Fréttablaðið - 22.11.2005, Side 55
FRÉTTIR AF FÓLKI
Kylie Minogue er greinilega öll að hressast því hún hefur bókað fjölda
tónleika á næsta ári. Hún neyddist til
að fresta tónleikaferðalagi um Ástralíu
þegar hún veiktist en mun nú standa
við gefin loforð og halda tónleikana
átján mánuðum seinna
en ætlunin var í
fyrstu. „Kylie hefur
hugsað mikið um
þessa tónleika
og er snortin
yfir því hversu
lengi aðdáend-
ur hennar hafa
beðið þolinmóðir
eftir þeim,“
sagði Michael
Gudinski,
kynningarfull-
trúi tónleik-
anna.
Joss Stone er í ástarsorg eftir að hafa nýlega hætt með kærasta sínum,
Beau Dozier. Parið hafði verið saman
í tvö ár og Joss segist enn elska Beau,
sem er sjö árum eldri en hún, eða 25
ára. „Ég veit ekki hvað gerðist en hvað
getur maður gert. Svona hlutir eru svo
sorglegir. Ég elska hann meira en allt
annað. Hann er besti
vinur minn og mun
alltaf vera. Það
skiptir ekki máli
hvort við séum
saman eða ekki,
ég mun alltaf
elska hann,“
sagði söngkon-
an. Ástæða sam-
bandsslitanna
telja margir vera
hversu sjaldan
þau hafa getað
hist nú þegar
Stone er úti um
allan heim á tón-
leikaferðalögum.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 2
9.
11
. 2
00
5
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
3
0
0
7
5
L’ORÉAL MEN EXPERT
Nýja herralínan frá L’Oréal.
Langvarandi rakagjöf sem
styrkir húðina.
Nýi tveggja skrefa maskarinn frá L’Oréal.
Gerir augnhárin þín 12 sinnum þykkari en
þú átt að venjast.
L’ORÉAL VOLUME
SHOCKING
15%15% 20%
Mig vantar góðar snyrtivörur fyrir mig og kallinn!
KARBAMÍÐ RAKAKREM
Húðvörurnar frá Gamla apótekinu eru án
viðbættra litar- og ilmefna. Þær eru góður
kostur fyrir alla, ekki síst fyrir þá sem þola
illa aukaefni í kremum.
Nýtt
Nýtt
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Laugardalshöllin var troðfull
þegar tónleikar rokkdúettsins
The White Stripes hófust klukk-
an rúmlega 21.00 í fyrrakvöld.
Áður hafði Jakobínarína, sem
vann síðustu Músíktilraunir,
séð um upphitun. Sveitin sýndi
skemmtilega takta, bæði hvað
varðar tónlistina og hressilega
sviðsframkomu. Jakobínar-
ína lofar mjög góðu og er tví-
mælalaust ein efnilegasta sveit
Íslands í dag.
Þau Jack og Meg White gengu
á svið klædd að sjálfsögðu hvít-
um og rauðum fötum eins og þei-
rra er von og vísa. Jack skartaði
svörtum hatti og löngum höku-
toppi. Hefði hann haft sverð í
höndunum í staðinn fyrir gítar
hefðu eflaust margir haldið að
þarna væri sjálfur Zorró mætt-
ur í Höllina.
The White Stripes er óvenjuleg
hljómsveit að því leyti að meðlim-
irnir eru aðeins tveir og enginn
bassaleikari er til staðar. Sveitin
hefur lagt áherslu á naumhyggj-
una og hráleikann og reynir til
að mynda að taka upp plöturnar
sínar á sem allra skemmstum
tíma. Þess vegna var forvitnilegt
að sjá hvernig Jack leysti „vanda-
málið“ sem fylgir því að flytja
lögin uppi á sviði, því vitaskuld er
nostrað aðeins meira við hlutina
þegar komið er í hljóðver og t.d.
tvenns konar gítarleikur notaður
í sama laginu.
Til að redda málunum hafði
hljóðnemum verið stillt upp víðs
vegar um sviðið og þannig gat
Jack sungið við hlið Meg, við
píanóið eða bara hvar sem var.
Þrátt fyrir að hann gæti ekki
notað tvo gítara í einu gekk flutn-
ingurinn alveg upp og dúettinn
hélt áhorfendum vel við efnið.
Jack var eins og krakki í leik-
fangabúð þegar hann valdi þau
hljóðfæri sem hentuðu í hvert
sinn. Hljóðfærin voru gríðarlega
mörg, sér í lagi gítararnir, og
átti aðstoðarmaður hans fullt í
fangi með að koma til hans réttu
græjunum. Jack flakkaði á milli
hljóðfæra ótt og títt, enda lögin
mörg hver ansi stutt, og stund-
um spilaði hann meira að segja
á píanóið með gítarinn í fanginu.
Auk þess að vera nánast eins og
eins manns sveit brá Jack sér
í hlutverk tæknimanns þegar
hann reyndi að stilla magnarann
sem gerði honum á köflum skrá-
veifu í gítarleiknum.
Á meðan öllu þessu stóð sat
Meg í rólegheitum við trommu-
settið og trommaði á svo ein-
faldan hátt að nánast, að því
er virtist, hver sem er á meðal
áhorfenda hefði getað leikið
það eftir. Engu að síður passaði
trommuleikurinn eins og flís
við rass við gítar- og píanóleik
Jacks.
The White Stripes sýndi allar
sínar bestu hliðar í Höllinni.
Þau Jack og Meg náðu mjög vel
saman og mynduðu í blúsuðustu
lögunum öflugan hljóðmúr. Spil-
agleðin skein einnig í gegn, sér
í lagi hjá Jack. Þau tóku öll sín
vinsælustu lög ef undan er skilið
Fell in Love With a Girl af hinni
frábæru plötu White Blood Sells.
Eftir uppklapp yfirgaf dúett-
inn sviðið og lofaði Jack að þau
kæmu aftur hingað til lands sem
allra fyrst. Það ætla ég svo sann-
arlega að vona.
Freyr Bjarnason
Rosalegur rokkdúett
THE WHITE STRIPES: LAUGARDALSHÖLL
20. NÓVEMBER
Niðurstaða:
The White Stripes sýndu allar sínar bestu
hliðar í Höllinni. Jack og Meg náðu gríðarlega
vel saman og mynduðu á köflum öflugan
hljóðmúr.
Söngkonan Katie Meluna heldur
tónleika í Laugardalshöll þann 31.
mars. Melua, sem er 21 árs, þykir
einn helsti vonarneisti popp- og
djasstónlistarinnar í dag og hefur
þegar skipað sér í röð söluhæstu
söngkvenna heims.
Önnur plata Meluna, Peace By
Peace, kom út á dögunum og fór
hún beint á toppinn í Bretlandi.
Forsala miða á tónleikana hefst
6. desember í Skífunni, BT úti á
landi og á concert.is.
Meluna
til Íslands
KATIE MELUA Söngkonan er á leiðinni til
Íslands í mars á næsta ári.