nýju sviði og fæstir þeirra hafa
staðið áður á leiksviði en þau
gera þetta hins vegar mjög vel.
Þau eru búin að leggja gífurlega
mikið í þetta og ekki bara þau
sem standa á sviðinu heldur er
mjög mikill undirbúningur á bak
við. Þarna eru ungir krakkar að
gera flotta hluti.“
Þetta er í fimmtánda sinn sem
keppnin er haldin og hefur hún
unnið sér fastan sess í skólastarfi
í Reykjavík. Nemendur leggja
mikla vinnu í atriðin, margir
koma að undirbúningi þeirra
og alls 945 krakkar taka þátt í
Skrekk í ár, fyrir utan þau sem
taka þátt í forkeppnum skólanna.
Undanfarin ár hefur keppnin
verið send út í sjónvarpi en í
kvöld verður hún send út á slóð-
inni www.siminn.is/skrekkur
og hefjast herlegheitin klukkan
átta.
Unga fólkið fer á kostum
HLÍÐASKÓLI Með skrautlega sýningu.
ÁRBÆJARSKÓLI Sýndi tilþrifamikið atriði.